Litli Bergþór - 01.12.2014, Blaðsíða 11

Litli Bergþór - 01.12.2014, Blaðsíða 11
Litli-Bergþór 11 Ungmennafélag Biskupstungna sendir félögum sínum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár Meðfylgjandi eru nokkur ljóð sem krakkarnir sömdu sjálfir um starfið áður en við fórum á landsmót. Við förum í Molana Við förum í Molana til að hitta folana. Spegill, spegill herm þú mér vá, gaman er að vera hér. Á landsmót við förum einhver fer heim í börum, þar verða margir leikir og margir verða bleikir. Bríet og Konný eru sætar. Þær eru samt ekki ætar. Við fáum prins polo og djús. En heyrum ekkert blús. Egill er prestur hér og oft á honum ber og þegar hann í sturtu fer nú, það er ekki við hæfi hér Ljóðið okkar endar nú, brátt breytumst við í kú. Við förum þá ekki í molana en leikum okkur við bolana. Í Molunum höfum við það gaman Í Molunum við höfum það gaman. Og tölum smá saman. En það er bannað að tala mikið. En spörum smá fyrir vikið. Við sitjum hér saman. Og yrkjum ljóð. Höfum það gaman. Og söfnum í sjóð. Fyrir Landsmót Það ætla allir á það. Því það er svaka mikið fjör. Það er best að skella sér í bað. Og ekki borða mikið smjör. Nú er tími til að fara heim. Það er svoldið leim. En þá er vika í næsta fund. Vonandi fæ ég hund. Í Molunum er gaman Í Molunum er gaman. Þar leika allir saman. Þeir leika úti og inni. Og allir eru með. Hér er borðað, leikið og litað. Þið ættuð bara að vita. Hvað allir eru duglegir. Í Molunum hér. Molafundir Fundirnir eru i tvo tíma. Stundum er bannað að nota síma. Þeir eru að fara á Landsmót. Þrjá tíma í þokkabót.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.