Mosfellingur - 08.01.2015, Blaðsíða 6
Jóhanna Elísa Svendsen Engelhartsdóttir
snéri við blaðinu á árinu 2014. Jóhanna
skráði sig í raunveruleikaþáttinn The Bigg-
est Loser Ísland sem sýndur er á Skjá einum
og stóð uppi sem sigurvegari.
Hún léttist um rúm 52 kg á meðan á þátt-
unum stóð. Mosfellingar sátu límdir fyrir
framan sjónvarpsskjáinn og hvöttu sína
konu til dáða.
Viðburðaríkt ár að baki
„Takk kærlega fyrir, ég átti engan veginn
von á þessu. Þetta er mjög ánægjulegt og
mikill heiður,“ segir Jóhanna þegar henni
var tilkynnt um valið á Mosfellingi ársins.
„Það hefur orðið kúvending í mínu lífi
og árið 2014 var vægast sagt viðburða-
ríkt. Ég fór að hugsa um sjálfa mig og
setti mig í fyrsta sætið. Ég hugsaði mig
ekki tvisvar um þegar ég skráði mig
í The Biggest Loser. Þetta var það
sem ég var búin að bíða eftir
og frá upphafi ætlaði ég mér
að vinna þetta. Ég var orðin
þreytt á sjálfri mér.“
Jóhanna var frá vinnu
og fjölskyldu í 10 vikur
meðan á tökum stóð á
heilsuhótelinu á Ásbrú.
„Ég þurfti virkilega að
núllstilla mig og hafði
mjög gott af því.“
Verður einkaþjálfari
Jóhanna stóð uppi
sem sigurvegari og léttist
um rúm 52 kg og hafði lést
um 12 kg áður en þættirnir
hófust. Alls voru þetta því 64 kg
sem fuku á þessum tíma. Jóhann
hefur haldið sér vel við eftir að
þáttunum lauk og hugar vel að
heilsunni. Hún stundar nám
við Keili og stefnir að því að út-
skrifast þaðan sem einkaþjálfari
í vor.
„Nú er það bara næsta skref, að
hjálpa öðrum. Yfirþyngd er stórt
vandamál og margir sem þurfa
á hjálp að halda. Ég er full af
hugmyndum og hlakka
til að hefjast handa.“
Hlakkar til að vera áhorfandi
Jóhanna er orðin meðvit-
aðri um hreyfingu almennt og
er skíðaíþróttin orðin nýjasta
fjölskylduáhugamálið. „Þetta á
ekki að snúast um öfga, þá gefst
maður upp. Ég hef náð mestum
árangri með því að borða eðli-
lega,“ segir Jóhanna að lokum og
hlakkar til að vera áhorfandi að
næstu þáttaröð af Biggest Loser
sem hefst eftir tvær vikur.
Eldri borgarar
Þjónustumiðstöðin
Eirhömrum
Framundan janúar
námskeið í Grettissögu
Eins og áður hefur komið fram er fyrir-
hugað námskeið í Grettissögu á vegum
Menningar- og skemmtinefndar FaMos.
Náist lágmarksþátttaka mun námskeiðið
hefjast þriðjudaginn 13. janúar 2015 og
standa yfir næstu fimm þriðjudaga kl.
17:00 – 19:00 og lýkur þá þriðjudaginn
10. febrúar.
Formleg námskeiðslok felast svo í ferð á
söguslóðir í Skagafirði fyrripartinn í júní.
Þar sem þetta er nokkuð löng leið er gert
ráð fyrir gistingu eina nótt á Sauðárkróki.
Námskeiðsgjald verður kr. 8.500 á
þátttakanda, en þá er reiknað með 25
þátttakendum að lágmarki. Ef ekki næst
sá þátttakendafjöldi er vandséð að af
námskeiðinu geti orðið.
Innifalið í þátttökugjaldinu er fimm daga
námskeið og leiðsögn í tvo daga um
söguslóðir Grettissögu og lítillega
varðandi aðrar Húnvetningasögur og
Sturlungu.
Það sem ekki er innifalið er fargjald með
rútu, gisting og fæði þessa tvo daga.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku ekki
seinna en fimmtudaginn 8. janúar 2015
á netfanginu gretar@heima.is, eða í síma
897 6536.
Tiffanys glervinnsla/námskeið
Fyrirhugað er að halda námskeið í Tiff-
anys glervinnslu ef næg þátttaka næst.
Kennt yrði einu sinni í viku, dagsetning
ekki alveg komin á hreint. Þeir sem
hafa áhuga endilega hafið samband
við félagsstarfið í síma 586 -8014/
698-0090 eða á elvab@mos.is. Einnig er
velkomið að koma í handverksstofuna á
Eirhömrum 1. hæð hjá matsalnum og láta
skrá sig. Þátttökugjaldi yrði stillt í hóf eins
og alltaf.
myndlistanámskeið/leðurnámskeið
Fyrirhugað er að halda myndlistanám-
skeið á þessari vorönn ef næg þátttaka
fæst. Leitað er nú logandi ljósi að
kennara. Einnig er ætlunin að bjóða
upp á leðurnámskeið ef þátttaka næst.
Námskeiðið myndi byggjast upp á
endurnýtingu efnis og gerðar yrðu töskur
og annað. Kennt yrði einu sinni í viku á
báðum námskeiðum, dagsetningar ekki
komnar á hreint. Þeir sem hafa áhuga
endilega hafið samband við félagsstarfið
í síma 586 -8014/ 698-0090 eða á elvab@
mos.is. Einnig er velkomið að koma í
handverksstofuna á Eirhömrum 1. hæð
hjá matsalnum og láta skrá sig. Þátttöku-
gjaldi yrði stillt í hóf eins og alltaf.
