Morgunblaðið - 18.09.2018, Side 11

Morgunblaðið - 18.09.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018 Þór Steinarsson thor@mbl.is Hjalti Andrason, fræðslustjóri rekstrarsviðs Matvælastofnunar, vísar því á bug að stofnunin sé að reyna að skorast undan því að greiða skaðabætur til fyrirtækisins Kræs- inga (áður Gæðakokka) með því að fara fram á yfirmat dómkvaddra matsmanna. Matvælastofnun var dæmd til að greiða Kræsingum skaðabætur vegna tilkynningar sem birtist á heimasíðu stofnunarinnar árið 2013. Dómkvaddur matsmaður metur tjónið á 200 milljónir króna. Málið hófst árið 2013 Málið má rekja til þess að í febr- úar 2013 lét Matvælastofnun rann- saka nokkrar vörur frá mismunandi framleiðendum með það fyrir augum að athuga hvort hrossakjöti hefði verið blandað saman við annað kjöt. Rannsóknin leiddi í ljós að innihald í tveimur afurðum hjá Gæðakokkum var ekki í samræmi við innihaldslýs- ingu. Stofnunin birti í kjölfarið til- kynningu á heimasíðu sinni þar sem lögð var áhersla á að ekkert kjöt hefði verið í „Nautaböku“ frá Gæða- kokkum. Morgunblaðið greindi frá því í gær að Matvælastofnun neitaði að greiða skaðabætur til Kræsinga þrátt fyrir að skaðabótaskylda hefði verið staðfest af dómstólum og að þrátt fyrir að dómkvaddur mats- maður hefði lagt mat á tjónið. Í þeirri frétt var haft eftir Magnúsi Nielssyni, eiganda Kræsinga, að hann væri viðbúinn því að ríkið myndi halda áfram að neita að greiða. „Þeir fara alla leið í þeirri von að ég gefist upp,“ var meðal ann- ars haft eftir honum. Nýta lagalegan rétt sinn „Við gerum athugasemd við fyr- irsögnina um að við neitum að greiða skaðabætur. Það er ekki staða máls- ins,“ segir Hjalti í samtali við Morg- unblaðið. Hjalti segir að með því að óska eftir yfirmati sé stofnunin að nýta sinn lagalega rétt til þess að fá ann- að mat á upphæð tjónsins. „Lögmaður okkar gerir athuga- semdir við matsgerðina sem liggur fyrir og við erum þá búnir að nýta okkar rétt til þess að fá yfirmat tveggja dómkvaddra matsmanna. Það er staða málsins,“ útskýrir Hjalti sem vildi ekki tjá sig efnislega um þær athugasemdir sem lögmað- ur Matvælastofnunar gerði við mat- ið en staðfesti þó að upphæðin, 200 milljónir króna, væri þar á meðal. Morgunblaðið leitaði viðbragða frá Viktori S. Pálssyni, lögfræðingi og forstöðumanni samhæfingarsviðs Matvælastofnunar. „Við höfum ósk- að eftir yfirmati, þetta er hefðbundið ferli,“ sagði hann en vildi ekki tjá sig frekar á meðan málið væri enn til meðferðar hjá dómstólum. Viktor vildi að sama skapi ekki tjá sig um hver raunveruleg upphæð tjónsins væri að mati sérfræðinga sem fara með málið fyrir hönd Mat- vælastofnunar. Hann tók þó fram að upphaflega hefði endurskoðunarfyrirtæki metið tjón Kræsinga á 100 milljónir en Matvælastofnun hefði hafnað þeirri kröfu. Það má því leiða líkur að því að Matvælastofnun telji raunverulegt tjón vera undir 100 milljónum króna. Mast greiðir skaðabætur  Telja tjónið ekki vera 200 milljónir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skaðabótaskylda Matvælastofnun vill yfirmat á raunverulegt tjón. Þór Steinarsson thor@mbl.is „Þetta er framsækið og þetta er líka sáttatillaga,“ segir Eyþór Arnalds, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Morgunblaðið um tillögu sem hann hyggst leggja fram á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag. Tillagan snýst um staðarval fyrir nýja sjúkrahúsbyggingu í Reykja- vík. Eyþór leggur til að Reykjavíkur- borg hafi frumkvæði að því að velja heppilegan stað fyrir uppbyggingu á öðru sjúkrahúsi í borginni með tilliti til samgangna, íbúa- og atvinnuþró- unar og öryggismála. Starfshópur yrði skipaður undir forystu Reykja- víkurborgar með það í huga að nið- urstaða gæti legið fyrir um mitt ár 2019. Hildur Björnsdóttir, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, mun á sama fundi leggja fram tillögu um fjárframlög til grunnskóla. Tillaga Hildar gengur út á að Reykjavíkur- borg greiði sömu fjárhæð með hverju grunnskólabarni inn í skóla- kerfið óháð rekstrarformi skólanna. Þannig myndu öll börn hafa jöfn tækifæri til að sækja ólíka skóla borgarinnar óháð efnahag foreldra þeirra. Yrði tillagan samþykkt mættu einkareknir skólar ekki inn- heimta skólagjöld. Hildur bendir á að fyrirkomulagið hafi reynst vel í Garðabæ og erlendis og er því bjartsýn á að tillagan verði samþykkt. „Hugmyndin stuðlar að jöfnum tækifærum fyrir börn í borginni. Í mínum huga ætti það að vera þver- pólitískt mál. Viðreisn hefur sömu- leiðis talað mikið fyrir auknum stuðningi við sjálfstæða skóla,“ segir Hildur í samtali við Morgunblaðið. Eyþór með framsækna sáttatillögu  Óskar eftir þverpólitísku samstarfi um sjúkrahús  Hildur vill jöfn tækifæri barna óháð efnahag Hildur Björnsdóttir Eyþór Arnalds Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.