Velferð - 01.05.2018, Qupperneq 23

Velferð - 01.05.2018, Qupperneq 23
Eftir vel heppnaða mælingaferð í Hnífsdal var ekið eins hratt og hægt var til ísafjarðar og má eiginlega segja að við rétt náðum að byrja mælingar þar kl. 11:00. Á ísafirði stóðu mælingar langt fram yfir auglýstan tíma og þurfti því að skipta liði og senda bílinn með tvo mælingamenn á Súðavík en þar áttu mælingar að hefjast kl. 17:00. Fjöldi mælinga á ísafirði eru áætlaðar 218 en þar lauk mælingum kl. 19:45 og á Súðavík lauk mælingum um kl. 20:00 þar sem 33 einstak- lingar fengu mælingu. Föstudaginn 26. maí kom Guðmundur Löve fram- kvæmdastjóri SÍBS fljúgandi til ísafjarðar en hann hélt fyr- irlestur í hádeginu fyrir stjórnendur sjúkrahússins á ísafirði - fyrirlesturinn var um stóru myndina í heilbrigðiskerfinu okkar. Þennan sama dag fóru fram mælingar á Þingeyri þar sem 71 einstaklingur var mældur og á Flateyri fengu 24 mæl- ingu. Að mælingum flugu tveir suður, en hópurinn sem var akandi náði heim í Síðumúla kl. 23:00. í þessari ferð voru: Aldfs Jónsdóttir og Guðný Linda Ola- dóttir frá Samtökum lungnasjúklinga. Frá SÍBS Stefanía Guðrún Kristinsdóttir, Jónína Jóhannsdóttir og Sigurbjörg Jóhannesdóttir. Frá Hjartaheillum Kjartan Birgisson og Ásgeir Þór Árnason. Mæling Eyjafjarðarsvæðið Dagana 5. til og með 7. október fóru fram mælingar í Ólafs- firði, Siglufirði, Dalvík og Akureyri. Þessa dagana fengu 531 einstaklingar mælingu og var einn sendur beint á bráðamóttökuna til nánari skoðunar. Okkur var vel tekið og mikil ánægja var meðal þátttakenda yfir þessu framtaki oklor. í þessari ferð voru: Aldís Jónsdóttir frá Samtökum lungna- sjúklinga. Frá SÍBS Stefanía Guðrún Kristinsdóttir, Gestur Helgason, Kristín Rut Jónsdóttir og Sigurbjörg Jóhannes- dóttir. Frá Samtökum sykursjúkra Sigríður Jóhannsdóttir. Frá Hjartaheillum Valgerður Hermannsdóttir, Kjartan Birgisson, Guðrún Bergmann Franzdóttir, Guðrún Kristín Jóhannesdóttir, Halldóra Ingólfsdóttir og Ásgeir Þór Árna- son. Mælingar Norðurland - vestra Dagana 16. til og með 18. október fóru fram mælingar á Hvammstanga, Blönduósi, Hofsósi, Skagaströnd og Sauðár- króki. Þessa dagana fengu 524 einstaklingar mælingu, margir voru sendir til áframhaldandi slcoðunar og var sem fyrr mikil ánægja og þakklætið ofarlega hjá þeim sem lcomu í mæl- ingarnar. í þessari ferð voru: Aldís Jónsdóttir frá Samtökum lungna- sjúklinga. Frá SfBS Stefanía Guðrún Kristinsdóttir, Kristín Rut Jónsdóttir, Jónína Jóhannesdóttir og Sigurbjörg Jóhann- esdóttir. Frá Samtökum sykursjúkra Fríða Bragadóttir og frá Hjartaheillum Ásgeir Þór Árnason. Mæling Hveragerði Fimmtudaginn 23. nóvember s.l. fóru fram mælingar í Hveragerði. Þennan dag voru 184 einstaklingar mældir, en nokkuð margir voru sendir til áframhaldandi sl<oðunar. Sjónvarpsþátturinn Landinn á RÚV kom og gerði mæl- ingunni skil í þætti sem sýndur var sunnudaginn 26. nóv- ember og kom mikilvægi verkefnisins vel til skila í þættin- um. í þessari ferð voru: Guðný Óladóttir, Aldís Jónsdóttir og Katrín Ingjaldsdóttir frá Samtökum lungnasjúklinga. Frá SÍBS Guðmundur Löve, Stefanía Guðrún Kristinsdóttir, Kristín Rut Jónsdóttir, Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir og Adda María Óttarsdóttir hjúkrunarfræðinemi HÍ. Frá Samtökum sykursjúkra Valgeir Jónsson og frá Hjartaheill- um Valgerður Hermannsdóttir, Kjartan Birgisson og Ásgeir Þór Árnason. Velferð 23

x

Velferð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.