Mosfellingur - 28.04.2006, Síða 9

Mosfellingur - 28.04.2006, Síða 9
Ég lifi og hrærist í íþróttum og við að fræða fólk um mikilvægi heilbrigðs lífernis daginn út og daginn inn bæði vegna starfs míns og áhugamála. Þess vegna fannst mér frábært þeg- ar ég fékk boð um að vera í Íþrótta - og tómstundanefnd Mosfellsbæjar. Ég hef fengið að koma að mörgum málum sem hafa hjálpað börnum, unglingum og fullorðnu fólki til að fá tækifæri til að hreyfa sig, auka heil- brigði sitt og hafa til þess aðstöðu hér í bæ. Með öðrum orðum efla bæinn okkar. Fyrir það vil ég þakka. Ég hef verið í Íþrótta– og tómstundanefnd í tvö kjörtímabil undir forystu ólíkra afla. Áður fyrr voru málin rædd til fullnustu í fagnefndinni á lýðræðisleg- an hátt áður en þau fóru til umræðu í bæjarstjórn. Var samstarf minni- og meirihluta til fyrirmyndar. Nú á seinna kjörtímabilinu gerist það allt of oft að fagnefndin er ekkert höfð með í ráðum sem ég túlka sem brot á reglum og markmiðum nefndarinnar. Ég get ekki annað en upplýst bæjarbúa um upplifun mína í Íþrótta- og tómstundanefnd núna á þessu kjörtímabili þar sem sjálfstæðismenn eru við völd. Það er sem betur fer margt gott sem tekið er fyrir á þessum fundum og framkvæmt þó að alltof mörg stórmál, sem eru afdrifarík fyrir bæj- arfélagið okkar, koma ekki til umfjöll- unar í fagnefndinni. Ég hef gagnrýnt undarlegt og ólýðræðislegt vinnuferli hjá meirihlutanum í þó nokkrum málum og finnst mér eins og sjálf- stæðismenn hafi gleymt markmiði Íþrótta – og tómstundanefndar sem er fyrst og fremst að vera ráðgefandi fag- nefnd fyrir bæjarstjórn Mosfellsbæjar varðandi íþrótta- og tómstundamál. Annað hvort vita þeir þetta ekki eða virðast hafa gleymt því. Hægt er að lesa um samþykkt fyrir Íþrótta – og tómstundanefnd á mos.is. Þar stend- ur orðrétt í 3. grein: Hlutverk íþrótta- og tómstundanefndar er: • Að gera tillögur til bæjarstjórnar um stefnu í íþrótta – og tómstundamálum og hafa eftirlit með að stefna bæjar- yfirvalsa á hverjum tíma sé haldin. • Að hafa eftirlit með stofnunum, sem vinna að íþrótta – og tómstunda- málum og fylgjast með að þær vinni að settum markmiðum, í samræmi við lög og veiti góða þjónustu. • Að vera bæjarstjórn að öðru leyti til ráðuneytis í íþrótta- og tómstunda- málum. Ég er ósátt við að vera sökuð um að fara með rangfærslur og að tortryggja uppbyggingu íþróttamannvirkja þegar ég vinn í nefndinni af heilum hug. Mitt markmið er að gæta þess, að málin fari í réttan farveg og fái eð- lilega umfjöllun í fagnefndinni og leit- að sé bestu leiða. Það eru lýðræðisleg vinnubrögð. Mín upplifun er sú að nefndin fái ekki að starfa sem fagnefnd en sé háð duttlungum „kóngs og drottningar” og er ég orðin dauðþreytt á að vera einhver „puntudúkka“ í Íþrótta- og tómstundanefnd. 9 Mosfellingur Rétt skal vera rétt Halla Karen Kristjánsdóttir Íþróttakennari og fulltrúi B-lista í Íþrótta- og tómstunda- nefnd Glitnir gerir styrktarsamning við Hestamannafélagið Hörð 29. apríl

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.