Mosfellingur - 23.06.2016, Qupperneq 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ64
HelgiHald næstu vikna
sunnudagur 26. júní
Guðsþjónusta í Mosfellskirkju kl. 11:00
Núvitund og hugleiðsla
Rut G. Magnúsdóttir, djákni
allar upplýsingar um helgihald
lágafellssóknar sumarið 2016 er
að finna á heimasíðu kirkjunnar
www.lagafellskirkja.is
Lokun Álafossvegar
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar hefur
ákveðið að loka Álafossvegi varan-
lega við bílastæði Álafossvegar 33.
Breytingin tekur gildi í júlí. Mikill
meirihluti íbúa og rekstraraðila
óskaði eftir breytingunni en gerð
var tilraun með hana síðasta sumar.
Þeir sem leið eiga um Álafosskvos-
ina þurfa því að hafa það hugfast
að ekki verður lengur mögulegt
að keyra í gegnum hana. Akstur í
neyðartilvikum verður leyfður s.s.
akstur sjúkra- og slökkvibíla.
Ragnheiður Ríkharðs
gefur ekki kost á sér
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokksins,
hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir
næstu Alþingiskosningar. Ragn-
heiður er annar
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins
í Suðvesturkjör-
dæmi, næst á eftir
Bjarna Benedikts-
syni, formanni
flokksins.
Hún var fyrst
kjörin á þing árið 2007 og var í öðru
sæti á lista flokksins í kraganum.
Áður hafði Ragnheiður verið
bæjarstjóri í Mosfellsbæ á árunum
2002-2007. Ragnheiður tilkynnti
um ákvörðun sína á Facebook og
bætti við: „Ég hef verið svo lánsöm
að kynnast góðu og skemmtilegu
fólki í þessu starfi og fyrir það er ég
óendanlega þakklát. Bestu þakkir
fyrir hvatninguna og stuðninginn.“
NÝ
JA
R
VÖ
RU
R
PAKKAR
SKEMMTILEGRI
LEGO PLAYMO SUMARVÖRURFÓTBOLTAMYNDIR
Við höfum aukið leikfangaúrvalið á pósthúsinu
svo nú er það stútfullt af skemmtilegheitum.
Þú finnur pakkann hjá okkur.
Pósthúsið , .
Opið virka daga kl. 9–
Leiksvæðið við Víðiteig hefur nú verið endurnýjað með nýjum
áherslum. Það hefur tekið á sig nýja mynd og hentar sem leiksvæði
fyrir börn og fullorðna á öllum aldri.
Umhverfið og leiktæki eru náttúruleg en á svæðinu leynist vina-
leg slanga og bústinn froskur. Mikið er um falleg tré og blómstrandi
runna og marglit fuglahús. Nýja leiksvæðið að Völuteig er tilvalin
staður til að setjast niður með nesti og njóta umhverfisins með
allri fjölskyldunni.
endurnýjað leiksvæði í Víðiteig
Fyrir um ári síðan ákváðu fjórir strákar
úr Mosó að reyna að komast inn í BMX
sumarbúðir til Bandaríkjanna. Þetta eru
þeir Guðgeir, Hlynur, Kristján og Tjörvi.
Fóru þeir af stað með söfnun og gengu
í hús í Mosfellsbæ. Þeir söfnuðu dósum,
seldu klósettpappír og sælgæti.
Ferðin varð svo að veruleika strax eftir
skólaslitin í vor. Flogið var til New York og
þaðan farið til Woodward í Pennsylvaníu.
Í Woodward er aðstaða til BMX iðkunar
eins og best verður á kosið. Strákarnir fengu
góða kennslu, eignuðust fullt af nýjum vin-
um og nutu lífsins í botn. Þeir vilja koma á
framfæri kærum þökkum til allra Mosfell-
inga sem tóku vel á móti þeim í vetur, keyptu
af þeim varning eða gáfu dósir. Og auðvitað
þeim sem styrktu með öðrum hætti.
Um leið vilja þeir skora á bæjarstjórn
Mosfellsbæjar að setja upp góða aðstöðu í
bænum til BMX iðkunar.
Öryggisúrbætur
við Tunguveg
Þverun fyrir gangandi og hjólandi
yfir Tunguveg verður útfærð á næstu
dögum/vikum. Úrbæturnar fela
í sér upphækkaða gönguþverun
með merkingum
beggja vegna þar
sem ökumenn
um Tunguveg
eiga að hægja á
sér. Gerður verður
göngustígur yfir
Tunguveg og
reiðstíga við hliðina sem tengir
saman stíg neðan Laxatungu við
nýtt hjólreiðastæði sunnan Tungu-
bakka. Úrbæturnar eiga að auka
öryggi þeirra barna sem hjóla út á
Tungubakka og nýja hjólreiðastæðið
á að koma í veg fyrir að börnin þurfi
að skilja hjólin eftir á reiðstígnum
sem liggur meðfram Tungubökkum.
Fjórir forfallnir BMX hjólastrákar úr Mosfellsbæ létu draum sinn rætast
söfnuðu sér fyrir sumar-
búðum í Bandaríkjunum
ungir og efnilegir
mosfellingar
fjör allan
hringinn
Strákarnir í Team Cintamani
létu sér ekki leiðast á hringferð
sinni um landið þegar þeir
tóku þátt í WOW Cyclothon.
Gítarinn var með í för og
tónleikar haldnir við hvert
tækifæri. Team Cintamani er
fjölþrautahópur sem hjólar,
hleypur, syndir og fer á göngu-
skíði. Þetta er í fyrsta skipti
sem þeir taka þá cyclothoninu
og dugði ekkert minna en
gamla Spaugstofurútan undir
mannskapinn. Fleiri lið úr
höfuðstöðvum World Class í
Mosfellsbæ tóku þátt í en Team
Spinnigal sigraði í kvenna-
flokki og Team UMFUS/Skoda
lenti í öðru sæti í karlaflokki.
Bragi leiðir sönginn
í upphafi ferðar