Velferð - 01.05.2018, Síða 26

Velferð - 01.05.2018, Síða 26
Gangráðsaðgerðir eru um 300 á ári á Landspítala. Þessi nýi gangráður hefur komið vel út úr prófunum og hefur verið tekinn í notkun á nokkrum sjúkrahúsum á heimsvísu, þar með talið á Landspítala. Sigfús Gizurarson, sérfræðingur í hjartalækningum hefur haft forystu um að taka þessa nýju tækni upp hérlendis. Gangráður græddur í hund Hundurinn Buska skráði sig á spjöld íslandssögunnar í læknavísindum þegar hún varð fyrsti hundurinn hér á landi til að fá hjartagangráð. Eigandi hundsins var eiginkona Hjart- ar Oddssonar læknis, en Hjörtur og kollegar hans, dýra- og mannalæknar framkvæmdu aðgerðina. Buska er rúmlega þriggja ára íslenskur hundur. Eftir áramót fór að líða yfir hundinn og var þá farið með hann til dýralæknis. Þar fannst að hundurinn var mjög lágur í púls. Þegar það var athugað frekar kom í ljós að hann var með blokk í hjartanu. „Ég er sérfræðingur í gangráðum en ef við hefðum ekki gert neitt fyrir hundinn hefði hann dáið á næstu mánuðum," sagði Hjörtur og því var aðeins eitt í stöð- unni; aðgerð. Hjartadeild Landspítalans Hjartadeild Landspítala er eina hjartadeildin á landinu og starfsemin þar í senn fjölbreytt, umfangsmikil og sérhæfð. Starfsemin fer fram á nokkrum einingum, m.a. Hjartagátt, hjartaþræðingarstofum og á legudeild 14EG. Um 200 manns starfa á hjartadeildinni og er mikið lagt upp úr öflugri liðsheild og góðum starfsanda, en sjúklingarnir eru alltaf í fyrirrúmi. Það varð mikil viðbót við starfsemina þegar Hjartagátt var höfð opin um helgar jafnt sem virka daga. Þá var nýlega opnuð ný og stórendurbætt aðstaða til hjartaómunar. Tækjakostur er allgóður á deildinni en stöðugt þarf að endur- nýja hann og þar hefur gjafafé komið sér vel á undanförnum árum. Kennsla í heilbrigðisgreinum og vísindarannsóknir eru stór og mikilvægur þáttur í starfi hjartadeildarinnar. Meðal verkefna framundan er að stytta biðlista í brennslu- aðgerðir vegna hjartsláttartruflana og í hjartaþræðingar ásamt eflingu göngudeildarþjónustu. Efla þarf nýliðun og halda í núverandi starfsmenn deildarinnar. Mannauðurinn er deildinni afar mikilvægur. Komur í hjartarannsókn voru alls 23.967 og hjarta- og æða- þræðingaraðgerðir voru 2.686. Tæplega 2.000 manns lögðust inn vegna hjartalækninga og legudagar voru alls 12.967. Gangráðsísetningar voru 305 talsins. og bjargráðsígræðslur 48. Alls 11.275 hjartalínurit voru tekin og 4,776 hjartaóman- ir framkvæmdar. Af þessu má sjá að það er ekki að furða þó oft sé annasamt á Landspítalanum, því hér eru einungis tölur frá einni deild af fjöldamörgum sem þar eru. Heimildir: Heimasíða Landspítala og Ársskýrsla hjartadeild- ar Landspítala 2017. Myndir eru fengnar frá hjartadeildinni. Hjartadeildin í tölum Hér að neðan eru nokkrar tölur úr ársskýrslu Hjartadeildar Landspítala, sem varpa nokkru ljósi á umfang starfseminnar: Á Hjartagáttina voru alls 12.366 komur. Þar af komu 8.498 á bráðamóttöku. 26 Málgagn Hjartaheilla

x

Velferð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.