Mosfellingur - 08.01.2015, Qupperneq 16
Mannvit er eitt stærsta fyrirtæki landsins en hjá fyrirtækinu starfa 350 manns, reyndir verk-
fræðingar og tæknimenntað fólk með
fjölþætta reynslu á flestum sviðum verk-
fræðiþjónustu.
Forstjóri þess, Eyjólfur Árni Rafnsson,
hefur hlotið þann heiður að vera kosinn
maður ársins í íslensku atvinnulífi fyrir
árangur við að virkja íslenskt hugvit í
þágu atvinnulífsins, nýsköpun, athafna-
og útsjónarsemi og fagmennsku í rekstri
sem gert hefur Mannvit að framúrskar-
andi fyrirtæki.
„Ég er fæddur 21. apríl 1957 að Mosum
við Kirkjubæjarklaustur. Foreldrar mínir,
Halldóra og Rafn, bjuggu lengst af í Heið-
arseli sem var síðasti bær í byggð á leið
þeirra sem voru að fara inn að Lakagígum.
Við bjuggum einnig að Holti á Síðu þar sem
foreldrar mínir voru með sauðfjárbúskap.
Ég á fjögur systkini, Jón, Sigrúnu, Björn
Inga og Önnu. Við systkinin lékum okkur
saman því ekki var öðrum börnum til að
dreifa nema þá á sumrin þegar börn komu
í sveit, yfirleitt einhver nákomin skyld-
menni.“
Tóku dekkin undan barnavagninum
„Við bræður dunduðum okkur við ýmsa
hluti, þar á meðal að smíða kassabíla. Ein-
hverju sinni brá svo við að okkur vantaði
dekk undir einn bílinn og þá voru góð ráð
dýr. Við redduðum okkur með því að taka
dekkin undan barnavagni foreldra okkar.
Það kom sérkennilegur svipur á móður
okkar næst þegar hún ætlaði að nota vagn-
inn sem stóð dekkjalaus fyrir utan húsið.
Við systkinin vorum nokkuð uppátækja-
söm og okkur leiddist aldrei, enda ekki
kynnst því að eiga heima í þéttbýli með
öllum þeim tækifærum sem þar gáfust.“
Lögðum net í vötn með afa
„Það voru farnar ferðir á
hestum um heiðarnar um leið
og við gátum setið hest. Í Heið-
arseli bjuggu einnig móðuramma okkar og
afi. Nálægðin við fólk á öllum aldri var því
skóli út af fyrir sig ekki síður en nálægðin
við náttúruna og fjöllin. Við veiddum á
stöng í á sem var við bæinn og lögðum net
í vötn með afa.
Á meðal margra minninga er auðvitað
það skylduverk okkar á sumrin að sækja
kýrnar í haga síðdegis, við vorum sem sagt
kúasmalar allt sumarið.“
Hóf störf hjá Hönnun hf.
„Ég gekk í Kirkjubæjarskóla og lauk
landsprófi 1973. Leiðin lá síðan í Iðnskól-
ann í Reykjavík og ég útskrifast 1976 úr
húsasmíði. Tækniskóli Íslands varð síðan
fyrir valinu en ég lauk byggingatæknifræði
þaðan vorið 1984.
Ég vann á sumrin á náms-
árunum fyrir verktakafyrir-
tæki Gunnars I. Birgissonar,
Gunnar og Guðmund sf. en
eftir útskrift hóf ég störf hjá Hönnun hf
verkfræðistofu.“
Eyjólfur er giftur Egilínu S. Guðgeirsdótt-
ur sem ávallt er kölluð Lína. Hún starfar hjá
Fasteignasölu Mosfellsbæjar. Þau eiga fjóra
syni, Rúnar Þór, Rafn, Reyni Inga og Róbert,
tengdadætur og sjö barnabörn.
Doktorspróf í verkfræði
„Árið 1986 fór ég í nám til Bandaríkjanna
í University of Missouri Rolla. Ég fór fyrst
einn út en Lína kom svo með strákana
okkar þrjá nokkrum mánuðum seinna.
Fjölskyldan var of stór til að fá inni í stúd-
entagarði þannig að við leigðum okkur hús
í bænum. Það var talsvert átak að fara í nám
með þetta stóran hóp, ég tala nú ekki um
til Bandaríkjanna. Það hjálpaði hinsvegar
mjög að ég fékk afar stóran styrk frá Rotary
hreyfingunni sem kom okkur vel af stað.
Ég útskrifaðist árið 1991 með doktors-
prófi í byggingarverkfræði, með sérhæfingu
í sveiflufræði í jarðvegi.“
Vann ýmis verkfræðistörf
„Eftir heimkomu hóf ég aftur störf hjá
Hönnun og vann við ýmis verkfræðistörf,
var meðal annars staðarverkfræðingur
fyrir Landsvirkjun, stýrði mati á umhverf-
isáhrifum við undirbúning flestra stærri
framkvæmda á árunum 1993-2002, vann
einnig ýmis verkefni fyrir Vegagerðina og
mörg sveitarfélög.
Árið 2003 varð ég forstjóri Hönnunar,
síðar Mannvits, en Mannvit verkfræðistofan
var stofnuð 2008 við sameiningu Hönnunar,
VGK og Rafhönnunar. Við leggjum áherslu
á trausta og faglega ráðgjöf sem byggir á
áratugalangri reynslu og þekkingu. Þjón-
ustunni er skipt í þrjá kjarna, orku, iðnað
og mannvirki.
