Mosfellingur - 10.11.2016, Qupperneq 36
Agnes Heiða kom í heiminn mánu-
daginn 17. október. Hún var 3.150 g
og 50 cm á lengd. Foreldrar hennar
eru Hafþór Finnbogason og Ólöf Ósk
Guðmundsdóttir, Miðdal í Kjós.
Tandoori kjúklingur og Naan brauð
Í eldhúsinu
Björk Ingadóttir og Valgarð
Már Jakobsson deila með
okkur uppskrift að þessu
sinni en þau eru bæði kenn-
arar við Framhaldsskólann í
Mosfellsbæ.
Kryddlögur
• 2 kúfaðar matskeiðar af
Tandoori Masala
• 1 bolli grísk jógúrt
• 1 hvítlauksrif pressað
• ½ laukur fínsaxaður
• safi úr ½ lime ávexti
Hrærið kryddlöginn saman og skerið þrjár
kjúklingabringur niður í munnbita. Gott er að
láta liggja í leginum í fjóra klukkutíma, þótt
klukkutími nægi alveg. Kjúklingabitarnir eru
svo steiktir á pönnu eða grillaðir, gætið þess
að skafa vel af bitunum svo þeir brenni ekki.
Naan brauð
• 1,5 dl fingurheitt vatn
• 2 tsk sykur
• 2 tsk þurrger
• 4 dl hveiti
• 0,5 tsk salt
• 2 msk brætt
smjör
• 2 msk grísk
jógúrt
Hrærið saman
geri, vatni og
sykri. Leggið visk-
astykki yfir skál-
ina og látið standa
í 10 mínútur.
Bætið hveiti, salti, smjöri og jógúrt saman
við og hnoðið saman í deig. Leggið viska-
stykki yfir skálina og látið deigið hefast í 30
mínútur.
Skiptið deiginu í jafna hluta og mótið flat-
brauð með fingurgómunum. Steikið brauðið
á miðlungshita í 3-4 mínútur áður en því er
snúið við og steikt áfram í 2-3 mínútur.
Borið fram með hrísgrjónum, fersku salati
og jógúrtsósu.
Sumar-
minningar
Núna svona þegar nóvember er gengin
n
í garð og dagarnir farnir að styttast all
-
verulega verður manni stundum hugs
að
til sumarsins. Sumarsins sem var svo
voðalega gott og hlýtt bæði hér á Íslan
di
og erlendis. Í sumar varði ég rúmum
þremur vikum í fjórum mismunandi
Evrópulöndum. Það var að vísu í tveim
ur
ólíkum ferðum, þar sem ég fór fyrst
með fimleikahópnum mínum til Ítalíu
og síðar með fjölskyldunni til Ungverj
a-
lands og ferðaðist þaðan til Austurríki
s
og Slóvakíu.
Ég hugsa að ég muni seint gleyma
því hvernig móttökurnar voru á Ítalíu
,
þegar hópur af fimleikastelpum steig
út úr rútunni um miðja nótt fyrir utan
strandhótelið okkar. Það hafði greinil
ega
verið einhver hátíð í gangi á ströndinn
i
því það var fólk alls staðar! Þjálfar-
inn sagði okkur að ganga saman í hóp
í gegnum mannþröngina svo engin
myndi týnast úr hópnum og það var sv
o
sannarlega þörf á því. Hróp, köll, blíst
ur
og læti fylgdu okkur alla leiðina upp a
ð
hóteldyrunum og þótt við hefðum ver
ið
varaðar við ágengni ítalskra karlmann
a
var okkur samt brugðið. Vorum við þv
í
flestar sammála um það að okkur líka
ði
betur við hegðun íslenskra karlmanna
.
Sérstaklega eftir að við fórum í vatns-
rennibrautagarð og hittum þar ítalska
drengi sem báðu okkur margsinnis um
að koma með þeim inn á salernið og
„fare un bambino“ eða „make a baby“
eins og googlið sagði okkur...
Já, móttökurnar voru nú ekki eins í
Ungverjalandi, Austurríki eða Slóvakí
u
þar sem ég var með kærastanum, ömm
u
minni og bróður. Hefði mér þó þótt þa
ð
afskaplega fyndið ef ungversku karl-
mennirnir hefðu tekið upp á því að fla
uta
á eftir tæplega sextugri lesbískri ömm
u
minni.