Opið hús/menningarkvöld hjá Famos
19. janúar kl. 20:00
í Framhaldsskóla Mosfellsbæjar.
Þar mun Sigurður Hreiðar fjalla um
Mosfellssveit og Mosfellsbæ fyrr
og nú í máli og myndum. Að því loknu
leikur Símon H. Ívarsson spænsk lög á
gítarinn og kaffinefndin verður með sitt
rómaða kaffihlaðborð.
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Námskeið í Grettissögu
Eins og áður hefur komið fram er fyrirhugað námskeið í Grettissögu á vegum
Menningar- og skemmtinefndar FaMos.
Náist lágmarks þátttaka mun námskeiðið hefjast þriðjudaginn 13. janúar 2015
og standa yfir næstu fimm þriðjudaga kl. 17:00 – 19:00 og lýkur þá þriðjudaginn 10. febrúar.
Formleg námskeiðslok felast svo í ferð á söguslóðir í Skagafirði fyrripartinn í júní.
Þar sem þetta er nokkuð löng leið er gert ráð fyrir gistingu eina nótt á Sauðárkróki.
Námskeiðsgjald verður kr. 8.500 á þátttakanda, en þá er reiknað með 25 þátttakendum
að lágmarki. Ef ekki næst sá þátttakendafjöldi er vandséð að af námskeiðinu geti orðið.
Innifalið í þátttökugjaldinu er fimm daga námskeið og leiðsögn í tvo daga um
söguslóðir Grettissögu og lítillega varðandi aðrar Húnvetningasögur og Sturlungu.
Það sem ekki er innifalið er, fargjald með rútu, gisting og fæði þessa tvo daga.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku ekki seinna en fimmtudaginn 8. janúar 2015 á
netfanginu gretar@heima.is, eða í síma: 897 6536.
Opið hús/menningarkvöld hjá FaMos, kl. 20:00 þann 19. Janúar
í Framhladsskóla Mosfellsbæjar. Þar mun Sigurður Hreiðar fjalla um Mosfellssveit og
Mosfellsbæ fyrr
og nú í máli og myndum. Að því loknu leikur Símon H. Ívarsson spænsk lög á gítarinn
og kaffinefndi verður með sit rómaða kaffihlaðborð.
Tiffanys Glervinnsla/námskeið
Fyrirhugað er að halda námskeið í Tiffanys glervinnslu ef næg þátttaka næst. Kennt yrði einu
sinni í viku, dagsetning ekki alveg komin á hreint, þeir sem hafið áhuga endilega hafið
samband við félagsstarfið í síma 586 -8014/ 698-0090 eða á elvab@mos.is. Einnig er
Rafræn kosning um
íþróttakarl og konu
Búið er að útnefna 11 einstaklinga
til íþróttakarls og konu Mosfellsbæj-
ar 2014. Fjórir karlar eru tilnefndir
og sjö konur. Íþróttafólkið er kynnt
betur til sögunnar annarsstaðar í
blaðinu.
Bæjarbúum gefst kostur á, ásamt
aðal- og varamönnum í Íþrótta-
og tómstundanefnd, að kjósa um
tilnefningarnar. Kosningin fer
fram á vef Mosfellbæjar www.mos.
is dagana 8.-18. janúar. Velja skal
einn karl og eina konu. Úrslit verða
kynnt fimmtudaginn 22. janúar
kl. 19 í íþróttamiðstöðinni að
Varmá. Þangað eru allir velkomnir.
Á myndinni hér að ofan má sjá
íþróttamenn Mosfellsbæjar 2013,
þau Telmu Rut Frímannsdóttur
karatekonu og Kjartan Gunnarsson
akstursíþróttamann.
Ráðinn lögmaður
Mosfellsbæjar
Sigurður Snædal Júlíusson hrl.,
LLM, hefur verið ráðinn lögmaður
Mosfellsbæjar. Sigurður býr yfir
víðtækri reynslu
í lögmennsku
og á að baki
farsælan feril
sem lögmaður
á Lögfræðistofu
Reykjavíkur,
Logos lögmanns-
þjónustu og hjá
Íslögum. Hann hefur einnig sinnt
kennslu á hdl. námskeiðum, verið
stundakennari við Háskólann í
Reykjavík og leiðbeinandi nem-
enda við gerð lokaritgerða bæði við
Háskólann í Reykjavík og Háskól-
ann á Bifröst.
Jóhanna valin Mosfellingur ársins 2014 • Í tíunda sinn sem útnefningin fer fram
Næsta skref er að hjálpa
öðrum í sömu sporum
Jóhanna tekur við
viðurkenningunni
úr höndum hilmars
ritstJóra mosfellings
Bæjarblaðið Mosfellingur hefur
staðið fyrir vali á Mosfellingi ársins
síðastliðin ár. Nafnbótina hafa hlotið:
2005 Sigsteinn Pálsson
2006 Hjalti Úrsus Árnason
2007 Jóhann Ingi Guðbergsson
2008 Albert Rútsson
2009 Embla Ágústsdóttir
2010 Steinþór Hróar Steinþórsson
2011 Hanna Símonardóttir
2012 Greta Salóme Stefánsdóttir
2013 Hljómsveitin Kaleo
2014 Jóhanna Elísa Engelhartsd.
moSfEllInGuR ÁRSInS
Verðlaunagripurinn er eftir Þóru Sigurþórsdóttur
á Hvirfli og blómvöndurinn frá Gísla í Dalsgarði.
laugardaginn 24. janúar 2015
stundaskrá á bls. 10