Ljósmæðrablaðið - 01.07.2017, Side 37
37Ljósmæðrablaðið - júlí 2017
frá ferðalögum, veðri og aðstæðum sem hafa áhrif á öryggi allra sem
koma að heilbrigðisþjónustunni. Hún vakti okkur til umhugsunar
um að virða fjölbreytt starf, sérhæfða þekkingu, styrk og reynslu
heilbrigðisstarfsmanna á landsbyggðinni.
Sigfríður Inga Karlsdóttir ljósmóðir og dósent við Háskólann á
Akureyri varði nýlega doktorsritgerð sína um reynslu og væntingar
kvenna til sársauka í fæðingu. Í erindi sínu fjallaði hún um mikilvægi
samskipta ljósmóður og verðandi foreldra á meðgöngu, um hvernig hún
getur aðstoðað konur við að undirbúa sig fyrir sársaukann til að takast
á við hann í fæðingunni. Áhersla á salutogenesis eða heilsueflandi
viðhorf var kenningargrunnur í doktorsrannsókninni og markmiðið var
að skoða þætti sem hafa áhrif á jákvæða upplifun af sársauka í fæðingu
en stuðningur maka skipti þar verulega máli.
Hugtakið og orðið meðvirkni er mikið notað í almennri umræðu
um samskipti fólks. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir leitaðist við að svara
spurningunni um hvað þetta fyrirbæri fæli í sér; að vera háður og virkur
með öðrum en sjálfum sér, ástand sem þróast til dæmis í fjölskyldum
þar sem ójafnvægi ríkir, fíknivandi og feluleikur væri til staðar. Í
erindinu sagði Anna Sigríður okkur frá jákvæðri merkingu orðsins
meðvirkni fyrir hvern og einn, það er hvernig orðið gæti þýtt það að
vera virkur með og standa með sjálfum sér sem væri sjálfsstyrkjandi og
hefði í för með sér vellíðan.
Að lokum - Lesley Page brýndi íslenskar ljósmæður til ábyrgðar,
að við ættum að vera pólítískar og reyna að hafa áhrif á stjórnvöld til
breytinga. Við ættum að vera fyrirmynd ásamt norrænum ljósmæðrum
í að efla mannlega barneignarþjónustu í heiminum sem virðir sjálfræði
barnshafandi kvenna og réttinn til að upplifa farsæla fæðingu. Hlustum
og nemum þessi orð -áfram ljósmæður um allan heim!
Ólöf Ásta Ólafsdóttir
Uppskeruhátíð vísindastarfs á Landspítala, Vísindi á vordögum,
var haldin 4. maí síðast liðinn. Sá ánægjulegi atburður gerðist að;
Ungur vísindamaður 2017 úr hópi fjölda ungra vísindamanna á
Landspítala var valin dr. Berglind Hálfdánsdóttir, ljósmóðir.
Berglind sem varð doktor í ljósmóðurfræði á síðasta
ári er lektor við námsbraut í ljósmóðurfræði og ljósmóðir
á Fæðingarvakt, þar sem hún sinnir líka verkefna- og
rannsóknarvinnu. Hún tekur þátt í samnorrænni rannsókn á
útkomu heimafæðinga og er þátttakandi í fjölþjóðlegri rannsókn
á tíðni inngripa í fæðingum og tengslum við útkomu fæðinga
í ólíkum löndum. Á Fæðingarvakt Landspítala leiðir Berglind
rannsókn um heilsufars- og áhættuflokkun í fæðingum en til
þessa klíníska rannsóknarverkefnis hlaut Berglind styrk frá
Landspítala.
Ljósmæðrablaðið óskar Berglindi innilega til hamingju.
Ungur vísindamaður
á Landspítala 2017
Berglind fékk blómvönd frá Ljósmæðrafélaginu á 5. maí ráð-
stefnunni, með henni á myndinni er Áslaug formaður og aðal-
fyrirlesarinn Lesley Page.