Mosfellingur - 22.12.2011, Blaðsíða 6

Mosfellingur - 22.12.2011, Blaðsíða 6
Ánægð(ur) 93,0% Hvo rki n é 3% Óá næ gð (ur ) 4 % Upplýsingar og skráningar í ferðir og námskeið eru á skrifstofu félagsstarfsins Eirhömrum kl. 13-16, símar 586-8014 og í gsm. 692-0814 - Fréttir úr bæjarlífinu6 Bridsfólk! Óskum eftir fleiri þátttak- endum í spilamennsku á Eirhömrum, eftir hádegi á virkum dögum. Þar er einnig hægt að spila vist og tefla. Uppl. á skrifstofu félags- starfsins og í síma 5868014 kl. 13 -16. Ný námskeið Skráningar á ný nám- skeið byrja eftir áramót, þ.e. í bókband, tréskurð, leir og glernámskeið, einnig í leikfimi. Þessi námskeið byrja um miðjan janúar n.k. Eldri borgarar! Við hlökkum til samstarfs við ykkur á nýju ári. Gleðileg jól Megi nýja árið færa ykkur hreysti og hamingju Elva og Svanhildur Mikið af fallegum trjám í Hamrahlíð Jólasveinarnir hafa haft í mörgu að snúast í Hamrahlíðinni undanfarna daga. Það hefur færst í aukana að fyrirtæki gefi starfsfólki sínu tré í jólagjöf og hafa nokkur fyrirtæki komið í skóginn í Hamrahlíðinni og fengið tré. Mikið hefur verið af fallegum trjám sem Skógræktarfé- lagið hefur ræktað í reitum hér og þar í Mosfellsbænum og fólk notið góðs af því að þar þarf að grisja. „Skógræktarfélagið vill þakka öllum þeim fjölmörgu sem lagt hafa leið sína í skóginn og fengið sér íslenskt tré en við erum að vona að mikil aukning verði á sölu íslenskra jólatrjáa. Einnig viljum við þakka öllum þeim sem hafa komið að sölu jólatrjánna en án þeirra hefðum við ekki getað sinnt öllum þeim sem komið hafa í skóginn.“ Enn er til nóg af fallegum trjám í Hamrahlíðinni. Í kvöld, fimmtudag er opið til kl. 22 og kl. 11-16 á Þorláksmessu. Kveikt í brennum í Mosfellsbæ Á gamlárskvöld verður áramóta- brenna í Ullarnesbrekkum. Mosfellsbær og handknattleiksdeild Aftureldingar standa fyrir brenn- unni sem kveikt verður í kl. 20.30. Björgunarsveitin Kyndill verður með flugeldasýningu skömmu eftir að kveikt er í brennunni. Á þrettándanum, fimmtudagskvöld- ið 6. janúar, verður svo árleg þrett- ándabrenna þar sem jólin verða kvödd. Blysför leggur af stað frá Miðbæjartorgi og geta Mosfellingar haft skoðun á því hvort leggja eigi af stað kl. 18 eða 20. Hægt er að kjósa um tímasetningu á www.mos.is. Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leikur, fjöldasöngur undir stjórn Karlakórs Kjalnesinga auk þess sem Grýla og Leppalúði verða á svæðinu með sitt hyski. Kyndill verður með glæsilega flugeldasýningu að vanda. Samvera er besta jólagjöfin Fjölskyldan saman um jólin Ánægð(ur) Hvorki né Óánægð(ur)Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með... ...Mosfellsbæ sem stað til að búa á? 93% 3% 4% ...aðstöðu til íþróttaiðkunar í Mosfellsbæ? 90% 6% 4% ...þjónustu leikskóla Mosfellsbæjar? 80% 15% 5% ...gæði umhverfisins í nágrenni við heimili þitt? 83% 8% 8% ...þjónustu grunnskóla Mosfellsbæjar? 79% 14% 7% ...hvernig Mosfellsbær sinnir menningarmálum? 68% 29% 3% ...þjónustu Mos. á heildina litið, bæði útfrá reynslu þinni og áliti? 80% 15% 5% ...þjónustu Mosfellsbæjar við barnafjölskyldur? 58% 30% 11% ...skipulagsmál almennt í Mosfellsbæ? 63% 24% 12% ...þjónustu við eldri borgara í Mosfellsbæ? 63% 21% 16% Í Mosfellsbæ eru 93% íbúa ánægð- ir með Mosfellsbæ sem stað til að búa á. Þetta kemur fram í árlegri þjónustukönnun sem Capacent gerir meðal sveitarfélaga. Bærinn fær einkunina 4,4 af 5 mögulegum og er með þriðju hæstu einkunn- ina af sveitarfélögum í landinu. Í Mosfellsbæ var úrtakið 452 manns og var svarhlutfall um 60%. Mikil ánægja með aðstöðu til íþróttaiðkunar Samkvæmt könnuninni eru um 90% bæjarbúa ánægðir með aðstöðu til íþrótta- iðkunar er Mosfellsbær þar í fjórða sæti meðal sveitarfélaga. Þegar kemur að skipu- lagsmálunum er Mosfellsbær í öðru sæti meðal sveitarfélaga en þar eru hlutföllin töluvert lægri, 63% bæjarbúa eru ánægðir með þau mál hér og 12,4% óánægðir. Almenn ánægja með skólana Um 80% íbúa eru ánægðir með leik- og grunnskóla bæjarins og erum við þar í 5. sæti meðal sveit- arfélaga. Haraldur Sverrisson bæjarstjóri segist mjög ánægður með útkomu Mosfellsbæjar í könnuninni. „Það er ánægjulegt hvað bær- inn kemur alltaf vel út úr þessu mati. Hér finnst fólki greinilega gott að búa og er það einmitt markmiðið. Hinsvegar verðum við líka að horfa á það sem við getum bætt okk- ur í, við dölum t.d. aðeins í einkunn hvað varðar þjónustu við barnafjölskyldur sem er örugglega afleiðing að þeim ráðstöfunum sem grípa hefur þurft til í kjölfar hrunsins og við þurfum að huga að þessu. Við hækk- um hinsvegar töluvert í einkunn varðandi þjónustu við eldri borgara og greinilegt er að það sem verið er að gera í þeim mála- flokki, bygging hjúkrunarheimilis og þjón- ustumiðstöðvar á Hlaðhömrum, mælist vel fyrir,“ segir Haraldur bæjarstjóri. Mosfellsbær kemur vel út í árlegri könnun Capacent Mosfellingar ánægðir með bæinn sinn 93% íbúa eru ánægðir með Mosfellsbæ sem stað til að búa á. Eldri borgarar

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.