Mosfellingur - 10.11.2016, Síða 20
- Fréttir af fólki20
Daginn eftir Landsmót skáta, sunnudaginn
24. júlí, lögðu 17 dróttskátar og foringjar
þeirra úr skátafélaginu Mosverjum og
skátafélaginu Stíganda frá Búðardal af stað
til Mónakó til að taka þátt í smáþjóðaleik-
um skáta, Euro Mini Jam.
Euro Mini Jam er skátamót þar sem
skátar frá löndum þar sem fólksfjöldi er
undir einni milljón, koma saman á. Að
þessu sinni tóku Færeyjar, Ísland, Kýpur,
Lichtenstein, Mónakó og Svartfjallaland
þátt í mótinu.
Engin tjaldsvæði í Mónakó
Gist var í almenningsgarði á meðan mót-
inu stóð því ekki eru til opin svæði í land-
inu, né tjaldsvæði, enda óheimilt að gista
í tjöldum í landinu. En skátarnir fengu að
sjálfsögðu undanþágu frá því, það eru bara
engin tjaldsvæði í Mónakó. Ýmsar skáta-
þrautir voru unnar í alþjóðlegum hópum
sem gaf skátunum tækifæri á að kynnast
hver öðrum betur.
„Eftir mótið á ég vini alls staðar að úr
Evrópu sem ég mun vonandi hitta aftur á
skátamótum í framtíðinni,“ segir Hrafnhild-
ur Oddný sem var ein þátttakendanna.
Selfie með prinsinum í Mónakó
Sem dæmi um þá skemmtilegu og fjöl-
breyttu dagskrá sem krakkarnir tóku þátt í
var að fara í háloftabraut í Ölpunum, gera
eldflaugar úr plastflöskum, fara í river-
rafting, snorkla í sjónum og skoða Monte
Carlo kastalann, borgina Mónakó, sjávar-
dýrasafn og margt, margt fleira.
„Mér fannst skemmtilegast þegar við
fórum í sólarhrings göngu í ítölsku Ölpun-
um og sváfum þar eina nótt í tjaldi, ég hef
aldrei séð jafn fallegt útsýni,“ segir Ísak.
„Það var líka mjög gaman að fá að hitta
prinsinn af Mónakó. Ég fékk meira að segja
selfie með honum,“ bætir Theódór við.
Pokemon-GO vinsælt
Þó að lítið hafi verið verslað í ferðinni
nýttu krakkarnir tækifærið og gæddu sér á
Starbucks og McDonalds. Svo má auðvitað
ekki gleyma Pokemon-GO sem var mjög
vinsælt meðal þátttakenda á mótinu.
Eftir skemmtilega og sólríka dvöl lauk
mótinu 30. júlí og héldu krakkarnir heim-
leiðis, ánægðir með skemmtilega ferð.
Skátafélagið fór í ævintýralega ferð til Mónakó í sumar
Mosverjar á Euro
Mini Jam 2016
kvöldvaka
í húsahverfi river rafting
eldflaugarskotsnorklað
tjaldað í skrúðgarði
hópurinn með prins
albert af mónakó
Kvenfélagskonur úr Kjósinni komu færandi
hendi í Reykjadal um síðustu helgi. Þá af-
hentu þær glænýja þvottavél að gjöf sem
hefur bráðvantað á staðinn.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra rekur
sumar- og helgardvalarstað í Reykjadal fyrir
fötluð börn og ungmenni. Árlega dveljast
þar um 250 börn á aldrinum 8-21 árs.
Konurnar í Kvenfélagi Kjósarhrepps hafa
dáðst af starfinu sem fram fer í Reykjadal
og ákvaðu því að styrkja starfsemina að
þessu sinni.
Hjartastuðtæki til Kjósarhrepps
Á haustdögum færðu þær einnig Kjós-
arhreppi tvö hjartastuðtæki en lengi hefur
staðið til að eiga slík tæki í sveitinni. Kjósar-
hreppur mun mun festa kaup á þriðja tæk-
inu og ákveða í framhaldinu staðsetningu
tækjanna í samvinnu við fagaðila.
Í kvenfélagi Kjósarhrepps eru 18 öflugar
konur sem með krafti sínum hafa stutt við
verðug verkefni í samfélaginu. Þær halda
árlegt þorrablót, selja kaffi á Kátt í Kjós og
á jólamarkaði, standa fyrir kosningakaffi og
ýmsum viðburðum sem falla til.
Síðasta árið hefur kvenfélagið gefið á aðra
milljón til ýmissa góðra málefna og vilja þær
koma á framfæri sérstökum þökkum til allra
þeirra sem hafa stutt við félagið.
Kvenfélag Kjósarhrepps lætur gott af sér leiða • Styðja við verðug verkefni í samfélaginu
Komu færandi hendi í Reykjadal
kvenfélagskonur afhenda margréti
völu forstöðumanni reykjadals gjöfina
MOSfellingur
...fylgstu med
okkur á facebook