Mosfellingur - 19.03.2010, Blaðsíða 15

Mosfellingur - 19.03.2010, Blaðsíða 15
www.mosfellingur.is - 15 Tilhlökkunin mikil Guðrún Kristín Einarsdóttir geislafræðingur og formaður blakdeildar Aftureldingar gerir ráð fyrir hátt í þúsund mótsgestum í Mosfellsbæ dagana 13.-15. maí. Þá fer fram Öldungamót Blaksambands Íslands að Varmá. Nóatúnsbúðirnar við Hringbraut, í Austurveri og Grafarholti eru nú opnar allan sólarhringinn. Nú geta viðskiptavinirnir verslað þar hven­ ær sem þeim hentar og nýtt sér hag­ kvæmara verð en í flestum öðrum verslunum sem eru opnar á nótt­ unni. „Viðskiptavinir hafa óskað eftir auknu aðgengi að verslunum okkar, vöruvali og þjónustu sem við bjóð­ um,” segir Bjarni Friðrik Jóhannes­ son, rekstrarstjóri Nóatúns. „Við viljum því aðlaga opnunartíma okk­ ar þannig að sem flestir geti nýtt sér kost þess að eiga viðskipti sín hjá okkur á þeim tíma sem hentar.” Óbreytt verð­ á góð­um stöð­um í borginni Hann bendir jafnframt á að vöru­ verðið í Nóatúni sé það sama í öllum verslununum. „Það hefur ekki hækk­ að þrátt fyrir þessa auknu þjónustu sem næturopnun býður upp á.” Bjarni segir að staðsetningar þess­ ara verslana séu mjög góðar með til­ liti til næturopnunar. „Hringbrautin þjóni vestur­ og miðbæ Reykjavíkur og Seltjarnarnesi. Austurver þjóni fyrst og fremst miðsvæðinu og inn í Kópavog og Grafarholtið muni þjó­ na Grafarholtinu, Grafarvogi, Árbæ og Mosfellsbæ.” Verslanirnar verða mannaðar þjálfuðum öryggisvörðum yfir nótt­ ina sem jafnframt munu sinna versl­ unarstörfum og almennri þjónustu. meira vöruúrval í nóatúni Boðið verður upp á nýbakað brauð í bakaríum Nóatúns frá klukk­ an sex á morgnana. Kjötborðum verður lokað klukkan átta á kvöldin eins og verið hefur, en boðið verður upp á sérpökkun til að uppfylla þarf­ ir viðskiptavina. „Við munum bjóða upp á grillaðan kjúkling úr sjálfsaf­ greiðsluborðum fram eftir kvöldi auk þess sem salatbarirnir verða opnir til miðnættis.” En er þessi næturopnun komin til að vera? „Já, tvímælalaust,” fullyrðir Bjarni. „Við bjóðum upp á hagkvæm­ ara verð og meira vöruúrval en flest­ ar verslanir sem eru opnar á þessum tíma sólarhringsins.” Mosfellingar geta nú verslað allan sólarhringinn í næsta nágrenni og vöruverð Nóatúns helst óbreytt Nóatún hefur nú líka op­ið á nóttunni Málefnavinna sjálfstæðismanna fyrir komandi sveitarstjórnakosningar er í fullum gangi. Upplýsingar um fundi er að finna á www.mos.xd.is. Allt áhugafólk um málefnaskrá sjálfstæðisflokksins velkomið. Viljum einnig vekja athygli á að hægt er að senda inn ábendingar og hugmyndir um atriði sem erindi geta átt í þessa umræðu á póstfangið mos@xd.is Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ tAktu þátt í Að mótA bæinn þinn Bjarni Friðrik Jóhannesson rekstrarstjóri fyrir framan verslun Nóatúns í Grafarholti. Nóatún er þekkt fyrir gæði og þjónustu. Kynning Do you have spare childrens clothes that you want to swap to a different type or size? A swap marked is operated in Þverholt 7, every Tuesday and Thursday between 10-13. Free of charge - we look forward to see you! Afternoon openings between 17-19 on following Tuesdays: 30. mars, 13. apríl, 27. apríl Hvetjum foreldra til að koma með heilleg föt sem börnin ykkar eru vaxin upp úr og skipta yfir í aðrar stærðir eða öðruvísi föt og skó. Ókeypis f­yrir alla – láttu sjá þig! Wanna sWap? Viltu sKipta?

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.