Mosfellingur - 28.04.2006, Síða 2
Í ÞÁ GÖMLU GÓÐU...
Mosfellingur - Leiðari og skemmtiefni2
...þegar Mosfellssveitin var
með vaxtaverki. Myndin er
tekin frá Lágafelli, rétt fyrir
ofan verðandi Krikahverfi , í átt
að Teigahverfi nu. Víðiteigurinn
er í byggingu rétt eins og húsin
í Löndunum en nær fremst
trónir fullbyggt raðhús í Stóra-
teigi. Hálff eiminn í fjarska,
í felum á bakvið tré sést svo
aldursforsetinn Garður. Það
skemmtilega við þessa mynd
er að hverfi n tvö, sem alllangt
er á milli, virðast vera eitt og
sama hverfi ð. Hvern myndi óra
fyrir því að á milli innstu og
ystu húsanna sé heil kvos sem
á rennur um? Myndin er tekin
um og í kringum 1984.
Útgefandi: Mosfellingur ehf.
Álafossvegi 18, s. 694-6426 og 897-7664.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson
Ritstjórn: Hilmar Gunnarsson,
Karl Tómasson og Ágúst Bernhardsson.
Blaðamenn og pistlahöfundar:
Ásgeir Jónsson, Friðrik G. Olgeirsson,
Hanna Símonardóttir, Högni Snær
Hauksson, Kara Hergils Valdimarsdóttir,
Þrándur Gíslason og Örn Franzson
Umbrot og hönnun:
Mosfellingur ehf.
Próförk: Hjördís Kvaran Einarsdóttir
Prentun: Prentmet, prentað í 3000
eintökum og dreift frítt inn á öll
heimili og fyrirtæki í Mosfellsbæ,
Kjalarnes og Kjós.
MOSFELLINGUR
mosfellingur@mosfellingur.is
Börnin í bænum
Gleðilegt sumar Mosfellingar!
Ekki Mosfellsbæjarbúar, eins
og stóð á pósti einum sem barst
mér um daginn. Guð minn almátt-
ugur hvað það er hallærislegt,
Mosfellsbæjarbúi. Ég er og verð
allavega Mosfellingur meðan ég
lifi . Þetta er eins og að kalla fólk frá
Hellu, Hellisbúa væri ekki nær að
kalla það Helling?
En allt í lagi með það. Enn stytt-
ist í bæjarstjórnarkosningarnar,
bærinn iðar af lífi þessa dagana og
dreifi pésunum frá framboðunu rign-
ir inn um lúguna. Kynning á fram-
bjóðendum og stefnumálum fl okka-
na eins og gengur og gerist. Þetta er
svo reynt að djúsa upp með fréttum
úr bæjarlífi nu. Oftar
en ekki fréttir sem
birtust í Mosfell-
ingi u.þ.b. tveimur
mánuðum áður. En
þetta reyndar gerist
ekki nema fyrir jól
og kosn ingar.
En talandi um
kosningar, þá er
ég á þeim buxu-
num að það ætti
að banna skoðanakannan ir og reyna
að gera þetta svolítið meira spen-
nandi. Tækninni fl eytir svo hratt fram
að þær kannanir sem gerðar eru rétt
fyrir kosn ingar eru allsvakalega nærri
þeim úrslitum sem munu verða. Þetta
gerir síðustu dagana fyrir kosningar
ekki eins spennandi og skemmtilega
og ella og kosningavökurnar eru nán-
ast fyrirfram bókaðar.
Alltaf þegar það er hringt í mig frá
Gallup eða öðru eins fyrirtæki þá seg-
ist ég alltaf kjósa einhvern allt annan
fl okk en þann sem mér dytti í hug að
kjósa. Vona að fl eiri geri það líka.
Blaðið í þetta skiptið er undirlagt
pólitískum greinum og hvet ég fólk til
að láta sig bæjarmálin varða og hugsa
sig vel um áður en gengið er að kjör-
borðinu.
Hilmar Gunnarsson
ritstjóriL E I Ð A R I
Hellingur að gerast
f lli r - Fréttir, bæjar ál og aðsendar greinar
Undanfarna viku hefur staðið yfi r menn
ingarvika leikskóla-
barna í Kjarna. Þar gaf á að líta fjölbrey
tt úrval litskrúðugra
listaverka sem hafa skírskotun í hugmyn
daheim barnanna.
