Mosfellingur - 19.03.2010, Page 9

Mosfellingur - 19.03.2010, Page 9
StefnuþingSamfylkingarinnar í Mosfellsbæ Samfylkingin í Mosfellsbæ boðar til stefnuþings laugardaginn 20. mars frá kl. 10:00 - 13:00 í húsnæði Samfylkingarinnar Þverholti 3. Áhugasömum bæjarbúum er boðið til samræðu um stefnumál Samfylkingarinnar. Form fundarins er s.k. "Heimskaffi" þar sem þátttakendum er skipt í litla samræðuhópa. Notaðu tækifærið og taktu þátt í að móta samfélagið þitt. Þitt innlegg skiptir máli! www.samfylking.is/mos samfylking.mos@gmail.com Lausar íbúðir fyrir aldraða í Mosfellsbæ Fjórar íbúðir fyrir aldraða eru lausar í Eirhömrum og Hlaðhömrum, íbúða- og þjónustuhúsi aldraðra í Mosfellsbæ. Um er að ræða öryggisíbúðir þar sem þjónusta er allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Helgi Guðmundsson, forstjóri Eirar, og Vilborg Ólöf Sigurðardóttir hjá Eir í síma 522 5700. Skipulags- og byggingarnefnd Mosfellsbæjar www.mosfellingur.is - 9 minnihluta í bæjarstjórn sem hafi sýnt því mikinn áhuga og jákvæðni, sem og aðra sem að því hafa komið. „Bæjaryfirvöld hafa haldið mjög vel utan um verkefnið og brugðist hratt og vel við hvenær sem þörf hefur ver­ ið á. Það var eftirtektarvert hve mik­ ið frumkvæði embættismenn og bæj­ arstjóri hafa sýnt í þessu samstarfi og hve vinnubrögð þeirra hafa verið fumlaus. Það er ekki síst af þeim sök­ um sem við erum sannfærð um að sjúkrahúsinu verði best fyrir komið hér í Mosfellsbæ,” segir hann. Hann nefnir einnig Reykjalund í því samhengi, þá þekkingu sem þar er að finna og reynslu, sem og orð­ sporið sem af stofnuninni fari. „Eins hef ég fundið fyrir miklum velvilja íbúa og einnig þeirra sem starfa í heilsutengdri þjónustu í Mosfells­ bæ,” segir Gunnar. Stofnun heilsuklasa Hann tók þátt í kynningarfundi um stofnun heilsuklasa í Mosfellsbæ sem haldinn var í byrjun mánaðar­ ins. Þar mættu um 60 manns víðs veg­ ar að úr bænum og myndaðist mikill samhugur um að koma á samstarfs­ vettvangi á sviði heilsutengdrar þjón­ ustu. Markmið Mosfellsbæjar með uppbyggingu á sviði heilsutengdrar þjónustu er að tvöfalda fjölda starfa í heilsugeiranum á hverju fimm ára tímabili og að Mosfellsbær verði leið­ andi á sviði heilsueflingar og endur­ hæfingar á landinu. Verði PrimaCare að veruleika mun þetta markmið nást í einu vetfangi, en um leið sé þá kominn grundvöllur fyrir að gera markmiðin enn háleitari. einstök hugmynd Gunnar lét nýverið af störfum sem framkvæmdastjóri Læknafélags Íslands. Aðspurður segist hann hafa heillast að hugmyndinni um einka­ rekið liðskiptasjúkrahús af þeim ástæðum að hér var um að ræða verkefni sem reiddi sig ekki að neinu leyti á aðkomu ríkisins. „Í gegnum starf mitt hjá læknafélaginu hef ég komist í kynni við alls kyns hug­ myndir um einkarekstur á sviði heil­ brigðisþjónustu. Engin þeirra hefur orðið að veruleika. Þessi er annars eðlis. Bæði er um að ræða hugmynd sem byggir alfarið á aðgerðum á er­ lendum sjúklingum og hins vegar eru umhverfismálin stór þáttur,” seg­ ir Gunnar. „Strax frá fyrstu stundu sá ég að þarna var um einstaka hug­ mynd að ræða,” segir hann. „Síðar kom á daginn að ég var ekki einn um þá skoðun sem sést á þeim öfluga hópi samstarfsaðila sem við höfum fengið með okkur í lið,” bendir Gunnar á. Að hans sögn hefur verkefnið verið unnið af mikilli fagmennsku, enda sé mikið í húfi. Um sé að ræða verkefni sem geti haft verulega jákvæð áhrif á efnahag landsins með auknum gjald­ eyristekjum og allt að eitt þúsund nýjum störfum, þar af mörgum sem krefjast sérmenntunar. Auk þess skapist afleidd störf í sveitarfélaginu og auknar tekjur af þeim þúsundum sjúklinga og gesta sem dveldust á sjúkrahúsinu og hótelinu árlega. Gunnar Ármannsson framkvæmdastjóri PrimaCare er bjartsýnn á að einkarekið liðskiptasjúkrahús og hótel rísi í Mosfellsbæ Fyrsta aðgerðin gerð 12.12.2012 „Næstu mánuðir eru nánast próf­steinn um það hvort okkur takist að láta þessa hug­mynd verða að veruleika.” í nágrenni Sólvalla Fjölmennur kynningarfundur um stofnun heilsuklasa í Mosfellsbæ fór fram í Kjarna. PrimaCare og Mosfellsbær hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um byggingu einka- rekins liðskiptasjúkrahúss og hótels.

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.