Mosfellingur - 10.03.2016, Blaðsíða 8
- Fréttir úr bæjarlífinu8
Páll Helgason, tónlistarmaður og kórstjóri,
lést laugardaginn 5. mars, á sjötugasta og
öðru aldursári. Páll var fæddur á Akureyri
23. október 1944.
Foreldrar hans voru Helgi Pálsson,
kaupmaður og bæjarfulltrúi, f. á Akureyri
14. ágúst 1896, d. 19. ágúst 1964, og Kristín
Pétursdóttir húsmóðir, f. 8. janúar 1900 á
Tjörn í Vindhælishreppi í Austur-Húna-
vatnssýslu, d. 5. desember 1989.
Páll spilaði á gítar og bassa m.a. með
hljómsveit Ingimars Eydal á hótel KEA.
Páll stundaði síðar nám við Tónlistarskóla
Mosfellshrepps undir stjórn Ólafs Vignis
Albertssonar og lauk þaðan 8. stigi í tón-
fræðum. Hann kenndi ennfremur tónlist
við Klébergsskóla og Ásgarðsskóla um
árabil.
Páll Helgason var valinn bæjarlistamaður
Mosfellsbæjar 2012.
Páll var afkastamikill í tónlistarlífi lands-
ins, þó mest í Mosfellsbæ, með þekktum
útsetningum fyrir kóra og kom að stofnun
fjölda kóra. Þar má nefna Álafosskórinn,
Mosfellskórinn, Vorboða – kór eldri borg-
ara í Mosfellsbæ, Landsvirkjunarkórinn og
Karlakór Kjalnesinga auk endurvakningu
kóra svo sem eins og Karlakórinn Svanir
á Akranesi og Karlakór Stefnis í Mosfells-
bæ. Einnig kom hann að fleiri kórum s.s.
stjórnandi Strætókórsins áður en hann
veiktist. Blómlegt söngstarf þrífst í öllum
þessum kórum í dag.
Páll söng í Karlakórnum Stefni undir
stjórn Lárusar heitins Sveinssonar um
nokkra hríð. Þá var hann organisti í Braut-
arholtskirkju, Saurbæjarkirkju og Reyni-
vallakirkju. Páll var félagi í Rótarýklúbbi
Mosfellssveitar.
Eftirlifandi eiginkona Páls er Bjarney S.
Einarsdóttir og eiga þau þrjú uppkomin
börn.
Andlát: Páll Helgason
tónlistarmaður og kórstjóri
Kærleiksvikan í Mosfellsbæ var haldin um miðjan febrúar. Ýmislegt skemmtilegt var á
dagskrá og bar þar hæst hátíðarstund í Kjarna. Þar var Skógræktarfélag Mosfellsbæjar
heiðrað fyrir öll þeirra góðu verk í þágu bæjarbúa. Fékk félagið afhenta glæsilega gjöf frá
handverkstæðinu Ásgarði.
Hátíðarstund í Kjarna í tilefni Kærleiksvikunnar í Mosó
Skógræktarfélagið
heiðrað í Kærleiksviku
glæsilegur gripur
afhentur í Kjarna
Fyrirtækið Himintjöld var stofnað í febrúar
2015 í kringum þá hugsjón að bjóða öllum
sem vilja, upp á að ferðast á einfaldan,
fljótlegan og umfram allt skemmtilegan
máta um náttúru Íslands.
Að fyrirtækinu standa Benedikt Þ. Sigur-
jónsson, Björn H. Sveinsson og Herdís K.
Sigurðardóttir. Lager og uppstillingar eru í
bílskúrsbili í Mosfellsbæ og er stefnan tek-
in á að fara í eigin húsnæði. „Það verður
mjög stórt skref fyrir okkar litla fyrirtæki
sem vonandi verður að veruleika fyrir
sumarið 2017,“ segir Herdís sem rak áður
hárgreiðslustofuna Sprey í Mosfellsbæ.
„Við stofnun fyrirtækisins var sú ákvörð-
un tekin að fá ekkert utanaðkomandi
fjármagn heldur vinna fyrirtækið upp frá
grunni, eitt skref í einu, á okkar eigin verð-
leikum og dugnaði. Ásamt því að vera alltaf
á höttunum eftir spennandi vörum sem
gera ferðalög um Ísland auðveldari.
Himintjöld flytur inn vörur frá Gordigear
í Ástralíu og BioLite í Bandaríkjunum og er
með þær til sölu og leigu. Þessi fyrirtæki
sérhæfa sig í framúrstefnulegum og fram-
úrskarandi ferðavörum.
Nánari upplýsingar um Himintjöld og
þeirra þjónustu og vörur er að finna á www.
himintjold.com.
Fyrirtækið Himintjöld vill bjóða upp á einfaldan ferðamáta
Flytja inn vörur sem
henta íslenskri náttúru
BenediKt, herdís
og Björn
Starf við stuðning
inn á heimili
VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja
Fjölskyldusvið Mosfellsbæjar óskar eftir starfsmanni í hluta-
starf til að annast stuðning inn á heimili í Mosfellsbæ. Um er
að ræða stuðning við unga fatlaða stúlku og fjölskyldu hennar.
Hlý, hress og drífandi manneskja óskast til að aðstoða með börn og bú.
Við erum fjögurra manna fjölskylda og hundur sem búum í Mosfells-
bæ. Eldri stelpan okkar er 6 ára og stundar hún nám í grunnskóla
í Mosfellsbæ. Yngri stelpan okkar er í leikskóla í Reykjavík. Hún er
greind með CP, samþætta sjón-og heyrnarskerðingu og þroska-
hömlun.Húnþarfaðstoðviðflestallarathafnirdaglegslífs.
Starfiðfelstíþvíaðsækjaíleikskóla/skóla,almennheimilisstörfog
liðveisla fyrir yngra barnið. Einnig væri frábært ef foreldrar gætu
annað slagið brugðið sér af bæ og gert sér dagamun. Viðkomandi þarf
að hafa bílpróf og bíl til umráða. Íslenskukunnátta er skilyrði.
Fjöldi vinnustunda eru a.m.k. 80 klst. í mánuði. Mikilvægt er að
viðkomandibúiyfirlipurðímannlegumsamskiptum,sveigjanleika,
stundvísi og áreiðanleika
Á heimili okkar í Mosfellsbæ erum við með 80 m2 íbúð á neðri hæð
sem er með sérinngangi og lokað er á milli hæða. Til greina kemur
fyrir áhugasama að leigja þá íbúð á hagstæðum kjörum.
Umsóknarfrestur er til 14.mars nk. Umsókn, ferilskrá
oglistiyfirmeðmælendur(tveiraðlágmarki)
skal senda á karen@festi.is.