Á myndinni má sjá unga listunnendur s
em sumir hverjir ef
ekki allir hafa átt verk á sýningunni.
Sími: 586 8080
www.fastmos.is
Kjarna, Þverholti 2
Mosfellsbæ
Þverholt – 114 m2 íbúð.
114,1 m2, 3ja herbergja íbúð á 2. hæð við
Þverholt í Mosfellsbæ. Eldhús með U-laga
innréttingu, góðum borðkrók og búrherbergi,
stór stofa, baðherbergi m/kari og sturtu,
gott svefnherbergi og stórt hjónaherbergi
+ fataherbergi. Þetta er stór og rúmgóð íbúð
með möguleika á 3ja svefnherberginu.
Verð kr. 20,3 m.
Hjallahlíð – 4ra herb. + bílskúr Álmholt – efri sérhæð m/2f. bílskúr
142,8 m2 efri hæð ásamt 50 m2 tvöföldum
bílskúr, með glæsilegu útsýni yfir Leirvoginn
og að Esjunni. Fjögur góð svefnherbergi,
eldhús m/borðkrók, stór stofa með kamínu
og björt borðstofa, sjónvarpshol, baðherbergi
og gestasalerni ásamt góðu þvottahúsi.
Frábær staðsetning, neðst í botnlanga í
grónu hverfi. Gönguleiðir, golfvöllur og
hesthúsahverfi í næsta nágrenni.
Verð kr. 35,6 m.
Furubyggð – 166,3 m2 endarðahús
*NÝTT Á SKRÁ*
Vorum að fá stórt og rúmgott endaraðhús á
tveimur hæðum auk risherbergis og bílskúrs.
Stofa, borðstofa, eldhús, þvottahús og
gestasalerni á jarðhæð, 3 svefnherbergi,
baðherbergi og TV-hol á 2. hæð og stórt
risherbergi. Stórar svalir í suðaustur, afgirt
timburverönd út frá stofu og stórt hellulagt
bílaplan. Þetta er falleg eign í grónu og friðsælu
hverfi í Mosfellsbæ.
Verð kr. 39,3 m.
Furubyggð – 109,5 m2 raðhús
Til sölu 109,5 m2 raðhús á einni hæð við
Furubyggð. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi,
stór stofa og eldhús, hol, baðherbergi og
sér þvottahús. Gott bílastæði er fyrir framan
húsið og sér afgirtur garður í suðurátt. Húsið
er byggt árið 1990, en komið er að
andlitslyftingu og því tilvalið tækifæri fyrir
laghenta. **Íbúðin er laus til afhendingar**
Verð kr. 25,9 m.
Bjargartangi – sérhæð.
*NÝTT Á SKRÁ*
Vorum að fá bjarta og vel skipulagða 152,2
m2 neðri sérhæð með möguleika á 50 m2
bílskúr, með sér aðkomu á góðum stað í
Mosfellsbæ. 3 svefnherbergi, baðherbergi
m/kari, sér þvottahús, stór geymsla, lokað
eldhús m/borðkrók, sjónvarpshol, borðstofa
og stofa með arni. Sér garður út frá stofu og
stór sameiginleg lóð. Bílastæði hellulagt og
aðkoma frá Álfatanga.
Verð kr. 34,9 m.
Álmholt – 236 m2 einbýli + aukaíb.
Erum með 236,1 m2 einbýlishús með
aukaíbúð í kjallara, þar af 48,2 m2 tvöfaldur
bílskúr. Aðalhæðin er 140 m2 og skiptist í
stofu, eldhús, þvottahús, 4 svefnherbergi og
baðherbergi. Í kjallara er björt 2ja herbergja
íbúð tilvalin til útleigu eða fyrir unglinginn.
Húsið stendur innarlega í lóðinni og stórt og
gott bílaplan og mikill suðurgarður. Áhvílandi
hagstæð 12,0 milljón kr. lán
**Verð kr. 46,2 m.**
Klapparhlíð – 3ja herb.
