Mosfellingur - 08.01.2015, Blaðsíða 13
Íþróttamaður Aftureldingar
árið 2014
Örn Ingi er fæddur árið 1990 og hefur
æft handknattleik í 16 ár. Örn Ingi er
mikill íþróttamaður, fjölhæfur leikmað-
ur sem býr yfir öllum þeim hæfileikum
sem prýða framúrskarandi leikmann.
Örn Ingi stundar íþrótt sína af mikilli
samviskusemi og er mikil og góð
fyrirmynd innan sem utan vallar. Örn
Ingi er gegnheill Aftureldingarmaður.
Þrátt fyrir gylliboð margra félaga ákvað
hann að spila með sínu uppeldisfélagi
í 1. deild karla eftir fall árið á undan og
var hann staðráðinn ásamt liðinu að
komast beint aftur upp og spila í deild
þeirra bestu. Örn Ingi var og er leiðtogi
liðsins sem vann 1. deildina örugglega
og átti hann frábært tímabil. Á lokahófi
Handknattleikssambands Íslands í
vor var hann valin besti sóknarmaður
og leikmaður ársins í 1. deild karla af
þjálfurum og leikmönnum deildarinnar
fyrir árið 2014.
Árangur Aftureldingar í fyrri hluta Íslandsmóts í efstu deild hefur verið frábær og
Örn Ingi þar í lykilhlutverki með félögum sínum.
Örn Ingi Bjarkason handknattleiksmaður
Akstursíþróttamaður
Mosfellsbæjar 2014.
Eyþór hefur stundað motocross frá 7
ára aldri og keppti fyrst 12 ára, þegar
hann hafði aldur til. Í dag er Eyþór
21 árs og hefur alla tíð keppt fyrir Moto-
Mos. Í vetur dvaldi Eyþór erlendis við
æfingar sem skilaði sér svo sannarlega
þar sem hann vann 17 af 20 mótum
sumarsins og landaði Íslandsmeistara-
titlum í bæði MXopen og MX2. Eyþór var
kjörinn akstursíþróttamaður MSÍ 2014.
Eyþór er mikill keppnismaður og flott
fyrirmynd. Hann sér einnig um þjálfun.
Enduro:
• 3. sæti til Íslandsmeistara
MX:
• Íslandsmeistari í MX open. Það er
mikið afrek þar sem hann keppti á
250cc hjóli en í þessum flokki eru leyfð
mun kraftmeiri hjól og keppa flestir á
450cc hjólum.
• Íslandsmeistari í MX2
Eyþór Reynisson akstursíþróttamaður
Hestaíþróttamaður
Harðar 2014
Reynir Örn er framúrskarandi afreks-
maður í hestaíþróttinni. Hann hefur
verið valinn hestaíþróttamaður Harðar
sjö sinnum, hefur sinnt félagsstörfum
og starfað sem reiðkennari hjá Herði
og víðar bæði hérlendis og erlendis um
árabil, ásamt því að reka stórt hestabú.
Hann hefur oft verið valinn í landslið
Íslands og keppt fyrir Ísland á erlendri
grundu. Hann er mjög góð fyrirmynd
fyrir yngri kynslóðina .
Árið 2014 var einkar farsælt keppnisár
hjá Reyni:
• Tilnefndur sem íþróttaknapi og knapi
ársins af Landssambandi hestamanna .
• Íslandsmeistari í T2 með hæstu
einkunn ársins 8.58
• Feif World ranking 2014 (heimslisti),
3. sæti í T2, 7. sæti í fimmgangi, 5. sæti
í 150m skeiði.
• Vann 4 greinar í meistaraflokki á
Reykjavíkurmeistaramóti, sem er sterkasta hestaíþróttamót Íslands,
• Keppti fyrir Íslands hönd á gríðarsterku Norðurlandamóti í Herning og varð þar í
2. sæti í tölti á eftir núverandi heimsmeistara.
Reynir Örn Pálmarsson hestaíþróttamaður
Íþróttakarl ársins 2014 hjá
Golfklúbbnum Kili.
Kristján Þór Einarsson er 27 ára gamall
kylfingur. Kristján hefur stundað golf
hjá golfklúbbnum Kili frá unga aldri og
náð miklum og góðum árangri. Kristján
er samviskusamur og duglegur við
æfingar og leggur sig ávallt allan fram.
Árangur Kristjáns Þórs í sumar verður
sjaldan eða aldrei leikinn eftir. Hann
gerði sér lítið fyrir og sigraði á þremur
af sjö mótum á íslensku mótaröðinni.
Kristján sigraði á Íslandsmótinu í
holukeppni og lagði þar m.a. Birgi Leif
Hafþórsson á leið sinni að titlinum.
Kristján Þór varð stigameistari Golf-
sambands Íslands með yfirburðum.
Það má með sanni segja að Kristján
hafi borið höfuð og herðar yfir aðra
íslenska kylfinga á nýliðnu ári. Kristján
er góð fyrirmynd og margir ungir og
efnilegir kylfingar líta upp til hans.
Kristján Þór Einarsson kylfingur
Útnefning á íþróttakarli
og íþróttakonu
Mosfellsbæjar 2014
KynnInG á ÍÞRóttAfólKInu sEM tIlnEfnt ER KosnInG fER
fRAM á www.Mos.Is ÚRslIt vERðA tIlKynnt 22. jAnÚAR
Bæjarbúum gefst kostur á, ásamt aðal- og varamönnum í Íþrótta- og tómstundanefnd,
að kjósa íþróttakarl og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2014.
Kosning fer fram á vef Mosfellbæjar www.mos.is dagana 8. - 18. janúar. velja skal einn karl og eina konu.
Úrslit verða kynnt fimmtudaginn 22. janúar kl. 19 í Íþróttamiðstöðinni að Varmá. Allir velkomnir.
Hér fyrir neðan er kynning á íþróttakörlum sem tilnefndir eru vegna kjörs
til íþróttakarls Mosfellsbæjar 2014, og afrekum þeirra á árinu.