Mosfellingur - 22.12.2011, Síða 35
- Aðsendar greinar34
MOSFELLINGUR áRSINS 2011
Þegar við hjónin fluttum til Mos-
fellsbæjar, árið 2003, lá hingað
vegur með aðeins tveimur akrein-
um í hvora átt, byggðin var mun
smærri og ekki búið að byggja
upp Leirvogstunguna og engin var
Lágafellslaugin. Við komum okk-
ur fyrir og fundum fyrir hlýju frá
nágrönnum okkar og samfélaginu
í heild. Þegar fram liður stundir og stúlk-
urnar okkar uxu úr grasi fóru þær í tónlist
og þegar í Varmárskóla kom, eftir yndisleg
ár í Reykjakoti, kynntust þær því frábæra
starfi sem fer fram innan veggja skólans og
ber þar hæst skólahljómsveitin.
Nú þegar hátíð okkar kristinna manna
gengur garð, jólasveinarnir koma af fjöllum
og hún Grýla blessunin lætur sjá sig, óma
tónar víða í Mosfellsbæ. Nýlega voru ljós
tendruð á Mosfellsbæjartrénu og þar söng
okkar glæsilegi barnakór úr Varmárskóla og
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar spilaði jóla-
lög. Þá virkilega kemst maður í jólaskap og
einnig þeir sem ekki eru kristnir. Það get
ég fullyrt. Öll fjölskyldan kemst í jólaskap,
börnin gleðjast og allt samfélagið brosir út
að eyrum.
Nýlega áttum við fjölskyldan þess kost
að hlýða á barnakór Varmárskóla og
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar í Hörpunni
ásamt öðrum foreldrum barna í kórnum og
skólahljómsveitinni. Þvílík fagmennska,
fagur söngur, fagurt spil og örugg stjórn.
Óhætt er að segja að það atriði hafi ver-
ið það langsamlega besta sem flutt var í
Hörpunni þann daginn. Snyrtimennska og
fagmennska var það sem kom upp í huga
okkar sem og hve vel er hlúð að börnum
okkar sem stunda tónmennt þrátt fyrir oft
þröngan kost.
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar er
ómissandi í okkar litríka samfélagi
hér í Mosfellsbæ. Geta börn okkar
stigið þar sín fyrstu skref í tónlist,
kynnst fagmennsku á þessu sviði
og notið tónlistarinnar ásamt okk-
ur hinum. Við foreldrarnir fyllumst
stolti í hvert sinn sem við heyrum
til þerra og sjáum þau spreyta sig á
þessari braut.
Fyrir utan að koma fram fyrir okkur
foreldranna, spilar þessi föngulegi hópur
einnig tvisvar á ári við útskrift stúdenta
við Borgarholtsskóla í Grafarvogi, spil-
ar á þrettándanum hér í bæ, tekur þátt í
hátíðardagskrá menningarhátíðar okkar
sem ber heitið Í túninu heima og 17. júní
svo eitthvað sé nefnt. Einnig hefur hljóm-
sveitin borið hróðurinn í útvarp okkar
landsmanna, tekið þátt í samkeppni og
hljómsveitakeppnum bæði hér á landi og
erlendis. Það eru um 120 börn sem taka
þátt í þessu starfi og sex tónlistarkennar-
ar sem augljóslega leggja allt í sölurnar og
sinna starfi sínu af hjartans list.
Það sem vekur reyndar spurningar er að
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar hefur afar
þrönga aðstöðu, fær sífellt minna fjármagn
úr sjóðum bæjarins og virðist ekki fá þá at-
hygli sem hún á skilið úr þeirri átt. Bæta
má þar úr og byggja upp enn betri aðstöðu
við vaxandi skóla, tryggja betri aðstöðu
svo enn fleiri börn geti tekið þátt í þessu
ótrúlega gefandi starfi sem við hin njótum
í sífellt ríkari mæli. Lífsgæðin eru einmitt
mæld í þessu. Það eru börn okkar sem ein-
mitt veita öllum hamingju, ljós og frið um
Jólin. Gleðileg Jól
Sveinn Óskar Sigurðsson
Stjórnarmaður í Foreldrafélagi Varmárskóla
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar
Hljómsveit okkar allra
GleðileG jól
Kjósarsýsludeild
Rauða kross Íslands sendir öllum
sjálfboðaliðum, velunnurum og gestum
Rauðakrosshússins hugheilar jóla- og nýjárskveðjur.
Kærar þakkir fyrir ykkar ómetanlega framlag
og stuðning á árinu sem er að líða!
Fyrir unglinga sem vilja auka
áhuga sinn á líkamlegu hreysti og
heilbrigði.
Minnkandi hreyfing meðal barna
og unglinga hefur farið vaxandi
vandamál í vestrænum samfélögum
en hreyfingarleysi hefur margvísleg
slæm áhrif á líkamann. Ávinningur
líkamlegrar hreyfingar birtist bæði
sem líkamlegur og andlegur ávinningur.
Það er vitað að hreyfing og líkamsrækt
hafa jákvæð áhrif á unglinga á margan hátt.
Þar sem regluleg hreyfing hefur jákvæð
áhrif á kvíða og þunglyndi hefur hreyfing
einnig jákvæð áhrif á líkamsstarfsemina
svo sem hjarta og æðakerfið og fleira.
Margir unglingar hafa ekki fundið sig í
neinni sérstakri íþróttagrein eða hafa ekki,
einhverra hluta vegna, áhuga á keppni, sem
vill oft verða áhersla innan íþróttafélagana.
Mikilvægt er að bjóða upp á hreyfingu við
hæfi fyrir þennan hóp.
Nú í janúar er að fara í gang
námskeið hjá World Class hér í
Mosfellsbæ sem einmitt leggur
áherslu á almennt líkamlegt heil-
brigði sem miðað er útfrá hverj-
um og einum einstaklingi. Á nám-
skeiðinu verður farið í fjölbreytta
og skemmtilega hreyfingu sem
hentar hverjum og einum. Áhersla er lögð
á að hafa gaman, jákvæðan og hvetjandi
félagsskap og að sjálfsögðu ávinningurinn
sem skiptir mestu máli; aukin líkamsmeð-
vitund og líkamlegt hreysti.
Á námskeiðið geta allir þeir komið sem
hafa áhuga á að fjárfesta í sjálfum sér. Auka
lífsgleði og njóta þess að vera í góðum fé-
lagsskap. Hægt er að skrá sig í síma 5667888
og 5530000.
Árndís Hulda Óskarsdóttir
Fit4You
GleðileG jól
Sendum sveitungum okkar nær og fjær
bestu óskir um gleðileg jól og farsælt
komandi ár með þökk fyrir það liðna.
Vinstri græn í Mosfellsbæ
Litir:
Grænn: pantone 356cvu
Rau•ur: pantone 485cvu
Litir:
Grænn: pantone 356cvu
Rau•ur: pantone 485cvu
www.vgmos.is