Mosfellingur - 23.06.2016, Side 14
Grilltímabilið stendur nú sem hæst og eflaust margir farnir að
grilla í tíma og ótíma. Ef þig langar í alvöru áskorun ættir þú að
prófa að matreiða svínarif. Hér kemur ein skotheld aðferð.
Hráefni
• Svínarif, ca. 600 – 700 g á mann
(það er ekki mikið kjöt á milli rifjanna).
• Uppáhalds þurrkryddið/kryddblandan ykkar.
• Uppáhalds BBQ sósan ykkar.
• Regla númer eitt: Ekki sjóða rifin! Eldun á rifjum er tímafrek því
það tekur kjötið langan tíma að meyrna og verða almennilegt.
• Regla númer tvö: Hitinn má aldrei fara yfir 110 gráður
meðan kjötið er eldað.
Aðferð
Þurrkryddið rifin með því að nudda kryddinu vel inn í kjötið. Látið
standa í nokkra klukkutíma eða jafnvel yfir nótt í ísskáp. Þegar kjötið
hefur tekið vel af bragði úr kryddinu eru rifin sett í ofn við ca. 100
– 110°C í 2 – 3 klst. Tíminn fer eftir þykktinni á bitunum, ef rifin eru
þykk eru þau elduð lengur.
Áður en rifin eru tekin úr ofninum er grillið gert tilbúið. Rifin eru
elduð við óbeinan hita sem þýðir að þau mega ekki vera beint yfir
hitanum. Ef þið eruð með kolagrill þá er
kolunum ýtt til annarrar hliðarinnar og rifin
höfð á grindinni hinum megin. Ef þið eruð
með gasgrill þá er kveikt á einum brennara
yst og rifin höfð hinum megin á grillfletinum. Fyllið eldfast ílát með
vatni, skál eða fat, og setjið yfir hitann. Þegar vatnið gufar upp mun
það halda raka í kjötinu. Prófið ykkur áfram með hitamæli og náið
ca. 100° C inni í grillinu áður en rifin eru sett á.
Rifin eiga að grillast við óbeinan hita í ca. klukkustund.
Þegar kjötið hefur verið á grillinu í um klukkustund er kynt vel
undir því fyrir lokasprettinn. Ef þið eruð með gasgrill þá kveikið þið
á brennurunum sem eru undir kjötinu, ef þið eruð með kolagrill
þá dreifið þið úr kolunum. Penslið rifin með BBQ sósunni, snúið
og penslið hinum megin. Endurtakið þetta 2 – 3 sinnum þannig að
falleg áferð komi á rifin af sósunni.
Uppskrift sem svínvirkar • Gefðu þér góðan tíma við grillið • Fátt betra á fallegu sumarkvöldi
Grilluð svínarif eru lostæti Matarhorn
Mosfellings
Tilvalið að skola rifjunum niður ísköldu öli.
- Kvennahlaupið í Mosfellsbæ14
Svínarif
á grillið
Svipmyndir úr
kvennahlaupinu