Mosfellingur - 02.02.2017, Blaðsíða 2
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
Í þá gömlu góðu...
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 23. febrúar
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn: (blaðamenn og ljósmyndarar)
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 4.000 eintök. Dreifing: Pósturinn.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Enn á ný mælist Mosfellsbær með ánægðustu íbúana samkvæmt
könnun Gallup. 97% aðspurðra
segjast ánægðir með Mosfellsbæ sem
stað til að búa á. Þetta eru
ótrúlegar tölur og auðvit-
að mjög ánægjulegar. En
hvar eru eiginlega þessi
þrjú prósent sem upp á
vantar. Á Facebook?
En án gríns, hvernig verður
þetta þegar hér
verður komið
yfirbyggt
knatt-
spyrnuhús, nýr golfskáli, heilsugæsla
allan sólarhringinn og nýir skólar í
hverju hverfi? Svo ég tali nú ekki um
þegar Afturelding verður Íslands-
meistari og frír bjór á Hvíta. Þá
hljótum við að nálgast 200 prósentin
á ánægjuvoginni. Ég hlakka til að
sprengja skalann.
Í blaðinu í dag birtum við einmitt fullt af myndum af ánægðum
Mosfellingum ef þið viljið sjá hvernig
þeir líta út. T.d. var nóg af skemmti-
legu fólki á Þorrablóti Aftureldingar,
á frumsýningu Skilaboðaskjóðunnar
og á glæsilegri opnun bílaumboðs í
Mosó. Njótið vel - Áfram Mosó!
Best að búa í Mosó
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
héðan og þaðan
- Frítt, frjálst og óháð bæjarblað2
UngIR MoSFELLIngaR Í FEnEYJUM 1983
Myndin er frá ferð Skólahljómsveitar Mosfellsbæj-
ar til Lignano á Ítalíu 12.-27. júlí 1983.
Textinn sem fylgir er úr samantekt sem þær
Guðný Hallgrímsdóttir og Jenný Jónsdóttir gerðu
um ferðina. Fjöldi ljósmynda er til frá ferðinni
sem Reynir Kristbjörnsson sá um að taka en þessa
mynd tók undirritaður á Markúsartorginu með San
Georgio eyjuna í baksýn.
Feneyjaferð fimmtudaginn 14. júlí. Brottferð frá
LUNU (gististað) kl. 12.30. Gott veður var í Feneyj-
um, ekki of heitt og ævintýri líkast að koma siglandi
inn í þessa fornu menningarmiðstöð alheimsins.
Er við komum inn á Markúsartorgið var þar norsk
lúðrasveit, sem spilaði í fullum herklæðum og mátti
sjá svitann renna. Síðan var Markúsarkirkjan
skoðuð, svo og Hertogahöllin. Eftir það var frjáls
tími til kl. 17.00. Þá hittumst við aftur og fórum í
draumaferð í gondóla.Sumir ræðararnir voru held-
ur en ekki í stuði því að þeir sungu af hjartans list
alla þá rómantísku Feneyjasöngva sem við báðum
þá að syngja. Seinna var farið að borða. Máltíðin
varð nokkuð lengri en áætlað var því að það gerði
hellidembu og á meðan sungum við og skemmtum
okkur. Síðan var haldið til baka til Lignano.
Aftar frá vinstri: Páll Hreinsson, Ólafur Grétarsson, Thelma Hermannsdóttir, Hrafnkell Kárason, Inga Rún Ólafsdóttir, Baldvin Snæland,
Guðjón Haraldsson, Steinunn Lárusdóttir, Hildigunnur Árnadóttir, Steingrímur Bragason, Guðný Hallgrímsdóttir, Þorbjörn Jóhannsson,
Arndís B. Linn, Harpa Birgisdóttir, Baldur Jónsson, Ragna Fróðadóttir, Reynir Kristbjörnsson, Lovísa Sigurðardóttir, Ásdís Káradóttir,
Ólafur Guðmundsson, Berglind Þráinsdóttir, Jóhann Sigurðsson, Dalla Jóhannsdóttir, Jóhannes Guðmundsson, Róbert Wessman,
Ómar Sævar Gíslason, Marteinn Þórsson, Jórunn Árnadóttir, Steinar Bjarni Sigvaldason.
Framar: Gondólaræðari, Erlingur Erlingsson, Tryggvi Sch. Thorsteinsson, Hjalti Skúlason, Ómar Ingþórsson, Bjarni Guðmundsson.