Mosfellingur - 08.01.2015, Page 21

Mosfellingur - 08.01.2015, Page 21
Rósirnar heilsurækt VOR 2015 Stundatafla: • Mánudagar kl. 17:00 18:00 Styrktaræfingar í Veggsport • Þriðjudagar kl. 18:00 19:00 Aqua Zumba® í Lagafellslaug • Fimmtudagar kl. 18:00 19:00 Aqua Zumba® í Lagafellslaug Verð: • Kr. 43.500 fyrir janúar maí • 10 skipta (12 vikna) klippikort kr. 18.000 • 20% öryrkjaafsláttur Með kærleikskveðju Elísa BerglindÞú finnur okkur á: • Facebook: https://www.facebook.com/rosirnar • Zumba®: http://elsaberglind123.zumba.com Sendu póst á rosirnar.heilsa@gmail.com eða hafðu samband í síma 891 6901 til að skrá þig eða fá frekari upplýsingar! Nýársávarp bæjarstjóra - 21 M yn d/ Ra gg iÓ la F ÍT O N / S ÍA Fífa salernispappírinn er einstaklega mjúkur þriggja laga pappír, náttúrulega hvíttur, án klórbleikiefna og viðbættra ilmefna. Þú færð Fífu í pakkningu sem hentar þér í næstu verslun. WWW.PAPCO.IS FIÐURMJÚK FÍFA 3 3ja laga Rósirnar heilsurækt VOR 2015 Stundatafla: • Mánudagar kl. 17:00 18:00 Styrktaræfingar í Ve gsport • Þriðjudagar kl. 18:00 19:00 Aqua Zumba® í Lagafellslaug • Fimmtudagar kl. 18:00 19:00 Aqua Zumba® í Lagafellslaug Verð: • Kr. 43.500 fyrir janúar maí • 10 skipta (12 vikna) klippikort kr. 18.000 • 20% öryrkjaafsláttur Með kærleikskveðju Elísa BerglindÞú finnur okkur á: • Facebook: https://www.facebook.com/rosirnar • Zumba®: http://elsaberglind123.zumba.com Sendu póst á rosirnar.heilsa@gmail.com eða hafðu samband í síma 891 6901 til að skrá þig eða fá frekari upplýsingar! Rósirnar heilsurækt VOR 2015 Stundatafla: • Mánudagar kl. 17:00 18:00 Styrktaræfingar í Veggsport • Þriðjud gar kl. 18: 19:0 Aqua Zumba® í Lagafellsl ug • Fimmtudagar kl. 1 : 0 19:0 Aqua Zumba® í Lagafellslaug Verð: • Kr. 43.500 fyrir janúar maí • 10 skipta (12 vikna) klippikort kr. 18.000 • 20% öryrkjaafsláttur Með kærleikskveðju Elísa BerglindÞú finnur okkur á: • Facebook: https://www.facebook.com/rosirnar • Zumba®: http://elsaberglind123.zumba.com Sendu póst á rosirnar.heilsa@gmail.com eða hafðu samband í síma 891 6901 til að skrá þig eða fá frekari upplýsingar! Sendu póst á rosirn r.heilsa@gmail.com eða h fðu samband í síma 891-6901 til að skrá þig eða fá frekari upplýsingar! Kæru Mosfellingar! Um áramót er hollt og gott að líta yfir farinn veg, rifja upp og meta hvernig liðið ár hefur skilað okkur fram á veginn. Fyrir okkur Mosfellinga hefur árið 2014 á margan hátt verið árangursríkt og gott. Mikil uppbygging hefur verið í sveitarfélaginu á árinu og reksturinn gengið vel. Almennt má segja að uppgangur sé í íslensku efnahagslífi og hagur lands- manna almennt að batna eftir erfið ár í kjölfar bankahrunsins. Nýtt íþróttahús tekið í notkun Í haust var tekið í notkun nýtt og glæsilegt íþróttahús að Varmá. Húsið hýsir glæsilega og fyrsta flokks aðstöðu fyrir fimleika og segja má að nú sé langþráður draumur fimleikadeildar Aftureldingar orðinn að veruleika enda hefur iðkend- um fimleika hjá félaginu fjölgað til muna með tilkomu þessarar nýju aðstöðu. Auk fimleikasalar er í húsinu ný og fullkomin aðstaða fyrir bardagaíþróttir. Tilkoma þessa húss verður mikil lyftistöng fyrir fimleika- og bardagaíþróttir í bænum en einnig aðrar íþróttagreinar því það mun skapast meira rými í þeim þremur íþróttasölum