Mosfellingur - 22.02.2018, Blaðsíða 6
Sími: 570 9090 · Netfang: frumherji@frumherji.is · www.frumherji.is
www.frumherji.is
FEBRÚAR 2018
góð þjónustA og hAgstæð kjör á skoðunum
Við verðum með færanlegu skoðunarstöðina
við blómabúðina í Háholti, dagana 26. til 28.feb.
Engar tímapantanir.
Stöðin verður opin
frá kl.8:00 til 17:00
Lokað í hádeginu.
Beinn sími 863 0710
Vertu með allt á hreinu á
nýskoðuðum bíl frá Frumherja
FæRAnlEg skoðunARstöð
í MosFEllsBæ
BIFREIÐASKOÐUN
láttu skoða bílinn í þinni heimabyggð!
Allir með endastaf til og með 8 ásamt
þeim sem létu skoða fyrir 1. nóvember í
fyrra geta komið í skoðun núna.
Eldri borgarar
Þjónustumiðstöðin
Eirhömrum
Fram undan
í FélagsstarFinu
Viltu gera sápur?
Dagana 6. og 7. mars ætlum við að leika
okkur að gera sápur sem við steypum
í mót, auðvelt og gaman og allir geta
verið með. Skráning í handverksstofu eða
í síma 586-8014 virka daga milli 13:00-
16:00 eða á elvab@mos.is.
Hver vill ekki alltaf
líta vel út?
Við ætlum að bjóða ykkur, kæru vinkonur,
í kósý stemningu miðvikudaginn 14.
mars. Þá ætlar Svanhvít förðunarfræð-
ingur að koma í heimsókn til okkar og
sýna okkur alls konar trix sem virka vel
fyrir konur á besta aldri. Endilega komið
og eigið skemmtilega stund með okkur
kl. 13:30 í handverksstofu félagsstarfsins
Hlaðhömrum 2.
gaman saman
verður næst haldið fimmtudaginn 22.
feb, síðan 8. og 22. mars. Alltaf kl. 13:30 í
borðsal.
BridgE
er spilað alla þriðjudaga kl. 13:00 í
borðsal. Endilega komið
og verið með, alltaf
vantar gott fólk.
FélagsVist
verður föstudaginn
2. mars og 16. mars
kl. 13:00 í borðsal, allir
velkomnir.
Páskabingó 28. mars
verður haldið miðvikudaginn 28. mars kl.
13:30 í borðsal, allir velkomnir! Auðvitað
eru páskaegg í vinning :)
námskeið
Þeir sem vilja vera
með á námskeiðinu
í Alkahol ink blekinu
í næstu viku, þriðju-
dag og miðvikudag,
vinsamlegast
skráið ykkur í hand-
verksstofu, í síma
586-8014 eða á elvab@mos.is. Innifalið er
allt efni og fara þátttakendur heim með
myndaramma, glerdisk, kertakrús og
málaða flís. Verð 3.500 kr.
Páskaskreytingar
19.-21. mars
Dagana 19., 20. og 21. mars ætlum við
að vera í páskastuði og búa til alls konar
skreytingar til að njóta um páskana.
Brynja skreytingameistari verður með
alls konar sniðugt í pokahorninu, verið
velkomin. Þeir sem hafa áhuga á að
vera með endilega hafið samband við
okkur áður í félagsstarfið í síma 586-8014
virka daga milli 13-16 eða á elvab@mos.
is. Þátttökukostnaður að sjálfsögðu í
lágmarki eins og alltaf.
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Félag aldraðra
í mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
Einar Karl Sigmarsson er ungur og efnileg-
ur Mosfellingur. Hann er 15 ára nemandi
í 10. bekk Lágafellsskóla. Þrátt fyrir ungan
aldur hefur hann stofnað sitt eigið fyrirtæki
sem heitir Tómatur.
„Ég er að selja gæðahulstur fyrir iPhone-
síma á mjög góðu verði,
ég er með nokkrar týpur
og nokkra liti. Þetta
byrjaði með því að pabbi
minn sem rekur pítsastaðinn Shake&Pizza
fór til Dubai. Hann kynntist þar framleið-
anda sem framleiðir meðal annars þessi
hulstur. Ég fékk svo tækifæri á að hefja við-
skipti við hann og hóf innflutning á þessum
hulstrum,“ segir Einar Karl.
Frí heimsending í mosó
„Ætlunin er að auka úrvalið smátt og
smátt með ýmsum aukahlutum fyrir síma.
Ég hef fengið góð viðbrögð en ég hef aðal-
lega verið að kynna fyrirtækið í gegnum
Facebook og Instagram. Best er að senda
mér pantanir í gegnum Facebook. Hulstrin
kosta 1.000 kr. og það er frí heimsending
hér í Mosfellsbæ. Hringurinn aftan á
hulstrunum er gerður til að geta haldið á
símanum með annarri hendi en einnig má
nota hann sem stand
svo síminn geti staðið
á borði.