Ég ætla að láta af forstjórastarfinu núna í
janúar 2015 og snúa mér að markaðsmálum
fyrir fyrirtækið.“
Hefur komið víða við
„Með verkfræðistörfunum sinnti ég fram-
an af kennslu við Háskóla Íslands en einnig
hef ég haft þá áráttu að vera að skipta mér
af ýmsum hlutum sem hefur leitt til þess að
ég var formaður stjórnar Orkustofnunar, sat
í skipulags- og byggingarnefnd Mosfells-
bæjar, varamaður í háskólaráði Háskóla
Íslands og í stjórn skólans.
Í stjórn Landmælinga Íslands, formaður
stjórnar Kjördæmissambands Framskókn-
arflokksins í Suðvesturkjördæmi. Í stjórn
Viðskiptaráðs, Samtaka iðnaðarins og svo
starfaði ég að félagsmálum fyrir frjáls-
íþróttadeild UMFA hér á árum áður svo
maður hefur komið víða við.“
Förum reglulega í hestaferðir
„Lína mín hefur afborið mig í 39 ár sem
er afrek,“ segir Eyjólfur brosandi. Við eigum
mörg sameiginleg áhugamál, silungs- og
laxveiðar og svo eigum við hesta og okkur
finnst ekkert skemmtilegra en að vera á
hestbaki með góðum vinum.
Við erum í gönguhóp sem kallar sig
Krummafætur. Hann telur 24 einstaklinga
og höfum við gengið um landið þvert og
endilangt frá því sumarið 1999 og þar af
sex sinnum um Hornstrandir.
Ég tek líka oft lagið með vinum mínum
í tríói sem er nefnt Kóngsbakkatríóið, og
höfum við meira að segja gefið út einn
geisladisk okkur til gamans og öðrum til
undrunar.“
Endalaus verkefni sem veita ánægju
„Við fjölskyldan eigum sumarhús við
Breiðafjörð, á Innri Kóngsbakka í Helga-
fellssveit, sem stöðugt er verið að sinna.
Endalaus verkefni sem veita ánægju, en svo
koma auðvitað letistundir inn á milli.
Ein hringferð á ári hefur verið nánast regla
um margra ára skeið. Ég segi nú oft, bæði í
gríni og alvöru, að ég verkfræðingurinn sem
hef beint og óbeint tekið þátt í mörgum
stærri virkjanaverkefnum landsins þekki
landið mitt betur og hef meiri tilfinningu fyr-
ir því heldur en margir þeirra sem eru á móti
öllum framkvæmdum og vilja ekkert gera til
að bæta lífsgæðin í þessu landi. Margir þeirra
mættu kynna sér landið betur.“
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Aftari röð: Andri Dagur, Rúnar Þór, Egill Ari, Hulda, Eyjólfur Árni, Lína, Rebekka, Reynir og Rafn. Fremri röð:
Aron Máni, Róbert, Ólafur Árni og Sara Katrín. Á myndina vantar Debbý, Amelíu Laufey og Jasmín Bellu.
- Mosfellingurinn Eyjólfur Árni Rafnsson16
Myndir: Raggi Óla og úr einkasafni.
Verkfræði byggist á
mannviti og þekkingu
Eyjólfur Árni Rafnsson forstjóri Mannvits stjórnar einu stærsta ráðgjafarfyrirtæki landsins á sviði verkfræði og tækni
Við leggjum áherslu á
trausta og faglega ráðgjöf
sem byggir á áratugalangri
reynslu og þekkingu.
HIN HLIÐIN
Besti drykkurinn? Köld mjólk.
Tvö orð sem lýsa þér best?
Vinnufíkill, vinamargur.
Fallegasti staður í Mosfellsbæ?
Varmá frá upptökum til sjávar.
Áttu þér óuppfylltan draum?
Já, að fara til norður Noregs og hjóla
suður til Oslóar.
Uppáhaldsfylgihlutur? Farsíminn minn.
Hvaða freistingu stenst þú ekki?
Brúntertu og kalda mjólk.
Best fyrir líkama og sál?
Að slaka á með fjölskyldunni.
Hver kom þér síðast á óvart og hvern-
ig? Fríða Rún, lítil stúlka sem er ættuð
úr Mosfellsbæ en býr í Kaupmannahöfn.
Hún ákvað að kalla mig afa sinn þegar við
hjónin vorum í heimsókn hjá Reyni Inga
syni okkar og hans fjölskyldu.
En Lína var ekki amma en hún
var hinsvegar konan hans afa.
Með æskuvinunuM
í hestaferð á
snæfjallaströnd
í Guðríðarkirkju
sunnudaginn 11. janúar 2015, kl . 16.00.
H R A U S T I R M E N N
Einsöngur:
Bjarni Arason
Jóhannes Freyr Baldursson
Ólafur M. Magnússon
Sigurður Hansson
Stjórnandi:
Örlygur Atl i Guðmundsson
Hljóðfæraleikarar:
Jón Rafnsson
Karl Olgeirsson
Miðasala í forsölu og á karlakor@karlakor.is kr. 3.000-, við innganginn kr. 3.500-
Bjarni Arason