sem fyrir eru að Varmá. Skólamál í öndvegi Þó að Mosfellsbær eigi sér langa og merka sögu þá er bæjarfélagið „ungt“ í þeim skilningi að hér býr fjölskyldfólk með mikið af börnum og því meðalaldur bæjarbúa lágur. Fjölskyldufólk sækir í að búa í Mosfellsbæ. Fræðslumálin eru því okkar mikilvægasti málaflokkur og í hann fer rúmlega helmingur af skatt- tekjum bæjarins. Snemma á árinu 2014 samþykkti bæjarstjórn stefnumótun um uppbyggingu skólamannvirkja í bæjarfélaginu og hefur verið unnið markvisst samkvæmt henni síðan. Í haust hóf göngu sína í nýju húsnæði í Höfðabergi skóli fyir fimm og sex ára börn og næsta haust verða þar einnig sjö ára börn. Skólinn er rekinn sem útibú frá Lágafellsskóla og munu húsnæðismál þar breytast til batnaðar með þessu nýja fyrirkomulagi. Á árinu varð Leirvogstunguskóli sjálf- stæður skóli en hann hefur fram til þessa verið rekinn sem útibú frá leikskólan- um Reykjakoti. Er þetta til marks um þá uppbyggingu sem verið hefur í Leirvog- stunguhverfinu síðustu misserin. Af öðrum framkvæmdum má nefna að á að á árinu 2014 var tekinn í notkun nýr og glæsilegur Tunguvegur sem er mikil samgöngubót hér í bæjarfélaginu. Nýr samgönguhjólastígur var gerður í gegnum miðbæinn okkar og eru hjólreiðar nú orðinn raunhæfur samgöngumáti okkar Mosfellinga við höfuðborgina. Kjarabætur í fjárhagsáætlun Launahækkanir starfsmanna eru fyrirferðamiklar í fjárhagsáætlun fyrir nýhaf- ið ár enda hefur verið samið við flesta hópa á liðnu ári. Starfsfólk sveitarfélaga hefur setið eftir í launahækkunum á síðustu árum og er vel að því komið að fá kjör sín bætt. Þrátt fyrir þessa hækkun á launakostnaði tókst að koma að nýjung- um sem koma sér vel fyrir fjölskyldur í Mosfellsbæ. Í fjárhagsáætlun ársins 2015 er gert ráð fyrir óbreyttum leikskólagjöldum og hækkun á frístundaávísun um 10%. Auk þess var samþykkt að koma á systkina- tengingu sem niðurgreiðir enn frekar frístundir hjá barnmörgum fjölskyldum. Einnig var samþykkt að hækka niðurgreiðslur vegna dvalar í sjálfstætt reknum leikskólum. Bæjarstjórn samþykkti að tekjuviðmið tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega til útreiknings á afslætti fasteignagjalda verði breytt. Breytingin felur í sér rýmkun á tekjuviðmiðum þannig að fleiri úr þeim hópi njóti afsláttar af fasteignagjöldum. Þetta eru allt kjarabætur til Mosfellinga sem er ánægjulegt að hafi getað orðið að veruleika. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru hvað varðar það sem gerst hefur í Mosfellsbæ á síðastliðnu ári. Fyrir mig persónulega hefur árið 2014 einnig verið gott. Kosið var til sveitarstjórna og fékk Sjálfstæðisflokkurinn afar góða kosningu hér í Mosfellsbæ, hélt hreinum meirihluta og þar með áframhaldandi sterkt umboð til að vinna að góðum verkum fyrir samfélagið okkar hér í Mosfellsbæ. Framtíðin er björt í Mosfellsbæ og með gildin okkar góðu VIRÐINGU – FRAMSÆKNI – JÁKVÆÐNI og UM- HYGGJU að leiðarljósi eru okkur allir vegir færir. Ég vil nota tækifærið og þakka ykkur öllum fyrir gott samstarf, samskipti, vináttu og stuðning á árinu 2014 og megi nýrunnið ár vera okkur gæfuríkt og gleðilegt. Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Um áramót Nýarskveðja bæjarstjóra

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.