Mosfellingur - 23.02.2017, Blaðsíða 24

Mosfellingur - 23.02.2017, Blaðsíða 24
Katrínu Sif Jónsdóttur þekkja margir innan hárgreiðslu- og tískubrans-ans en hún er einn af eigendum Sprey hárstofu. Katrín starfar einnig við að greiða fyrirsætum fyrir tískusýningar og módelmyndatökur og hefur komið víða við bæði hér heima og erlendis. Það sem henni finnst mest heillandi við starfið er að geta skapað miðað við mis- munandi þarfir viðskiptavina sinna. Katrín Sif er fædd í Reykjavík þann 28. janúar 1988. Foreldrar hennar eru þau Emilía Helga Þórðardóttir þjónustufull- trúi hjá Happdrætti Háskóla Íslands og Jón Jósef Bjarnason ráðgjafi. Katrín á tvö systkini,­ þau Bjarka og Elísabetu Ýrr. Verklegu fögin skemmtilegust „Mér fannst frábært að alast upp í Mos- fellsbæ. Við bjuggum í Barrholtinu en þeg- ar ég var sex ára þá fluttum við til Svíþjóð- ar í tvö ár þar sem foreldrar mínir fóru í nám. Ég náði góðum tökum á sænskunni og eignaðist góða vini þarna sem ég er enn í sambandi við. Ég hóf nám í Varmárskóla eftir að við fluttum heim. Ég man að mér fannst mest gaman í öllum verklegu fögunum eins og heimilisfræði,­ myndmennt og handavinnu. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á listgrein- um og fór í Myndlistaskólann í Álafosskvos- inni. Þar fór ég líka á leirnámskeið. Ég lærði á þverflautu í Tónlistarskólanum í níu ár og sé enn eftir því í dag að hafa hætt en það er aldrei að vita nema maður byrji aftur einn daginn. Við krakkarnir í hverfinu lékum okkur mikið saman. Nokkrum sinnum héldum við systurnar og vinkonur mínar tónleika úti í garði,­ mamma poppaði og svo seldum við krökkunum inn. Þetta er ótrúlega skemmti- leg minning,­“ segir Katrín og brosir. Tók þátt í hárkeppnum erlendis Eftir útskrift úr Gaggó Mos fór Katrín í Fjölbrautaskólann í Breiðholti á félags- fræðibraut. „Ég áttaði mig fljótlega á því að ég átti engan veginn heima á bóklegu brautinni enda kom það í ljós. Ég fékk fall- einkunn eftir fyrsta árið. Ég sagði við foreldra mína að ég vildi fara í Iðnskólann í Reykjavík að læra hárgreiðslu og það varð úr. Á meðan ég var í skólanum tók ég þátt í hár- keppnum og lenti m.a. í þriðja sæti í alþjóðlegri hárgreiðslu- keppni á Englandi.“ Besta ákvörðun sem ég hef tekið „Þegar leið að útskrift fékk ég boð um að kaupa hlut í hárgreiðslustofu í Mosfellsbæ sem ég þáði. Sprey hárstofa opnaði síðan í byrjun árs 2009. Þetta er besta ákvörðun sem ég hef tekið. Það er dásamlegt að vera sjálfstæð- ur atvinnurekandi,­ ráða tíma sínum sjálfur og starfa við það sem maður elskar. Síðan hafa fleiri eigendur bæst í hópinn,­ Svava Björk og Dagný Ósk eiga stofuna með mér í dag og með okkur starfa fimm aðrar konur.“ Fá útrás fyrir sköpunargleðina Starfsfólk Sprey ásamt öðru fagfólki ger- ir hárlínur tvisvar á ári. „Við hittumst og búum til línurnar saman. Förðunarfræð- ingar,­ stílistar og ljósmyndarar hafa komið að þessu með okkur. Tilgangurinn er að fá útrás fyrir sköpunargleðina og láta hug- myndaflugið ráða. Ég hafði leitað lengi eftir að komast í tengsl við hárbransann erlendis og fékk eftir þriggja ára leit boð um að greiða á tískuviku í Prag. Nú hef ég farið tvisvar þangað,­ eins til Danmerkur og Parísar og er nú á leiðinni til Eistlands. Þessar tískuvikur gera manni kleift að fylgjast með nýjustu tískustraumunum og það er einstaklega gaman að hitta allt þetta fagfólk sem maður lærir svo margt af. Ég held úti lífsstílsbloggi,­ pigment.is,­ þar sem ég skrifa um ferðalög,­ tísku,­ matargerð og margt fleira.“ Dvöldu í mánuð í Asíu Kærasti Katrínar heitir Bárður Fannar Lúðvíksson og er frá Vogum á Vatnsleysu- strönd. Hann starfar hjá Granítsteinum í Hafnarfirði. Þau eiga litla sæta kisu,­ hana Mínu,­ en Bárður gaf Katrínu hana í afmæl- isgjöf. „Við Bárður stundum bæði snjóbretti og reynum að komast í fjöllin eins oft og mögulegt er. Eins finnst mér gaman að skella mér í köfun af og til en líkamsrækt stunda ég daglega. Við elskum að ferðast og skoða heim- inn og erum nýkomin frá Asíu þar sem við dvöldum í mánuð. Þar vorum við að kafa,­ „surfa“ og skoða okkur um. Það var gaman að hjóla í gegnum hrís- grjónaakrana og sjá hvað fólkið þarna er ótrúlega nægjusamt. Eitthvað sem við öll mættum kannski temja okkur,­“ segir Katrín að lokum er við kveðjumst. - Mosfellingurinn Katrín Sif Jónsdóttir24 Katrín Sif með kærastanum Bárði Fannari. MOSFELLINGURINN Eftir Ruth Örnólfsdóttur ruth@mosfellingur.is Myndir: Ruth Örnólfs og úr einkasafni. Þetta er besta ákvörðun sem ég hef tekið. Það er dásamlegt að vera sjálfstæður atvinnurekandi, ráða tíma sínum sjálfur og starfa við það sem maður elskar. Katrín Sif Jónsdóttir hársnyrtir á Sprey hárstofu fylgist vel með nýjustu tískustraumunum Að skapa gefur lífinu lit HIN HLIÐIN Hvað er besta ráð sem þú hefur nýtt þér? Ráð sem pabbi gaf mér fyrir nokkr- um árum. Það er að eiga alltaf fyrir því sem þú ætlar að kaupa, ég lifi eftir þessu. Fallegasti staður í Mosfellsbæ? Göngustígurinn meðfram sjónum. Þar finnst mér æðislegt að ganga, hlaupa eða hjóla. Ekkert eins dásamlegt eins og að horfa á útsýnið yfir Esjuna svo ég tali nú ekki um sólina þegar hún er að setjast og speglast í sjónum. Lýstu þér í þremur orðum? Brosmild, traust og lífsglöð. Hvernig slakar þú best á? Heima hjá mér uppi í sófa með tebolla og helst kveikt á kertum. Uppáhaldsmatur? Kjúklingur, myndi segja að eitt af því besta sem ég fæ er tortilla með kjúklingi og grænmeti. Hvaða freistingu stenst þú ekki? Nammi, ég er nammisjúk en kaupi þó ekki mikið af því. Áttu eitthvert gælunafn? Yfirleitt er ég kölluð Kata en vinir mínir kalla mig öðrum nöfnum eins og hárhvíslarinn og kötturinn. Pylsa eða pítsa? Pítsa, Hawaii ef ég fæ að ráða. systurnar með mömmu sinni með pabba á útskriftardaginn að módelast systkinin bjarki, katrín og elísabet ung að árum

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.