Mosfellingur - 19.03.2010, Blaðsíða 10
- Kraftur, snerpa, úthald, ending...10
Föstudaginn 12. febrúar opnaði ný og glæsileg tannlæknastofa í miðbæ
Mosfellsbæjar, Tannlæknastofa Ragnars Kr. Árnasonar. Hún er staðsett í
Háholti 14 á annari hæð. Mosfellingurinn Ragnar Kr. Árnason hafði verið
með stofu sína í Kópavogi undanfarin 20 ár en ákvað síðastliðið haust að
hefjast handa við að innrétta nýja framtíðaraðstöðu hérna í Mosfellsbæ.
Nýja stofan er öll hin glæsilegasta og vel tækjum búinn. Davíð Karl
Karlsson byggingafræðingur hannaði innviði nýju stofunnar og flutti til
þess til landsins sérhannaðar danskar innréttingar.
„Það er ánægjulegt að vera nú kominn með nýju stofuna í gang hér í
okkar heimabyggð. Ég hlakka til að bæta íbúum Mosfellsbæjar inn í mína
þjónustu og vonast til þess að verða vel tekið af bæjarbúum“ segir Ragnar.
„Það er mjög mikilvægt að vera með góð tæki og góða aðstöðu svo fólki
líði vel í stólnum. Ég er búinn að uppfæra flest mín tæki og tól í takt við
nýja tíma. Þess má einnig geta að ég býð upp á nokkuð frjálsan opnunar
tíma sem þýðir að fólk getur gjarnan komið til mín eftir að vinnutíma þess
lýkur,” segir Ragnar.
Ragnar er 52 ára gamall og hefur um árabil búið í Grenibyggð í Mos
fellsbæ ásamt eiginkonu sinni Unni Valdemarsdóttir sem er innfæddur
Mosfellingur í húð og hár. Unnur er dóttir Valdemars Jónssonar píanó
kennara úr Varmadal og Þórdísar Kjartansdóttur.
Ragnar Kr. Árnason opnar stofu í Miðholti 14
Ný tannlæknastofa
Ragnar býður Mosfellinga
velkomna á nýju stofuna.
Glæsilegt kvöld til styrktar handknattleiksdeild
Boltaballið endurvakið
Heiðurshjónin Margrét og Bjarni Ásgeir. Veislustjórarnir Hilmar og Ragnheiður.
Anna Sigga hreppti Þránd í uppboði. Jóndi, Sigga, Kata og Hilmar sáu um undirbúning.
Glæsilegt Boltaball var haldið í Hlégarði laugardaginn 6. mars. Steikarhlað
borð að hætti Vignis og fjöldi skemmtiatriða. Hljómsveitin Bob Gillan og
Ztrandverðirnir sló svo botninn í kvöldið. Kraftur, snerpa, úthald, ending...