Ég er búinn að tryggja
mér lénið tomatur.is og er að vinna að gerð
heimasíðu. Hugmyndin er líka að útbúa
Snapchat-reikning og auglýsa þar. Þetta
hefur gengið mjög vel en ég fékk fyrstu
sendingu í janúar.
Ég er nú þegar búinn að læra helling á
þessu, bæði varðandi samskipti við fram-
leiðandann og ýmislegt varðandi innflutn-
ing og fleira. Mér finnst gaman að kynnast
ferlinu og þetta er góð byrjun ef þig langar
í bissneslífið,“ segir Einar Karl sem á greini-
lega framtíðina fyrir sér í viðskiptalífinu.
Einar Karl stofnar sitt eigið fyrirtæki sem heitir Tómatur
Tómatur selur auka-
hluti fyrir iPhone-síma
einar karl með sínar
fyrstu vörur á markaðnum
Mosfellsbær, velferðarráðuneytið og Hamrar - hjúkrunarheimili
hafa komist að samkomulagi um lausn á langvarandi rekstrarvanda
heimilisins.
Samkomulagið er forsenda þess að unnt sé að draga til baka
uppsögn Mosfellsbæjar á þjónustusamningi við ráðuneytið og
Sjúkratryggingar Íslands um rekstur Hamra, sem og uppsögn
Hamra ehf. um rekstur heimilisins.
Samkomulagið felur í sér að stækkun hjúkrunarheimilisins hafi
forgang við frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma á höfuðborg-
arsvæðinu og að undirbúningsvinnu uppbyggingarinnar verði
hraðað. Þá verður veitt tímabundin heimild til fjölgunar rýma um
þrjú.
Stækkun hjúkrunarheimilisins er forsenda fyrir sjálfbærni rekst-
ursins í framtíðinni. Arkitektar hafa þegar lagt fram hugmyndir um
stækkun sem nemur allt að 44 rýmum með viðbótarhæð ofan á nú-
verandi hús, ásamt byggingu norðan við það, sem gæfi möguleika
á allt að 74 rýmum.
Fallist á stækkun hjúkrunarheimilisins
Þá felur samkomulagið í sér að unnin verði greining á kostnaði
vegna umönnunar yngri íbúa á hjúkrunarheimilinu. Leiði greining-
in í ljós að greiðslur til heimilisins vegna yngri íbúa séu vanmetnar
mun ríkið taka tillit til þess kostnaðar við ákvörðun daggjalda.
„Það er afar ánægjulegt að tekist hafi að leysa rekstravanda
Hamra og tryggja rekstur heimilisins til framtíðar. Það er einnig
mikilvægt að fallist hafi verið á stækkun Hamra því þörfin er svo
sannarlega til staðar“ segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mos-
fellsbæjar.
Samkomulag um rekstur • Hugmyndir lagðar fram um stækkun hjúkrunarheimilisins
lausn á rekstrarvanda Hamra
HjúkrunarHeimilið Hamrar
getur stækkað á næstunni
Viðreisn undirbýr
framboð í Mosfellsbæ
Félagar í Viðreisn sem eru búsettir
í Mosfellsbæ hafa undanfarið
verið að undirbúa stofnun félags í
bænum, segir Valdimar Birgisson,
en hann er einn þeirra
sem vinnur að undir-
búningi og reiknar
með að boðað verði
til stofnfundar á
næstu dögum.
„Markmiðið er að
stuðla að öflugu starfi.
Fjölmargir hafa þegar lýst
yfir áhuga á að koma að þessu starfi
og vinna að stefnumálum Viðreisn-
ar sem er frjálslyndur, alþjóða- og
jafnréttissinnaður flokkur,“ segir
Valdimar. „Samhliða stofnun félags-
ins erum við að kanna hvernig best
verði staðið að framboði í komandi
sveitarstjórnarkosningum. Við vilj-
um helst sameina krafta þess fólks í
bænum sem aðhyllist frjálst og opið
samfélag þar sem hagsmunir al-
mennings eru látnir ráða för en ekki
sérhagsmunir. Það er kominn tími
til að gera breytingar. Ég vil hvetja
alla sem vilja slást í hópinn og taka
þátt í starfinu og undirbúa framboð
að hafa samband. Við leitum að
kraftmiklum, jákvæðum, traustum
og heiðarlegum einstaklingum sem
vilja leggja sitt af mörkum til þess
að bæta lífið í Mosfellsbæ“, segir
Valdimar um leið og hann býður
áhugasömum að setja sig í samband
við undirbúningshópinn með því
að senda póst á mosfellsbaer@
vidreisn.is.
Landbrot í Listasal
Sæunn Þorsteinsdóttir hefur opnað
einkasýningu í Listasalnum sem
ber heitið Landbrot. Sæunn fæddist
í Reykjavík í
mars 1967. Hún
er Mosfellingur
í móðurætt og
höfuðborgari í
föðurætt og hefur
síðustu níu árin
búið í Miðdal í
Mosfellssveit.
Á þessari fimmtu einkasýningu
sinni mun Sæunn aðallega sýna
lágmyndir unnar úr landakortum.