Mosfellingur - 20.10.2006, Blaðsíða 15

Mosfellingur - 20.10.2006, Blaðsíða 15
Fax: 566-7241 namo@namo.is NAMO ehf. - Þverholti 2 - Kjarna S. 566-7310 og 896-0131 Afturelding leikur í íþróttafatnaði frá Jako 15Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar - Mosfellingur Efnilegust í Lands- bankadeild kvenna Mosfellingurinn Guðný Björk Óðinsdóttir var valin efnilegasti leikmaðurinn í Landsbankadeild kvenna á lokahófi KSÍ. Guðný leikur með liði Vals. Guðný lék í öllum leikjum Vals á tímabilinu og skoraði fi mm mörk í mörk. Þá lék hún fyrir hönd allra landsliða Íslands á tímabilinu. Frábær byrjun Meistarafl okkur Afturelding- ar í handbolta hóf tímabilið af miklum krafti og er efstur í 1. deild eftir fyrstu þrjá leikina. Læri- sveinar Bjarka Sigurðssonar hafa sigrað alla leikina og sigruðu lið Hattar frá Egilstöðum á laugar- daginn var. Leikurinn endaði 39-14 og sáu Hattarmenn aldrei til sólar í leiknum. Í síðari hálfl eik kom svo Bjarki sjálfur inná og sýndi gamalkunna takta og skor- aði tvö mörk. Næsti leikur verður þann 27. október og þá kemur Víkingur/Fjölnir í heimsókn að Varmá. Leikurinn hefst kl. 19 og allir hvattir til þess að mæta. Getraunastarf Aftureldingar Knattspyrnudeild Aftureld- ingar stendur fyrir getrauna leik sem hófst 7. október. Leikurinn er tippleikur þar sem þátttakendur giska á úrslit leikja í fótbolta og eru tveir saman í liði. Þeir sem verða með fl esta leiki rétta eftir tólf umferðir fá vegleg verðlaun og haldið verður lokahóf á síðasta leikdegi. Mikil stemmning myndast á laugardagsmorgnum í vallarhúsinu og enn er hægt að skrá sig til leiks. Meistarafl okkur kvenna í knatt- spyrnu hefur verið endurvakinn eftir 10 ára hlé hjá Aftureldingu. Síðastlið- in ár hefur mikið uppbyggingarstarf verið unnið í yngri fl okkum kvenna og nú verður lið í 1. deild næsta sumar. Markmiðið er að koma Aft- ureldingu á meðal þeirra bestu fyrir 100 ára afmæli Aftureldingar. Írski þjálfarinn Gareth O’Sullivan hefur verið ráðinn en hann hefur þjálfað lið í Bandaríkjunum undanfarin ár við góðan orðstír. Þá á hann einnig að baki atvinnuferil í knattspyrnu þar sem hann lék með liðum í Írlandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum. Mikill metnaður ríkir hjá fl okknum og spenn andi tímar framundan. Meistaraflokkur kvenna endurvakinn Á myndinni má sjá Gareth O´Sullivan (fyrir miðju) skrifa undir þjálfarasamninginn. Vinstra megin við hann er Hallur Birgisson, formaður meistarafl okksráðs og Erna Reynisdóttir framkvæmdastjóri Aftureldingar. Uppskeruhátíð Aftureldingar var haldin 30. september. Var hátíðin tvískipt að þessu sinni, kl. 11 var hald in íþróttahátíð fyrir börn 10 ára og yngri og fengu þau sem æfðu með félaginu í fyrra sérstakan bol sem á stendur „Ég æfði íþróttir 2005- 2006”. Vel á þriðja hundrað barna mætti á hátíðina en það var Baldur Þorsteins son íþróttafræðingur sem stjórnaði skipulögðum leikjum með dyggri aðstoð stjórnarfólks og eldri iðkenda í félaginu. Almenn ánægja var með þetta fyrirkomulag hjá for- eldrum og virtust börnin skemmta sér konung lega. Hefðbundin uppskeruhátíð og verðlaunaafhending fór svo fram kl. 15. Hópbikarinn 2006 hlaut 4. fl okkur karla í blaki. Starfsviðurken- ninguna 2006 hlaut knattspyrnudeild og Vinnuþjarksbikarinn 2006 hlaut Gústav Gústavsson, stjórnarmaður í knattspyrnu deild. Bóel Kristjánsdótt- ir og Bernharð Hreinsson hlutu sér- staka viðurkenningu fyrir störf sín í þágu félagsins. Íþróttamönnum og -konum deilda voru veitt verðlaun og að lokum var valinn íþróttamaður Aftureldingar og í fyrsta sinn, íþrótta- kona Aftureldingar. Halldór Lárus- son frjálsíþróttamaður og Brynja Finnsdóttir frjálsíþróttakona hlutu þá titla. Hátíðinni lauk svo með veglegu kaffi hlaðborði í umsjón fi mleika- og knattspyrnudeilda og tónleikum með hinni ungu og efnilegu hljómsveit Bob Gillan og Ztrandverðirnir. Íþróttamenn Aftureldingar Halldór Lárusson og Brynja Finnsdóttir

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.