Litli Bergþór - 01.12.2014, Blaðsíða 17
Litli-Bergþór 17
Kvenfélag Biskupstungna sendir félögum sínum og
Sunnlendingum öllum bestu óskir um gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
Þökkum ánægjuleg samskipti á liðnum árum
10 ára afmælisveislan, Klara systir, Sveinn, Gulli í Birki-
lundi, Ingibjörg og Kristján á Norðurbrún, Ingi í Birki-
lundi, Jesper í Víðigerði, og Eiki bróðir.
Hér höfum við fjölskyldan unað okkur vel og hef
ég haft sérstaka ánægju af því að sýna börnum og
barnabörnum ýmsa þá staði sem við lékum okkur
á í mínu ungdæmi. Við hlustum eftir söngnum í
Álfaklettinum við Stekkatúnið, leitum að krukkunni
fullri af fimmeyringum, sem við Gulli grófum niður
undir kletti uppi á Reykholtinu, skríðum gegn um
leynigöngin, sem enginn veit um nema ég og þau og
svo mætti lengi telja. Í slíkum göngutúrum þá kemst
ég ávallt að því að börn í dag eru nákvæmlega sömu
börnin með sömu þörfina fyrir að skynja og uppgötva
og við sjálf fyrir 50 árum. Við þurfum bara að hvetja
þau og gefa þeim meira frelsi til athafna.
Hluti af Reykholti um þetta leyti.
Þegar horft er til náttúrunnar sem við höfum í og
umhverfis Reykholt, þá kemur upp í hugann mikilvægi
þess að yfirvöld hugi vel að öllum breytingum í
framtíðinni. Að ekki verði lokað á þau tækifæri
sem börn og unglingar hafa til að njóta og upplifa
nærumhverfið.
Þörfin á unga aldri til að færa leiki og áhugamál í
eitthvert félagsform, hefur lítið dvínað hjá mér með
aldrinum enda ávallt haft mikla ánægju af hverskonar
félagsstörfum í gegn um tíðina, en það er önnur saga.
Sveinn A. Sæland.