Mosfellingur - 22.12.2011, Qupperneq 12

Mosfellingur - 22.12.2011, Qupperneq 12
Samsýning í Listasal Mosfellsbæjar Opnuð hefur verið sýningin „Með pensli og paletthníf II“ sem er samsýning listamannanna Kristins G. Jóhannssonar og Guðmundar Ármanns Sigurjónsson. Aðgangur er ókeypis og er sýningin opin á opnunartíma Bókasafnsins. Jólatré bæjarins úr mosfellskum görðum Mosfellsbær skreytir sjö jólatré um þessi jól sem endranær. Tvö þeirra eru lifandi og standa allt árið en eru skreytt um jólin, þessi tré standa við Álafosskvos og á horni Baugshlíðar og Álfahlíðar. Fjögur trjánna eru gefin af íbúum í Mosfellsbæ og koma úr eftirtöldum görðum: Barrholti 19, en það tré er staðsett í Hlíðartúnshverfi; Bergholti 6, en það tré er staðsett í Leirvogstungu; Bjargartanga 16, en það tré er stað- sett í Reykjahverfi og Byggðarholti 10, en það tré er staðsett á bæjar- torginu. Ennfremur var eitt tré keypt af Skógræktarfélagi Mosfellsbæjar og stendur það tré í Mosfellsdal. Mosfellsbær færir gefendum trjánna kærar þakkir fyrir þeirra framlag. - Stærsta frétta- og auglýsingablaðið í Mosfellsbæ12 Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leikur, fjöldasöngur undir stjórn Karlakórs Kjalnesinga. Álfakóngur, álfadrottning, Grýla, Leppalúði og þeirra hyski verða á svæðinu. Hin árlega þrettándabrenna Mosfellsbæjar verður föstudaginn 6. janúar 2012 Þrettándinn 2012 Næg bílastæði við Þverholt Mosfellsbær Björgunarsveitin Kyndill Karlakór Kjalnesinga Leikfélag Mosfellssveitar Skátafélagið Mosverjar Skólahljómsveit Mosfellsbæjar Hestamannafélagið hlýtur verðlaun ÖBÍ Hestamannafélagið Hörður hlaut á dögunum hvatningarverðlaun ÖBÍ. Félagið vann í flokki fyrirtækja/ stofnana, fyrir frumkvöðlastarf í hestaíþróttum fatlaðra barna og unglinga. Hvatningarverðlaunin eru veitt á alþjóðadegi fatlaðra, 3. desember, ár hvert. Verðlaunin eru afhent í fimmta sinn og veitt í þrem- ur flokkum: flokki einstaklinga, fyrirtækja/stofnana og umfjöllunar/ kynningar. Af gefnu tilefni hefur verið ákveðið að leyfa Mosfellingum að vera með í að ákveða hvort að tímasetningu á þrettándabrenn- unni okkar verði breytt. Ábendingar hafa borist um að jafnvel myndi henta betur að hafa brennuna kl.18 í staðinn fyrir 20 til að koma til móts við yngstu kynslóðina. Rík hefð er fyrir þessari brennu hér í bæ og viljum við ekki taka þessa ákvörðun án þess að leyfa bæjarbúum að segja sína skoðun. Gefið ykkur því endilega tíma til að láta ykkar skoðun í ljós með því að taka þátt í könnun á heimasíðu Mosfellsbæjar. Allar nánari upplýsingar á www.mos.is. Þó að tímasetning brennunnar sé ekki komin á hreint mun öll dagskrá vera með hefðbundnu sniði. Tímasetning brennunnar verður auglýst á mos.is 30. desember. JóL Í TangaHverfi Nemendur í leiklistarvali í Lágafells- og Varmárskóla sýndu á dögunum leikritið Jól í Tangahverfi. Boðnir voru nemendur af yngri stigum á sýningar í báðum skólunum. Verkið, Jól í Tangahverfi, var samið af krökkunum sjálfum í samstarfi við leiklistarkenn- arann, Maríu Pálsdóttur. Áhorfendur voru ánægðir með sýningarnar og leikarar þóttu standa sig frábærlega Frá árlegum jólafundi skátafélagsins Mosverja.

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.