En þetta var náttúrlega alls ekki það
sem ég ætlaði að skrifa um í þessum
pistli, um móttökur karlmanna í öðru
m
löndum, já nei nei. Aðalatriðið var nú
bara að ræða um þá þáþrá til sumarsin
s
og hinn yfirvofandi íslenska vetur, en
það
verður að bíða betri tíma og þakka ég
fyrir mig í bili.
Þar til næst.
Móey pála
hjá björk og valla
- Heyrst hefur...36
Björk og Valli skora á Björgu Magg og Örn Hennings að deila með okkur næstu uppskrift
Sendið okkur myndir af nýjum sveit-
ungum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Nýir Kjósverjar
Þessa fallegu haustmynd tók Raggi Óla ljósmyndari Mosfellings á dögunum.
Úlfarsfellið skartar sínu fegursta og speglast svona fallega í vatninu.
Spegilslétt fjallasýn
Heyrst Hefur...
...að búið sé að loka Kaffihúsinu
á Álafossi.
...að reynir schmidt hafi átt
stórafmæli á dögunum.
...að Bryndís Haralds hafi flogið inn
á þing og sé þar með eini Mosfell-
ingurinn sem sinna mun því starfi á
næstunni.
...að Mosfellingurinn Kjartan
reinholds sé sestur tímabundið í stól
framkvæmdastjóra Aftureldingar.
...að Katrín Jakobs muni stjórna bók-
menntahlaðborðinu í Bókasafninu
þriðjudaginn 15. nóvember.
...að laun bæjarstjórnar Mosfellsbæjar
og nefndarmanna eru reiknuð út frá
þingfararkaupi og munu því hækka
um góða summu eftir umdeilda
ákvörðun kjararáðs.
...að Lúlla á Ökrum hafi fagnað
sextugsafmæli sínu um síðustu helgi.
...að Apótekarinn í Kjarna ætli að
bjóða viðskiptavinum sínum á leik
Aftureldingar og Hauka á sunnu-
daginn.
...að hinn vinsæli basar félagsstarfs
eldri borgara verði haldinn laugar-
daginn 19. nóvember.
...að búið sé að ráða Loga Bergmann
sem veislustjóra á Þorrablót Aftur-
eldingar sem fram fer 21. janúar.
...að systkinin KK og ellen ætli að
vera með jólatónleika í Hlégarði um
miðjan desember.
...að skilanefnd Kaupfélagsins sé búin
að setja fasteignir félagsins í Háholti
á almenna sölu.
...að uppi séu hugmyndir um að stofna
hjólreiðadeild innan Aftureldingar.
...að Bjartmar Guðlaugs verði með
upplestur og söng á aðventukvöldi
samfylkingarinnar 24. nóvember.
...að það verði boðið upp á blóðsykur-
smælingu í Krónunni 17. nóv kl. 17-19
á vegum Lionsklúbbanna í Mosó.
...að Andrea Gunnars hafi haldið upp á
fimmtugsafmæli sitt um síðust helgi.
...að Alli rúts sé að selja Hótel Laxnes.
...að Gústav og Guðrún séu að byggja
við hliðina á Jóni Baldvini og
Bryndísi schram.
...að Afturelding hafi dregist gegn Ír í
Coca Cola bikarnum í handbolta.
...að eldhúspartý fM957 verði haldið
í Hlégarði fimmtudagana 17. og
24. nóvember.
...að Heilsueflandi samfélag sé búið
að fá handboltakappann Loga
Geirs til að halda fyrirlestur í fMOs
næstkomandi miðvikudag.
...að Greta salóme verði þrítug
á morgun.
...að stelpurnar í handboltanum séu
komnar í 8-liða úrslit í bikarnum.
...að 8villtir haldi sína árlegu
hrossakjötsveislu í Harðarbóli
á laugardaginn.
...að Davíð Gunnlaugs sé tekinn við
sem nýr íþróttastjóri GM
mosfellingur@mosfellingur.is