Mosfellingur - 19.03.2010, Qupperneq 14
Maður fyllist sannarlegaorku að vera í návistGuðrúnar Kristínar eða
GunnuStínueinsoghúnerávallt
kölluðendaákaflegakraftmikilog
drífandikonaáferð.Þessadagana
erhúnásamtfjöldafólksaðund-
irbúa stórmót í blaki sem hlotið
hefurnafniðMosöld2010tilheið-
ursþeimMosfellingumsemendur-
vöktublakiðhéríbæárið1978.
„Ég tel mig vera Norðfirðing því
ég er alin upp í Neskaupsstað,” seg
ir Gunna Stína. „Það var ákaflega
gott að alast upp fyrir austan, ég
æfði handbolta alla mína barnæsku
ásamt því að vera virk í skátastarfi.
Á unglingsárunum vann ég í öllum
mínum fríum í frystihúsinu og það
var alltaf heilmikið fjör hjá okkur á
sumrin.”
Guðrún Kristín er fædd 12. sept
ember 1961 í Neskaupsstað. Hún
er dóttir Rósu Skarphéðinsdóttur
og Einars Þórs Halldórssonar sjó
manns, en Einar lést í sjóslysi árið
1971. Hún er næst elst sex systkina
þeirra Kristins Halldórs, Sigríðar
Stefaníu, Sólveigar, Þóreyjar Bjargar
og Einars Björns. Seinni eiginmaður
Rósu er Jón Sigurðsson.
Sonur Gunnu Stínu er Viktor Em
ile fæddur 9. júlí 1997, en hann á
hún með Christian Gauvrit fyrrver
andi sambýlismanni sínum.
Útskrifaðist sem geislafræðingur
„Ég flutti til Reykjavíkur þegar
ég var sautján ára en flutti síðan aft
ur austur og hélt áfram að vinna í
frystihúsinu. Ég hóf síðan nám við
Menntaskólann á Egilsstöð
um og útskrifaðist þaðan ár
ið 1984. Eftir útskrift ákvað
ég að verða röntgentæknir
eins og starfsgreinin hét þá,
en í dag kallast það að vera geisla
fræðingur. Nýir nemendur voru
ekki teknir inn í skólann á haustönn
svo ég ákvað að flytja suður og sækja
um vinnu á röntgendeild Borgarspít
alans til að kynnast starfinu betur og
fékk starfið.”
námsferð til Kína
„Ég flutti til Svíþjóð
ar árið 1985 og bjó þar
í átta ár. Starfaði bæði
í Helsingborg og í Lundi og sótti
nám í geislafræði og nálastungum.
Í október árið 1990 fór ég í tveggja
mánaða námsferð til Kína. Það var
ótrúlega skemmtileg og fróðleg ferð.
Eftir hana ætlaði ég að flytja heim
og byrja að vinna við nálastungurn
ar en fékk þau svör að ég mætti það
ekki. Mitt nám var metið af sænska
heilbrigðiskerfinu og var námshæft
hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna
en ég mátti ekki vinna við það, þar
sem ég var ekki læknir.”
Vann á hersjúkrahúsi
„Ég ákvað fyrst ég gat ekki starfað
við mitt nám heima að skella mér til
Saudi Arabíu. Ég sótti um vinnu á
hersjúkrahúsi sem geislafræðingur
og fór þangað í febrúar 1993 rétt eft
ir Persaflóastríðið. Ég vann í Saudi
Arabíu í fimmtán mánuði og kynnt
ist þar barnsföður mínum sem er
franskur, svo í staðinn fyrir að flytja
til Íslands þá flutti ég til Frakklands.
Ég bjó í Frakklandi í tæpt ár, en ár
ið 1995 fluttum við til Íslands og
ég fékk vinnu á röntgendeildinni
á Landakoti. Í dag starfa ég hjá Ís
lenskri myndgreiningu í Orkuhús
inu. Við Christian slitum samvistir
árið 2001.
skellti sér á blakæfingu
„Árið 1996 keyptum við okkur
íbúð í Mosfellsbæ. Haustið 1999
frétti ég af kvennahópi sem væri far
inn að æfa blak með Aftureldingu
svo ég skellti mér á æfingu. Árið
2000 fórum við á okkar fyrsta Íslands
mót Öldunga í blaki en það er eitt
stærsta mót sem haldið er á Íslandi
á hverju ári. Það var haldið í Reykja
vík og við unnum okkar deild.
Árið eftir var mótið haldið á Akur
eyri, þá var ég orðin formaður deild
arinnar. Við unnum deildina okkar
líka þar og sóttum einnig um að
halda næsta mót sem við og fengum
og skýrðum við það Mosöld 2002.
Mótið fengum við einungis vegna
þess að við ætluðum að koma af stað
barna og unglingastarfi á vegum
deildarinnar sem við og gerðum,”
segir Gunna Stína stolt á svip.
Besta blakaðstaðan í mosfellsbæ
„Árið 2003 fékk Blakdeildin starfs
bikar Aftureldingar meðal annars
fyrir Mosöldina því hún tókst frábær
lega vel. Mosfellsbær býr yfir bestu
blakaðstöðu á landinu með níu velli
undir sama þaki. Árið 2005 fengum
við aftur starfsbikar félagsins og þá
fyrir starfið í barna og unglinga
deildinni. Ég er mjög stolt af þessum
viðurkenningum fyrir hönd blakara
og blakforeldra.”
sæmd viðurkenningum
Gunna Stína hefur verið sæmd
hinum ýmsu viðurkenningum og
hér er stiklað á stóru. Á ársþingi
UMSK árið 2008 var hún sæmd
starfsmerki sambandsins. Á hundr
að ára afmæli Aftureldingar fékk
hún silfurmerki ÍSÍ vegna vinnu
sinnar innan blakhreyfingarinnar.
Á uppskeruhátíð Aftureldingar fékk
hún viðurkenninguna, vinnuþjark
urinn og fyrir Mosöld 2010 var hún
tilnefnd sem Blaköldungur 2010.
Gert ráð fyrir miklum fjölda
Öldungamót BLÍ verður haldið í
Mosfellsbæ dagana 13.15. maí. Það
má búast við um þúsund manns í
bæinn vegna mótsins. Það skiptir
mjög miklu máli fyrir þjónustufyr
irtæki í Mosfellsbæ að vera sýnileg
með einhverjum hætti fyrir þetta
mót, því mótsgestir koma til með að
nýta sér þá þjónustu sem er í boði.
Við erum byrjuð að selja auglýs
ingar í mótaskrá mótsins sem allir
keppendur bera með sér alla helg
ina og þar geta þjónustuaðilar aug
lýst sig og verið með sérstök blaktil
boð í tilefni mótsins.
Blakdeildin er þegar búin að opna
heimasíðu mótsins þar sem allar
upplýsingar varðandi mótið og alla
þjónustu sem við höfum upp á að
bjóða kemur fram ásamt styrktarað
ilum að sjálfsögðu. Slóðin er: www.
mosold.is.
Myndir: Ruth Örnólfs og úr einkasafni.
- viðtal / mosfellingurinn Guðrún Kristín einarsdóttir14
MOSFELLINGURINN
Eftir ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Tilhlökkunin mikil
Guðrún Kristín Einarsdóttir geislafræðingur og formaður blakdeildar Aftureldingar gerir ráð fyrir hátt í þúsund
mótsgestum í Mosfellsbæ dagana 13.-15. maí. Þá fer fram Öldungamót Blaksambands Íslands að Varmá.
Mæðginin Viktor Emile og Gunna Stína.