Mosfellingur - 22.02.2018, Blaðsíða 12

Mosfellingur - 22.02.2018, Blaðsíða 12
Tæplega 700 greiddu atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins • Bæjarstjórinn leiðir áfram Töluverð endurnýjun á lista Sjálfstæðisflokksins Prófkjör Sjálfstæðisflokks- ins í Mosfellsbæ fór fram laugardaginn 10. febrúar. Tólf frambjóðendur gáfu kost á sér og tæplega 700 manns greiddu atkvæði. Kosið var í félagsheimili flokksins í Kjarna. Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar varð efstur í prófkjörinu. Hann er ánægður með niðurstöðuna og væntan- legan lista. „Þetta er breiður hópur fólks á ólíkum aldri, með fjölbreytta menntun og reynslu. Þarna eru 4 konur og 4 karlar í 8 efstu sæt- unum en umfram allt fólk sem er tilbúið að leggja allt sitt af mörkum fyrir Mos- fellinga,“ segir Haraldur. Í kvöld, fimmtudaginn 22. febrúar, mun kjör- nefnd leggja fram tillögu að listanum í heild sinni á aðalfundi Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Mosfellsbæ. Þá fara einn- ig fram aðalfundir Sjálfstæðisfélagsins og Viljans, félags ungra sjálfstæðismanna. 1. Haraldur Sverrisson 2. Ásgeir Sveinsson 3. Kolbrún Þorsteinsdóttir 4. Rúnar Bragi Guðlaugsson 5. Arna Hagalínsdóttir 6. Hafsteinn Pálsson 7. Helga Jóhannesdóttir 8. Kristín Ýr Pálmarsdóttir Efstu átta Bjóða bæjarbúum með í málefnavinnu Haraldur Sverrisson oddviti sjálf- stæðismanna hlaut afgerandi kosn- ingu í 1. sæti listans. Alls greiddu 663 atkvæði í prófkjör- inu. Haraldur fékk 545 atkvæði alls og þar af 423 í 1. sæti. „Ég er afar þakk- látur fyrir þann mikla stuðning sem ég fékk í próf- kjörinu. Það varð töluverð endurnýjun á listanum enda gáfu tveir bæjarfulltrúar ekki kost á sér í þetta skipti. Það gefur nýju fólki tækifæri og niðurstaðan, prófkjörið sjálft og dreifing atkvæða endur- speglar það. Mjótt var á mununum í mörg sæti. Niðurstaðan er góð fyrir Sjálfstæðisflokkinn og samfélagið okkar hér í Mosfellsbæ. Nú hefst málefnavinnan og við munum bjóða bæjarbúum þátttöku í því starfi. Með sterkan málefnagrundvöll og svona góðan hóp fólks er ég viss um að flokkurinn muni fá góðan hljóm- grunn í kosningunum í vor.“ Arna Hagalíns og Ásgeir Sveinsson gáfu bæði kost á sér í fyrsta skipti og náðu tilsettum árangri. „Ég er ómetanlega þakklát fyrir stuðninginn og hef óbilandi trú á Mosfellingum og bænum okk- ar,“ segir Arna. „Ég veit að mínir styrkleikar ásamt menntun minni, þekkingu og reynslu munu koma að góðu gagni í samhentum hópi bæjarstjórnar- fólks. Markmið mitt er hagur okkar allra.“ Ásgeir tekur í sama streng og segist mjög ánægður með þann frábæra stuðning sem hann fékk. „Ég hlakka til að vinna með þessu öfluga fólki á listanum og markmiðið er að sjálfsögðu að halda meirihluta áfram eftir kosningarnar í vor.