Litli Bergþór - 01.12.2014, Qupperneq 7
Litli-Bergþór 7
og Guðný bjuggu til að byrja með í íbúðarhúsinu sem
fylgdi landi Grósku, í það minnsta til 1947.
1947 seldi Náttúrulækningafélagið Grósku og flutti
starfsemina að Gröf í Hrunamannahreppi. Ekki hafa
fundist upplýsingar um hver keypti og ekki liggja fyrir
upplýsingar um sögu þessa býlis fyrr en Jón Vídalín
Guðmundsson (f. 04.12. 1906, d. 04.07. 1974) keypti
stöðina árið 1953 (Sunnlenskar byggðir). Fyrir því
eru þó heimildir að Jón V. Guðmundsson og Skúli
Magnússon áttu með sér viðskipti með rekstrarvörur
vegna garðyrkju 1949 og einnig 1951 svo það
virðist ljóst að Jón var kominn fyrr en greina má í
Sunnlenskum byggðum.
Jón Vídalín var bróðir Guðnýjar, eiginkonu Helga
Indriðasonar (sjá Helgahús), en þau komu í Laugarás
talsvert fyrr. Með Jóni kom, sem ráðskona í fyrstu, en
fljótlega eiginkona (1954), Jóna Sólveig Magnúsdóttir
(f. 18.10. 1928, d. 16.05. 2004). Hún átti tvö börn
fyrir, þau Magnús Þór Harðarson (f.11.06. 1946, d.
26.06. 1966) og Hildi Eyrúnu Gísladóttir Menzing
(f. 26.09. 1949), sem giftist til Bandaríkjanna. Saman
Sólveigarstaðir.
áttu Jóna og Jón síðan fjögur börn. Elst þeirra er
Guðmundur Daníel (f. 31.05. 1955) býr í Finnlandi
(?), þá Lára Vilhelmína Margrét (f. 27.03. 1957) býr í
Þorlákshöfn, síðan Guðný Aðalbjörg (f. 30.09. 1959)
býr í Reykjavík og loks Arngrímur Vídalín (f. 19.03.
1962, d. 23.05. 2003).
Jón var hátt á fimmtugsaldri (47) þegar hann keypti
Grósku. Áður hafði hann stundað sjómennsku, sem
háseti eða kokkur.
Með þeim Jóni og Jónu var nafni býlisins breytt, og
það hefur síðan heitið Sólveigarstaðir.
1960 flutti fjölskyldan í nýbyggt hús sitt og bjó þar í
sex til sjö ár. Gamla íbúðarhúsið stóð áfram í mörg ár
og gegndi ýmsum hlutverkum.
1967 seldu þau Jón og Jóna og fluttu í Kópavog. Þá
var Jón nýskriðinn yfir sextugt, en Jóna var 14 árum
yngri. Jóna bjó síðar um tíma í Reykjavík, en hafði
flutt til Stokkseyrar þegar hún lést.
Elín Ásta Skúladóttir (f. 09.06. 1947) frá Hveratúni
og Gústaf Sæland (f. 07.12. 1945) frá Espiflöt
keyptu Sólveigarstaði af Jóni og Jónu og hafa búið
þar síðan. Auk garðyrkjunnar, sem þróaðist úr
grænmetisræktun yfir í blómarækt, ráku þau Ásta og
Gústaf bensínafgreiðslu frá 1970 til 1998, sem varð
að verslun, Verslun G. Sæland og loks Laugartorgi
1994, en þá höfðu þau Páll M. Skúlason og Dröfn
Þorvaldsdóttir í Kvistholti, komið inn í þann rekstur.
Verslunarreksturinn lagðist síðan smám saman af og
var endanlega hætt 2004, en þá hafði Hlíf Pálsdóttir (sjá
Sláturhúsið) rekið verslunina og bensínafgreiðsluna
um hríð.
Ásta og Gústaf eignuðust fjögur börn, sem eru: Skúli
(f. 17.11. 1966) býr í Reykholti, Hulda (f. 10.09. 1968)
býr í Reykjavík, Eiríkur (f. 03.03. 1973) býr í Hollandi
og Guðni Páll (f. 01.09. 1980) býr í Reykjavík.
Jón Vídalín. Jóna Sólveig.