Mosfellingur - 20.10.2006, Síða 12
Ragnheiður er gift Daða Runólfs-
syni og eiga þau tvö börn og þrjú
barna börn. Mosfellingur hitti Ragn-
heiði á dögunum og ræddi við hana
um bæjar málin, landsmálin, Leir-
vogstunguna og allt milli himins og
jarðar.
Hver er Ragheiður Ríkharðs-
dóttir? „Hún er sjálfstæð og ákveðin
kona sem fædd er í krabbanum og
er þess vegna afar tilfi nningarík og
stundum dálítið viðkvæm, mikil
fjölskyldumanneskja og vinur vina
sinna. Kemur kannski einhverjum á
óvart en svona er það nú samt.”
Af hverju alþingi? „Þessi ákvörð-
un er tekin vegna áskorana og þe-
gar ljóst varð að Sigríður Anna færi
ekki fram. Landsmálin snerta alla
þjóðina og það eru ýmis mál
sem mér fi nnst að við þur-
fum að sinna betur og ég fæ
kannski tækifæri til að koma
að. Hver veit?”
Býstu við harðri baráttu
um sæti á listanum? „Í allri
keppni fer maður fram af
krafti og í þessu prófkjöri tak-
ast á samherjar sem allir
vilja láta til sín taka.
Ég mun keppa
á mínum
verðleik um
og því sem
ég stend
f y r i r ,
k r a f t u r
og reynsla og berjast heiðarlega, ég
er keppnismanneskja og tek þátt í
keppni til þess að vinna.”
Hvernig eru viðbrögðin við fram-
boðinu? „Þau hafa verið frábær og ég
fæ hvatningu og notaleg orð frá ótal
mörgum.”
Hefur þú alltaf stefnt á lands-
málin? „Nei, ekki fyrr en nú.”
Hvað verður um bæjar stjóra-
stólinn? „Það er alveg ljóst að ef ég
næ þriðja sæti þá verð ég á leiðinni á
alþingi frá og með 11. nóv ember og
það er fullt starf og þá þarf að ræða
hvenær ég læt af störfum sem bæj-
arstjóri en ég mun áfram vera bæjar-
fulltrúi eins og ég er kjörin til.”
Hvernig fi nnst þér
hafa til tekist sem
bæjarstjóri? „Mér
fi nnst mér og mí-
num samherj um
hafa tekist vel til.
Starf bæjarstjóra er
rosalega skemmti-
legt og fjölbreytilegt en
einnig afar krefjandi.”
Hvernig er að vinna
með Vinstri-græn-
um? „Samstarfi ð
gengur mjög vel,
það rík ir traust
og heiðarleiki í
samskiptum og
sam vinnu og á
því byggist gott
samstarf. Við munum sam an leiða
þetta bæjarfélag og styrkja.”
Hvernig líst þér á byggðina í
kringum ykkur í Leirvogstungunni?
„Þetta er mikið rask og afar mikil
breyting. En við Daði höfum enga
ákvörðun tekið um að fara af þessum
góða stað.”
Áttu einhver fl eiri áhugamál
fyrir utan pólitík? „Jamm, þau eru
margvísleg, ég er t.d. að reyna að
slá golf bolta, en með krefjandi starfi
legg ur maður áherslu á fjölskyldu og
vini því þegar upp er staðið skiptir
það mestu máli.”
Eitthvað að lokum sem þú vilt
koma á framfæri til bæjarbúa? „Já
svo sannarlega, verum stolt af því
að vera Mosfellingar og búa í Mos-
fellsbæ, göngum vel um bæinn okkar
og tölum vel um hann, því bærinn er
ekkert annað en fólkið sem þar býr.”
hilmar@mosfellingur.is
Mosfellingur - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar12
Ragnheiður Ríkharðsdóttir hefur verið bæjarstjóri Mosfellsbæjar í rúm 4 ár en stefnir nú á alþingi
Úr bæjarstjórastóli
og stefnir á alþingi
MOSFELLINGUR
Ragheiður Ríkharðsdóttir hefur starfað sem kennari og skólastjóri
í yfi r 20 ár. Síðustu fi mm ár hefur hún verið oddviti sjálfstæðis-
manna í Mosfellsbæ og gegnt embætti bæjarstjóra. Ragnheiður
hyggst nú bjóða sig fram í 3. sæti í prófkjöri í Suðvesturkjör dæmi
fyrir komandi alþingiskosningar.
„Starf bæjarstjóra er
rosalega skemmti legt
og fjölbreytilegt en
einnig afar krefjandi”
Ragnheiður ásamt galvöskum íþrótta-
köppum úr Aftureldingu skömmu eftir
að hún varð bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Myndin er tekin árið 2002.
Árið 1977 með börnunum sínum tveimur,
Ríkharði og Heklu Ingunni nýfædda.
Ragnheiður ásamt Þorgerði Katrínu menntamálaráðherra í maí sl.
Þær sækjast báðar eftir kjöri í prófkjöri sjálfstæðismannna á Kraganum.
Ragnheiður og Daði á góðri stund fyrir
tæpum 30 árum síðan.
Ragnheiður á öðru aldursári