“ Arna og Ásgeir ný á lista Helga, RúnaR BRagi, aRna, HaRalduR, ÁsgeiR, KolBRún og Hafsteinn. Á myndina vantaR KRistínu. Þann 3. mars heldur Stormsveitin sína árlegu tónleika í Hlégarði. „Yfirleitt höld- um við tónleika á þrettándanum en vegna þess að við tókum þátt í Kórum Íslands síðastliðið haust og gáfum svo út disk fyrir jól var lítill tími eftir til að æfa nýtt efni. Við ákváðum því að halda tónleikana í mars og erum með fulla dagskrá af nýju efni,“ segir Sigurður Hansson Stormsveitarforingi. „Tónleikarnir verða haldnir sama kvöld og lokakvöld undankeppni Eurovision. Húsið opnar kl. 19 og verður sýnt frá keppn- inni á stórum skjá. Þannig að þeir sem eiga miða á tónleikana geta mætt snemma, horft á keppnina og svo byrja tónleikarnir eftir að keppninni lýkur.“ Þetta verða okkar bestu tónleikar „Stebbi Jak úr Dimmu verður gesta- söngvari hjá okkur og Ingó úr Dimmu verður einnig með okkur þetta kvöld. Við verðum einnig með leynigest sem kemur og tekur nokkur lög með okkur. Dagskráin samanstendur af klassíku rokki í bland við skemmtilega útsett karlakórslög.“ „Kórin var stofnaður árið 2012 og ég myndi segja að við séum búnir að vera í stöðugri þróun síðan þá. Við höfum undan- farin tvö ár verið með flottan tónlistamann sem er að þjálfa okkur og sami kjarninn í kórnum. Ég fullyrði að þetta verða okkar bestu tónleikar, miðasala fer fram á tix.is,“ segir Siggi að lokum. K j a r n a , Þ v e r h o l t 2 S: 552 - 66 - 66 16.30 – 21.00 w w w . y a m . i s Lau, Sun 16.00 – 21.00 Y A M 2 7 0 M o s f e l l s b æ y a m @ y a m . i s Allur matur er eldaður eftir pöntun og því er enginn matur tilbúinn fyrirfram. Þar af leiðandi er alltaf allavega 10 mínútna bið eftir matnum stundum þegar mikið er að gera getur því biðin verið löng. Kíkið nýja matseðil á. w w w . y a m . i s Opnunartími good and delicious food THAI FOOD RESTAURANT Y A M THAI FOOD RESTAURANT vegan sjávarréttir glútenfrítt kjöt réttir ............. Bara opið á kvöldin núna ! Stormsveitin blæs til tónleika 3. mars - Fréttir úr Mosfellsbæ12 ERU FYRIR GRUNNSKÓLANEMENDUR OG FORELDRA/FORRÁÐAMENN ÞEIRRA miðvikudaginn 28. febrúar kl. 17:00-18:30 Kennarar og nemendur verða á staðnum og hægt verður að fá upplýsingar um kennsluhætti, skipulag námsins, brautir, skólaandann og fleira. Brautir sem eru í boði: • Framhaldsskólabraut • Félags- og hugvísindabraut • Náttúruvísindabraut • Opin stúdentsbraut - Almennt kjörsvið - Hestakjörsvið - Íþrótta- og lýðheilsukjörsvið - Listakjörsvið • Sérnámsbraut www.fmos.is Kennsluhættir skólans miða að því að undirbúa nemendur fyrir líf og starf á 21. öldinni. Í skólanum er öll aðstaða nemenda og kennara eins og hún gerist best. Verkefnastjóri vegna móttöku flóttafólks Eva Rós Ólafsdóttir félagsráðgjafi MA hefur verið ráðin sem verkefna- stjóri vegna móttöku flóttafólks. Áætlað er að hópurinn komi til Mosfellsbæjar 19. mars n.k. Eva Rós lauk starfsréttindum í félagsráðgjöf með MA prófi frá Háskóla Íslands árið 2013 og hefur starfað sem félagsráðgjafi hjá Fangelsismála- stofnun frá þeim tíma. Starf verkefnisstjóra er fólgið í því að hafa umsjón með móttöku flóttafólksins og þjónustu við það. Verkefnisstjórinn á náið samstarf við svið og stofnanir bæjarfélagsins, Rauða krossinn, velferðarráðu- neytið og aðra aðila innan og utan sveitarfélagsins. Og loks annast hann skipulagningu fræðslu og kynningar til flóttafólksins og þá sem að málum þess koma.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.