Mosfellingur - 10.11.2016, Side 14
- Dreift frítt í Mosfellsbæ, Kjalarnes og Kjós14
Bókasafn Mosfellsbæjar
Bókmennta
hlaðborðið 2016
Nú er orðið ljóst hverjir koma fram á
Bókmenntahlaðborði Bókasafnsins sem
verður þriðjudaginn 15. nóvember kl.
20-22.
Þeir höfundar sem kynna bækur sínar
að þessu sinni eru: Ragnar Jónasson
með bók sína Drunga, Sigríður Hagalín
Björnsdóttir með Eyland, Steinunn
Sigurðardóttir með Bæinn þar sem birtan
er, Vigdís Grímsdóttir með Elsku Drauma
mín og Þórarinn Eldjárn með Þætti af
séra Þórarinum og fleiri sögur. Katrín
Jakobsdóttir bókmenntafræðingur stýrir
umræðum eins og undanfarin ár.
Á undan dagskránni kl. 19:30 leika
Laufey Sigurðardóttir á fiðlu og Páll
Eyjólfsson á gítar.
Að vanda verða kertaljós og veitingar
að hætti bókasafnsins - sem sagt algjör
veisla.
Listasalur Mosfellsbæjar
NÁTTÚRA
Ný sýning var opnuð í Listasal Mosfells-
bæjar á laugardaginn var. Sýningin heitir
NÁTTÚRA og er það Árni Rúnar Sveinsson
sem sýnir okkur olíumálverk sem hann
hefur unnið út frá náttúrunni.
Um verkin segir í sýningarskrá: ,,Árni
er undir sterkum áhrifum frá litbrigðum
og formum frumgróðurs jarðar. Á löngum
göngum um hálendi Íslands hafa sprottið
þessar hugmyndir að svo sérstæðum
málverkum Árna...
Myndirnar vekja hughrif sem minna
á gönguferð um eyðilendur þar sem
litir og form raðast í ákveðna hrynjandi
í myndrýminu. Áhorfandinn finnur
næstum áþreifanlega fyrir því hvert
förinni er heitið. Handan við grágrænan
ásinn er kannski skær birta, sólgulir
blettir í brekku og bergvatn við gljáðan
klettavegg.“
Árni lærði myndlist m.a. við Myndlista-
og handíðaskóla Íslands og Myndlist-
arskóla Reykjavíkur og hélt sína fyrstu
einkasýningu 1989.
Sýning Árna Rúnars er opin á af-
greiðslutíma Bókasafnsins og stendur til
3. desember.
árni rúnar úti
í náttúrunni
sýningaropnun
myndaröðin náttúra
árni rúnar (t.h.)
á spjalli við sýningargest
HÁHOLTI 14
SÍMI 586 1210
Eigum til takmarkað
magn af vinsælu borðspilunum
CATAN og CARCASSONNE.
Einnig framhaldsspil fyrir þessi ásamt
fjölda annara spila.
Verð frá kr. 1.990,-
Í tilefni alþingiskosninganna 29. október
var kosningaþema hjá nemendum í 5. bekk
Varmárskóla.
Líkt var sem mest eftir hefðbundnum
kosningum. Nemendur skráðu niður hverju
þyrfti að breyta í skólanum og nánasta um-
hverfi. Svo leituðu þeir að einhverjum sem
studdi skoðanir þeirra og fengu þá til að
stofna með sér flokk um málefnin.
Því næst var farið með lista frambjóð-
enda til kjörstjórnar sem skipuð var 8 nem-
endum ásamt formanni kjörstjórnar, sem
sáu um að skrá flokkinn niður og úthluta
flokkunum listabókstaf. Í kjölfarið útbjuggu
frambjóðendur ásamt stuðningsmönnum
auglýsingar og spjölluðu við aðra nemend-
ur í von um að fá þá til að styðja sig.
Alvöru stefnumál
Þá var gengið til kosninga. Nemendur
mynduðu röð að kjördeildinni þar sem
þeim var hleypt inn eftir fyrirfram ákveðnu
skipulagi. Þar tóku starfsmenn kjörstjórnar
á móti þeim og kannað var hvort viðkom-
andi væri á kjörskrá. Því næst fékk hann
afhentan kjörseðil sem kjörstjórn útbjó og
kjósandinn fór í kjörklefa þar sem hann
merkti við þann flokk sem honum hugn-
aðist best og skilaði svo kjörseðlinum í
kjörkassann.
Kjörstjórnin skipaði 10 manna hóp taln-
ingarmanna sem töldu atkvæðin vel og
örugglega. Að lokum voru úrslitin birt.
Það var eftirtektarvert hversu áhuga-
samir nemendur voru um allt ferlið og hve
mikil alvara var í stefnumálunum en þar
má nefna að stytta skóladaginn til kl. 13:30,
lækka verð, sömu laun fyrir sömu vinnu,
útrýma einelti, útrýma fátækt og styðja við
velferð dýra.
Kosningar hjá 5. bekkingum
kosningabaráttan
í undirbúningi
á kjörstað
Skólakór Varmárskóla
Jólasveinar koma í heimsókn
Komið og
syngið með
jólasveinunum
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar spilar, leikskólabörn aðstoða bæjarstjóra við að kveikja á jólatrénu og Skólakór Varmárskóla syngur.
Gera má ráð fyrir að einhverjir jólasveinanna muni koma ofan úr Esju þennan dag til að dansa í kringum tréð með börnunum.
Eftir að dansað hefur verið í kringum jólatréð verður haldið inn í Kjarna þar sem Kammerkór Mosfellsbæjar mun syngja lög og
stýra fjöldasöng ásamt strengjasveit Listaskólans. Félagar úr knattspyrnudeild Aftureldingar sjá um kakó-, kaffi- og vöfflusölu.
Skólahljómsve
it Mosfellsbæja
r
Ljósin tendruð
á Jólatré
MoSfellSbæJar
laugardaginn 26. nóvember kl. 16 á Miðbæjartorginu