*NÝTT Á SKRÁ*
Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á
2. hæð í nýlegu 3ja hæða fjölbýli á
vestursvæði Mosfellsbæjar. Nýr grunnskóli
og leikskóli eru 3 mínútna göngufjarlægð, en
auk þess er verið að byggja inni/úitsundlaug
ásamt íþróttahúsi á sama stað. Tvö góð
svefnherbergi, baðherbergi m/kari, sér
þvottahús, geymsla inni í íbúð, fallegt eldhús
og björt stofa.
Verð kr. 19,9 m.
Fellsás – 285,5 m2 einbýlishús
Erum með 285,5 m2 einbýlishús á sérlega
fallegum útsýnisstað í hlíðum Helgafells í
Mosfellsbæ Húsið er á tveimur hæðum og
ber augljós merki arkteksins, Vífils
Magnússonar. Í húsinu er mjög stórt eldhús,
stór stofa, sólskáli, 4 góð svefnherbergi, tvö
baðherbergi og sjónvarpshol. Á jarðhæð er
stór tvöfaldur bílskúr og 70 m2 íbúðarrými,
sem vel gæti nýst sem aukaíbúð, skrifstofa
eða unglingaherbergi.
Verð kr. 54,0 m.
Furubyggð – 107 m2 endaraðhús.
*NÝTT Á SKRÁ*
Þetta er 107,2 m2 endaraðhús með stórum
suðurgarði í fallegri og gróinni götu. Í húsinu
eru tvö rúmgóð svefnherbergi, flísalagt
baðherbergi m/kari og sturtu, eldhús
m/borðkrók og stór stofa og sólstofa (nú
notuð sem 3ja svefnherbergið). Hellulagt
bílaplan með snjóbræðslu og stór og skjósæll
suðurgarður.
Verð kr. 29,5 m.
Bjargslundur – NÝTT 207 m2 einb.
*NÝTT Á SKRÁ*
Vorum að fá mjög fallegt einbýlishús í
byggingu í útjaðri byggðar í Mosfellsbæ.
Húsið einnar hæðar timburhús með
innbyggðum bílskúr og afhendist
TILBÚIÐ TIL INNRÉTTINGA í júní nk.
Þetta er vel skipulagt og sjarmerandi hús
sem stendur á 882,2 m2 eignalóð á fallegum
stað, rétt við Varmá og Reyki.
Verð kr. 45,9 m.
EINAR PÁLL KJÆRNESTED
Löggiltur fasteignasali
*NÝTT Á SKRÁ*
Vorum að fá 94 m2, 4ra herbergja íbúð á
jarðhæð í 4ra íbúða Permaformhúsi, ásamt
27,7 m2 bílskúr. Sér inngangur í íbúðina og
sér lóðarpartur þar sem hægt væri að gera
timburverönd. Þetta eru hagstæða íbúðir í
rekstri, íbúðin þarfnast nokkura endurbóta..
Frábær staðsetning, skóli og leikskóli í
næstu götu.
Verð kr. 24,3 m.
Urðarholt – 150 m2 atvinnuhúsnæði
Erum með 150 m2 atvinnuhúsnæði á jarðhæð
í miðbæ Mosfellsbæjar. Gott verslunarpláss
og inn af því hefur verið innréttuð
íbúðaraðstaða. Gott gluggapláss er út á
bílastæðið og gott aðgengi. Rýmið stendur
við Mosfellsbakarí sem er eitt best bakarí á
landinu.
Verð kr. 22,5 m.
Grundartangi – 62 m2 endaraðhús
*NÝTT Á SKRÁ*
Vorum að fá lítið og sætt 62 m2 endaraðhús
á einni hæð með verönd og sérgarði. Íbúðin
skiptist í bjarta stofu, eldhús, gott
hjónaherbergi, baðherbergi m/kari og
geymslu. Út frá stofu er steypt verönd og
garður í suðurátt. Þetta er snotur eign fyrir
litla fjölskyldu - líklegast eitt minnsta sérbýli
sem völ er á.
Verð kr. 16,9 m.
Mosfellingur kemur út að
jafnaði á tveggja til þriggja
vikna fresti allt árið um kring.