Mosfellingur - 22.12.2011, Blaðsíða 17

Mosfellingur - 22.12.2011, Blaðsíða 17
Þeir hafa verið saman í ellefu ár og í raun má segja að þeir séu eins og franskur rennilás því þeir eru einfaldlega saman allan sólarhring- inn. Þeir eru miklir náttúruunnendur, steinasafnarar og eru umvafnir plöntum alla daga. Þeir elska að ferðast um heim- inn og kunna svo sannarlega að njóta lífsins til hins ítrasta. „Við kynntumst í Reykjavík árið 2000 og það varð ást við fyrstu sýn. Ári seinna byrjuðum við okkar búskap í Hvammsgerði í Reykjavík en þar bjuggum við í níu ár eða þar til við fluttum að æskuheimili Kristjáns hér að Suður-Reykjum 3 í Mosfellsbæ,“ segir Einar Bogi er ég spyr hann hvar þeir félagarnir hafi kynnst. Afi kom með lítið ljós „Það má í raun segja að örlögin hafi tengt okkur saman því um morguninn daginn sem við Einar Bogi kynnumst dreymdi mig draum um að mamma mín kæmi inn til mín og vakti mig með þeim orðum að núna gangi þetta sukklíferni ekki á mér lengur og að afi minn væri kominn með lítið ljós handa mér. Seinna þennan sama dag sat ég á bar í miðbæ Reykjavíkur með bjór í hendi og horfði yfir fólkið sem þar var og fannst ég ekki eiga neina samleið með neinum þarna inni. Ég ákvað að ganga upp Laugaveginn og þegar mér var litið yfir götuna sá ég mann standa undir skyggninu hjá Máli og Menn- ingu að reykja. Ég gekk áleiðis að honum, tók upp sígarettu og spurði: „áttu eld?“ Frá þessari stundu höfum við verið óað- skiljanlegir og staðfestum samvist okkar 8. ágúst 2002 og eftir að lögunum var breytt þá giftum við okkur 8. ágúst 2010“ segir Kristján Ingi. Kristján ingi er fæddur í Reykja- vík 30. nóvember 1957. Foreldrar hans eru þau Hansína Margrét Bjarnadóttir húsfreyja ávallt kölluð Haddý og Jón Vig- fús Bjarnason garðyrkjubóndi kallaður Jovvi, en þau eru bæði látin. Systkini Kristjáns eru þau Ásta fædd árið 1950, Bjarni Ásgeir fæddur 1952 og Baldur fæddur árið 1963. Kristján Ingi ólst upp í Mosfellsbæ en flutti til höfuðborgarinnar fjórtán ára gamall. Hann gekk í Brúarlandsskóla, Var- márskóla og Fjölbrautarskólann í Ármúla. Eftir útskrift árið 1974 flutti Kristján Ingi til Noregs og fór í garðyrkjuskólann Statens garten og blomsterdekor Vea í Moelv. Eftir heimkomu hóf hans störf hjá bróður sínum Bjarna Ásgeiri sem starfrækti gróðrastöðina Garðshorn og starfaði þar í fjögur ár. Við tók nám í tækniteiknun við Iðnskól- ann í Reykjavík og eftir það starfaði hann hjá verkfræðistofunni Hnit. Hann vann hjá hinum ýmsu blómaverslunum þar til árið 1986 er hann stofnaði sína eigin verslun Blómálfinn á Vesturgötu. Árið 1989 seldi hann verslunina en stofnaði aðra blóma- verslun Blóm undir stiganum í Borgar- kringlunni og flutti hana síðar að Skipholti 50. Árið 1997 flutti Kristján til Amsterdam og nam glerblástur og glersteypu í Van Tatt- eroode og bjó þar í þrjú ár. Kristján Ingi bjó með Haraldi Tómassyni frá Akureyri í sex- tán ár en hann lést af hvítblæði árið 1996 og var jarðsettur í Lágafellskirkjugarði. Glerverk á leiðið Árið 2001 settu Kristján Ingi og Einar Bogi glerverk á leiði Haralds sem Kristján Ingi hafði gert er hann var við nám í Am- sterdam. Er þeir voru í kirkjugarðinum því til undirbúnings sagði Kristján við Einar að hann kæmi síðar til með að liggja hérna og benti á frátekið leiði við hlið Haralds og svo væri eitt annað leiði frátekið mínum öðr- um manni þar við hliðina. Það var tilviljun ein að við hliðina á því leiði liggur Hulda Kolbrún Finnbogadóttir uppáhaldsfrænka Einars Boga en hún er föðursystir hans. Einar Bogi er fæddur í Hafnarfirði 28. júlí 1959. Foreldrar hans eru þau Sigurður Ágúst Finnbogason húsasmíða- meistari og Guðríður Einarsdóttir fyrrv. bókavörður. Systur Einars Boga eru þær Jóhanna Ríkey fædd árið 1960 og Eva fædd 1967. Einar Bogi ólst upp í Hafnarfirði og gekk í Lækjarskóla, Flensborgarskólann, Versl- unarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi í landfræði við Háskóla Íslands árið 1985. Í gegnum tíðina hefur hann unnið við hin ýmsu verslunarstörf, hann starfaði síðan við bankastörf í 27 ár, þar af átta sem útibús- stjóri á Reyðarfirði og á Höfn í Hornafirði. Hann hætti störfum í bankanum árið 2004 og hefur unnið sjálfstætt síðan. Einar Bogi giftist Hjördísi Rafnsdóttur árið 1982 og á með henni þrjú börn, Ágúst Rafn fæddan 1983, Matthías fæddan árið 1989 og Ernu fædda 1993. Barnabörnin eru tvö þeir Alex Breki sex ára og Björn Andri fimm ára. Hefur lifað tímana tvenna „Ég hef lifað tímana tvenna sem sam- kynhneigður maður á Íslandi hvað viðhorf almennings varðar,“ segir Kristján Ingi. Í kringum árið 1980 var ekki mikið rætt um samkynhneigð og áttum við helst öll að hanga inni í skápunum en í dag hefur þetta mikið breyst og erum við mjög þakklátir fyrir það góða fólk sem hefur barist með okkur. Það hefur skilað svo góðum árangri að Ísland er orðið fyrirmynd annarra þjóða, þökk sé Samtökunum 78. Með hjúskapar- lögunum 2010 sem samþykkt voru einróma á Alþingi er fullu jafnræði náð við gagnkyn- hneigða.“ Systir mín ruddi veginn „Þegar ég kom út úr skápnum þá var það að mörgu leyti léttara en hjá Kristjáni - Mosfellingarnir Kristján Ingi Jónsson og Einar Bogi Sigurðsson16 MOSFELLINGURINN Eftir Ruth Örnólfsdóttur ruth@mosfellingur.is Kristján Ingi Jónsson arfasali og Einar Bogi Sigurðsson landfræðingur eru miklir náttúruunnendur og una sér hvergi betur en við árbakkann Örlögin tengdu okkur saman Ég skildi við eiginkonu mína til nítján ára sem var það erfiðasta í mínu ferli en mér þykir mjög vænt um hana ennþá. Börnin áttu einnig mjög erfitt eins og alltaf þegar skilnaður á sér stað en það er mjög gott sam- band á milli okkar allra í dag. Börnin: Matthías, Ágúst Rafn og Erna.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.