Mosfellingur - 29.09.2006, Blaðsíða 14
Í eldhúsinu hjá Guðrúnu Mark
Guðrún Markúsdóttir, deildarstjóri
miðstigs og upplýsingafulltrúi Var-
márskóla, sendir okkur uppskrift að
ekta amerískri bláberjaböku að þessu
sinni. „Ég er hérna með uppskrift af
bláberjapæi eða bláberjaböku. Nú er
berjatíminn í hámarki. Ég elska að liggja
úti í góðu veðri og tína í nokkrar bökur.
Þessa uppskrift fékk ég frá Rannveigu
Tryggvadóttur, hún hélt matreiðslunám-
skeið í Reykjavík fyrir mörgum árum.
Þessi baka er mjög vinsæl á mínu hei-
mili, það er líka gott að eiga hana í frysti,
eins geymi ég oft bláber í öskju í frysti og
bý til bökur þó að berin séu ekki fersk.
Bakan er borin fram með vanilluís eða
þeyttum rjóma. Það er líka gott að nota
rifsber í þessa böku.“
100 g smjör
1 ½ bolli rasp (ókryddað)
¼ bolli hakkaðar valhnetur
¼ bolli sykur
Smjörið brætt, öllu blandað sa-
man við, sett í eldfast mót.
Geyma eins og 2 msk. af
bökubotninum og mylja það ofan
á bökuna í lokin til skrauts.
Bakað í 10 mín. í miðjum ofni á
200°C.
Kælt.
250 g rjómaostur
2 eggjarauður
½ bolli sýrður rjómi
1 bolli sykur
2 bollar bláber
Rjómaostur blandaður rauðum,
þeytt saman.
Sýrðum rjóma, sykri, bláberjum
blandað saman við.
Sett á bökubotninn.
Kælt í ísskáp þar til að kremið er
aðeins búið að taka sig.
Marengs settur yfi r í lokin.
2 eggjahvítur
2 msk. sykur, stífþeytt saman
2 msk. valhnetur sett út í
marengsinn.
Marensinn settur yfi r kremið og
bakað í 10 mín. á 200°C.
Kælt og síðan fryst í
a.m.k. 2 – 3 tíma.
Tekið út rúmum klukkutíma áður
en borið er fram.
Mosfellingur - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar14
Dansað í Kvosinni
Margvísleg námskeið eru í
boði um þessar mundir í Ála-
fosskvos. Þar er Myndlistar skóli
Mosfellsbæjar með starfsemi
sína, en jafnframt Tómstundar-
skóli með kennslu í tungumálum,
handverki o.fl . Meðal annars
verður Hafl iði Ragnarsson, okkar
alþjóðlegi meistari í Mosfells-
bakaríi, með námskeið í konfekt-
gerð. Mannræktin ATORKA er
með aðsetur í Þrúðvangi en þar er
boðið upp á morgun-, síðdegis-
og kvöldtíma (karlahópur) í Rope
Yoga. Nú í byrjun október er að
hefjast dansnámskeið. Hinir
landsfrægu tangómeistarar Hany
Hadaya og Bryndís Halldórsdóttir
verða með námskeið í argentínsk-
um tangó á mánudagskvöldum.
Salsa og suðræn sveifl a verður á
miðvikudagskvöldum, en síðan
mætir Íslandsmeistari í maga-
dansi á laugardagsmorgnum og
kennir þennan öfl uga frjósem-
isdans. Reikna má því með að líf
verði í Kvosinni sem aldrei fyrr.
Amerísk bláberjabaka
Nú stendur yfi r sýning á málver-
kum Steinunnar Marteinsdóttur í
Listasal Mosfellsbæjar. Á sýningunni
gefur að líta nýjustu málverk Stein-
unnar þar sem hún fjallar um land og
náttúru. Steinunn nálgast náttúruna
sem lifandi veru hlaðna vissri dulúð,
náttúru sem á undir högg að sækja
vegna síaukinna umsvifa mannsins
og framkvæmdahroka. Hér er á ferð-
inni einstaklega næm sýning þar sem
fegurð og töfrar landsins fá að leika
lausum hala.
Fjöldi manns leit við á opnun
sýningarinnar sl. laugardag í Listasal
Mosfellsbæjar sem staðsettur er í
Bókasafni Mosfellsbæjar, Kjarna.
Salurinn er opinn á afgreiðslutímum
safnsins: mánudaga – föstudaga kl.
12 – 19 og laugardaga kl. 12 – 15.
Myndlistarsýning Steinunnar Marteinsdóttur í Listasal Mosfellsbæjar 23. sep. – 14. okt. 2006
Lifandi land – lifandi vatn