Mosfellingur - 22.02.2018, Blaðsíða 17
www.mosfellingur.is - 17
ÉG VIL VINNA MEÐ ÞÉR
Vilt þú verða hluti af faglegum, duglegum og skemmtilegum hópi starfsfólks á KFC? Hefurðu áhuga
á að vinna fyrir eina stærstu skyndibitakeðju heims og eiga möguleika á að vinna þig upp og þróast
í starfi? Við bjóðum uppá sveigjanlegan vinnutíma og frábæra stemningu á vinnustað.
Hefur þú áhuga á að slást í hópinn? Fylltu út umsóknarformið á www.kfc.is/atvinna
Fyrirspurnir um störfin sendist á barbara@kfc.is
VAKTSTJÓRI Í MOSFELLSBÆ
Við leitum að skipulögðum
og framtakssömum
einstaklingi til að stýra
vöktum á veitingastöðum KFC.
Leiðtogafærni og starfsreynsla
úr sambærilegu starfsumhverfi
eru æskilegir kostir.
Starfssvið:
Ábyrgð á starfsfólki, þjálfun þess
og vellíðan á vinnustað, þjónusta
við viðskiptavini og birgja ásamt
umsjón með daglegum rekstri
(vörumóttöku, talningu, uppgjöri
og vaktaplani).
Hæfniskröfur:
• Íslensku- og enskukunnátta
• Metnaður í starfi
• Góð almenn tölvukunnátta
• Geta til að vinna hratt og
örugglega undir álagi
• Reynsla af veitingaþjónustu
SUMARSTÖRF
hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar
• Vallarþjónusta
• Umhirða og sláttur vallarsvæða
• Afgreiðsla í Bakkakoti
Golfklúbbur Mosfellsbæjar auglýsir eftir ábyrgu
og kraftmiklu fólki til sumarstarfa á vallarsvæðum GM.
Um fjölbreytt störf er að ræða:
Umsóknir ásamt
ferilskrá berist á
golfmos@golfmos.is
Umsóknarfrestur
er til 10. mars nk.