Litli Bergþór - 01.12.2014, Blaðsíða 40

Litli Bergþór - 01.12.2014, Blaðsíða 40
40 Litli-Bergþór tókst að missa hann í eigin fingur og varð af nokkur skurður og blóð rann. Fannst mér þetta frekar pínlegt að auglýsa klaufaskap minn með því að láta röðina standa upp og vafði því servéttu fast um svo lítið bar á. Slapp þetta til þar til borðhaldi var lokið og ég gat gengið betur frá sárinu. Var þetta í síðasta skiptið sem blótið var haldið í gamla samkomuhúsinu að Vatnsleysu. Þetta leiddi til þess að ég smíðaði eigið trog og lengi eftir þetta þá sóttum við hjónin þorrablótin í Aratungu. Á þessum árum tók ég dálítið þátt í frjálsíþróttum og framundan var Landsmót UMFÍ að Laugum í Reykjadal, haldið um mánaðarmótin júní júlí. Lítill tími var til æfinga, var helst um helgar heima á Selfossi. Þó var ágæt stökkgryfja til staðar á flöt neðan Barnaskólans, þar sem bílastæði Aratungu eru nú, nýtti ég mér hana lítillega. Ég heyrði einhvern heimamann kvarta um að alla aðstöðu skorti til frjálsíþrótta í Tungunum, en sannleikurinn var sá að gryfjan í Reykholti tók langt fram stökkaðstöðunni sem þá var heima á Selfossi. Ferðin að Laugum var svo hin ágætasta. Sögn er um að það hafi verið á heimleið þaðan að sr. Eiríkur J . Eiríksson varpaði fram hugmynd að nafni félagsheimilisins sem nokkrum dögum síðar hlaut eins og kunnugt er nafnið Aratunga. Þegar leið að vígslu hússins sunnudaginn 9. Júlí 1961 þá var tekinn nokkur „endasprettur“. Húsgögn sett saman og komu margir að verki, en allt gekk upp og mikill hátíðisdagur fór í hönd. Hugmynd kviknaði hjá okkur Stefáni þegar hátíðahöldunum var að ljúka um nóttina, að taka okkur frí daginn eftir og fara inn á Hveravelli. Drifum við í því með hraði og undirbúningur var lítill. Með okkur slógust í för Gústi á Kjóastöðum og Raggi á Brautarhóli, einnig Ásgeir Valdimarsson kunningi okkar og mjólkurbílstjóri þeirra Tungnamanna. Eiríkur í Miklaholti var ráðinn bílstjóri og ók hann okkur á Landrover sínum. Nesti fengum við í eldhúsinu, krásir sem ekki kláruðust í veislunni og fullan disk af upprúlluðum sykruðum pönnukökum rétti mér einhver góðhjörtuð kona að lokum. Við lögðum af stað klukkan fjögur og ókum í næturkyrrðinni inn í Hvítárnes og þar var tekið til nestisins og lagði ég pönnukökudiskinn frá mér á veggkamp eða þúfu og við hugðumst njóta ljúfmetisins. En einhverjar heimaríkar kindur urðu fyrri til að gæða sér á og svo var harkan mikil í einni þeirra að hún hugðist ná af mér pönnukökunni sem ég hélt á. Klukkan ellefu daginn eftir héldum við á Hveravelli. Þar hittum við Eirík frá Fellskoti, var hann þar vörður við varnargirðingar. Heim komum við svo að kvöldi, eftir góða ferð. Stefán var hagmæltur og í ferðinni kastaði hann öðru hvoru fram vísu, svoleiðis kveðskapur á tæpast við nema á einum stað og einu sinni en kryddar nokkuð augnablikið. Eitthvað var um slíka vísnagerð við vinnuna og einhvern veginn komst á kreik saga um vísu sem gerð var án mikillar meiningar og skrifuð á miða sem var settur undir mitt salargólfið. Efni hennar var um að dömur sem dönsuðu þar yfir,fengju einhvern amorsfiðring. Varð það til þess að húsfreyja ein í sveitinni sendi smá ljóðabálk, vel gerðann, nokkurs konar svar við vísunni. Þótti okkur þá gamanið vera farið að aukast og jafnvel grána aðeins. Ekki segi ég nánar frá þessum yrkingum, enda ekki viss um að ég muni kveðskapinn nógu rétt. Þó búið væri að vígja bygginguna þá var mikið eftir og vorum við að fram í janúar 1962 við frágang utanhúss og vinnu við kjallara og svo efri hæð, íbúð húsvarðar, símstöð og bókasafn. Einnig frágang við Barnaskólahúsið. Vorum þá í fæði hjá þeim Garðari og Steinunni, húsráðendum í Aratungu og tók þá við algjört sældarlíf því Stenna sýndi snilldartakta við matargerðina. Ég tók mér mánaðarfrí í nóvember ´61 og sigldi með Gullfossi til Kaupmannahafnar svona til að víkka sjónarhornið og Stefán brá sér til Ítalíu um líkt leyti. Var þetta umbun sem við veittum okkur til viðbótar Hveravallaferðinni þegar verklok nálguðust. Ég minnist tímans í Tungunum af mikilli ánægju. Vinnan skemmtileg og gaman að kynnast heimamönnum. Ég vann nokkuð í öðrum sveitum sýslunnar og skynjaði þá að um svolítið mismunandi sveitabrag var að ræða, áberandi munur á sönghefð svo eitthvað sé nefnt. Einhvern veginn er það svo enn í dag að tilfinning mín er sú að þegar ég kem í Tungurnar þá sé ég að nokkru leyti að koma heim. Að mestu samið eftir minni. Stuðst við dagbókarkompur mínar og minnissnepla frá þessum tíma. Selfossi í júlí 2014. Árni Sverrir Erlingsson Fórum á Hveravelli kl. 4 um nóttina. Áning í Hvítárnesi. F.v. Ragnar á Brautarhóli, Ásgeir Valdimarsson mjólk-urbílstjóri, Stefán Kristjánsson yfirsmiður, Árni Sverrir, Eiríkur í Miklholti bílstjóri ferðarinnar. Ljósm. Gústaf Jónasson.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.