Litli Bergþór - 01.12.2014, Blaðsíða 37

Litli Bergþór - 01.12.2014, Blaðsíða 37
Litli-Bergþór 37 Svipað er upp á teningnum hjá þjóðgarðastofnun Bandaríkjanna en þar þurfa þó einstaklingar á eigin vegum að greiða fyrir aðgang á flestum svæðum. Ferðaþjónustufyrirtæki borga þar fyrir utan fyrir starfsleyfi til að starfa innan friðlýstra svæða í samræmi við stefnumótanir og aðrar áætlanir. Ég nefni þessa aðferðafræði hér vegna umræðu um hvar innheimta skuli aðgangsgjöld og hvernig skuli staðið að því. Þessa Ný-Sjálensku aðferð tel ég vera mjög skýra og sanngjarna að því leyti að hún gerir ráð fyrir að þeir borgi gjald sem nýta svæðin í viðskiptalegum tilgangi og af þeim sem valda augljóslega mestu álagi á svæðin. Aðrir greiða ekki. Á þennan hátt þá verða ferðamenn heldur ekki varir við gjaldtökuna þannig að upplifunin af því að heimsækja fallegar náttúruperlur verður ekki rofin að því að greiða aðgangseyri líkt og farið sé inn í dýragarð eða skemmtigarða. Stórnotendur þjóðgarða og friðlýstra svæða eru ferðaþjónustufyrirtækin sjálf sem selja ferðir á þá staði. Með slíku kerfi er hægt að koma gjaldinu inn í verð til ferðamanna sem greiða það en um leið verða til upplýsingar um fjölda gesta og nýtingu ferðaþjónustunnar sem hjálpar til að stýra og byggja upp staðina. Þessi aðferð gæti hentað hér til að skapa tekjur til uppbyggingar og rekstrar fyrir þá staði sem eru í opinberri eigu en einnig aðra staði sem eru í eigu einkaaðila eða með blönduðu eignarhaldi. Greitt væri þá fyrir þann fjölda sem heimsækir hvert svæði og það deildist niður á svæðin. Umsýsla og eftirlit vegna slíks kerfis er verkefni til að leysa en það er morgunljóst að öllum kerfum sem nefnd hafa verið til sögunnar fylgir umsýsla af mismunandi tagi og kostnaður. Hjá Umhverfisstofnun Nýja Sjálands er til dæmis haldið utan um alla samninga á innra land- upplýsingakerfi stofnunarinnar og hafa starfsmenn aðgang að því þegar eftirliti er sinnt. Hægt er að kalla fram allar upplýsingar úr sama gagnagrunni um allt Höfundur slóst í för með tveimur liffræðingum til að finna merkta Kiwi fugla í afskekktum fjalladal. Notaður var útvarpssendir til að fanga fuglinn. Höfundur og kiwi fugl, þjóðartákn Nýja Sjálands. Mjög sjaldgæft að finna þá og handleika. landið. Þeir sem fara um slík svæði án samnings fá fyrst tvær áminningar en kært er í þriðja sinn. Það er vert að minnast á það að gjaldtaka hjá þessum erlendu stofnunum stendur einungis undir um 10-20% af veltu þeirra. Ástæðan er að hlutverk og starfsemi þeirra er miklu mun víðtækara og meira en við þekkjum til hér á landi t.d. vöktun, grunnrannsóknir á sviði náttúrufræða, fornleifafræða, löggæsla, björgunarstörf svo fátt eitt sé nefnt. Á Íslandi er rekstur friðlýstra svæða enn frekar einfaldur ef borið er saman við systurstofnanir erlendis. Af þeim sökum mun vel skilgreint kerfi til innheimtu gjalda skilja eftir meira fé til uppbyggingar og reksturs en í svipuðum kerfum erlendis. Það er jákvætt og nauðsynlegt að núverandi ríkis- stjórn sé að skoða leiðir til að fá tekjur til að standa undir nauðsynlegri uppbyggingu til að fást við þann fjölda ferðamanna sem kemur til Íslands. Það þarf hinsvegar að gerast að vandlega athuguðu máli og þannig að fjármagnið nýtist beint á þeim stöðum sem ferðamenn heimsækja. Einar Á. Sæmundsen Einn á göngu í Routeburn gönguleiðinni

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.