Morgunblaðið - 18.09.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.09.2018, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 8. S E P T E M B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  219. tölublað  106. árgangur  REYNSLU- AKSTUR HEIMA OG ERLENDIS DRAGA BORGINA AÐ LANDI HELENA SYNGUR Í FYRSTA SINN Á TÍBRÁRTÓNLEIKUM ILLGRESI 12 SALURINN 30BÍLAR 16 SÍÐUR Alls störfuðu 3.216 manns í Gömlu höfninni í Reykjavík í sumar. Þetta er niðurstaða reglulegrar könn- unar á vegum Faxaflóahafna og sýnir hún mikinn uppgang á hafn- arsvæðinu. Starfsmönnum hafði fjölgað um 59% frá samskonar könnun árið 2013. Flestir þeirra starfa við fiskvinnslu og útgerð eða iðnað. Flest fyrirtæki í Gömlu höfn- inni starfa hins vegar á sviði þjón- ustu og ferðaþjónustu. Forvarsmenn 201 fyrirtækis á svæðinu svöruðu spurningum í könnuninni. Mikillar óánægju með umferð á svæðinu gætti í svörunum og þykir mörgum hætta stafa af umferðinni. »14 Starfsfólki fjölgað um 59% á 5 árum Morgunblaðið/Eggert Grandagarður Fyrirtækjum í verslun og þjónustu hefur fjölgað hratt síðustu ár. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hefur óskað eftir því við innri endurskoðun Reykja- víkurborgar að gerð verði úttekt á vinnustaðamenningu og tilteknum starfsmannamálum hjá samstæð- unni. Beðið var um rannsóknina án samráðs við fulltrúa minnihlutans en Hildur Björnsdóttir, fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, telur betra að fá hlutlausan utanaðkomandi aðila til verksins. Borgarráðsfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins hafa óskað eftir því að fá upplýsingar um það hvaða upp- lýsingar hafi borist borgarstjóra. Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna, segir að upplýs- ingar hafi borist um starfsmenn Orkuveitunnar sem hafi leitað til borgarstjóra vegna þess að þeir hafi talið á sér brotið. Því hafi verið ósk- að eftir upplýsingum um þessi sam- skipti og hvernig brugðist hafi verið við. Vonast hann til að fá upplýs- ingar á borgarráðsfundi á fimmtu- dag. Stjórn Orku náttúrunnar, dóttur- félags OR, ákvað á miðvikudag að segja Bjarna Má Júlíussyni, fram- kvæmdastjóra félagsins, upp störf- um vegna óviðeigandi framkomu gagnvart starfsfólki. Daginn eftir var Þórður Ásmundsson ráðinn tímabundið. Seint á föstudag fékk Orkuveitan upplýsingar um málefni tengd Þórði. Hann var þá sendur í leyfi og gegndi því framkvæmda- stjórastarfinu aðeins í einn sólar- hring. Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá því í gærkvöldi að Þórður hefði verið sakaður um alvarleg kyn- ferðisbrot. Það fékkst ekki staðfest hjá Orkuveitunni. Samkvæmt upp- lýsingum OR liggja ekki fyrir neinar kvartanir frá samstarfsfólki. Þórður er í leyfi og ákvörðun hefur ekki ver- ið tekin um framhaldið. Þá upplýsti Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri fjármála OR, að hann hefði verið áminntur formlega vegna óviðeigandi kynferðislegrar áreitni á árshátíð fyrirtækisins fyrir þremur árum. Undirbúningur úttektar hafinn Brynhildur Davíðsdóttir, formað- ur stjórnar OR, tilkynnti í gærkvöldi að undirbúningur að rannsókn innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar á umræddum málefnum OR væri þegar hafinn. Bjarni Bjarnason, for- stjóri OR, hafði skömmu áður til- kynnt að hann hefði óskað eftir því að stíga tímabundið til hliðar sem forstjóri á meðan úttektin færi fram. Við þá skoðun mættu hans ákvarð- anir ekki vera undanskildar. Ósk Bjarna verður tekin fyrir á stjórn- arfundi á morgun. Hildur Björnsdóttir sagði að með fullri virðingu fyrir innri endurskoð- un borgarinnar gætu orðið hags- munaárekstrar vegna þess að Reykjavíkurborg á meirihlutann í Orkuveitunni. Þess vegna væri betra að fá utanaðkomandi aðila. Úttekt á málum Orkuveitu  Forstjóri óskar að stíga tímabundið til hliðar  Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins vill rannsókn utanaðkomandi aðila  Beðið um upplýsingar um samskipti við borgarstjóra Bjarni Bjarnason Þórður Ásmundsson Breiðablik varð í gærkvöld Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu í sautjánda skipti með því að sigra Selfoss 3:1 í næstsíðustu umferð Pepsi-deildar kvenna á Kópavogsvelli. Blik- ar eru með fimm stiga forskot á meistaralið síðasta árs, Þór/KA, fyrir síðustu umferð- ina. Árangur Kópavogsliðsins er sannarlega glæsilegur á þessu ári því liðið varð einnig gær því Þór/KA endar í öðru sæti og Stjarnan í þriðja sæti en það kemur í hlut Grindvíkinga að falla úr deildinni ásamt FH. » Íþróttir bikarmeistari fyrir mánuði en útlitið var ekki sérstaklega bjart eftir að Blikar misstu marga öfluga leikmenn eftir síðasta tímabil. Úrslitin í deildinni réðust að öllu leyti í Morgunblaðið/Hari Sautjándi titillinn og Breiðablik er tvöfaldur meistari árið 2018

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.