Morgunblaðið - 18.09.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Þeim sem starfa í Gömlu höfninni í
Reykjavík hefur fjölgað mjög á síð-
ustu árum og virðist vera mikill
uppgangur á hafnarsvæðinu. Í
svörum frá stærstum hluta fyrir-
tækja þar kemur fram að í sumar
störfuðu 3.216 starfsmenn í fullu
starfi á hafnarsvæðinu og hafði
fjölgað um 59% frá könnun sem
gerð var 2013. Kynjahlutfall var
einnig kannað og reyndust konur
vera tæpur þriðjungur vinnuaflsins,
eða 1.163 starfsmenn af þeim 3.216
sem eru í fullu starfi.
Í sumar var í sjötta sinn gerð
könnun á atvinnustarfsemi í Gömlu
höfninni á vegum Faxaflóahafna og
var Árni Steinn Viggósson í for-
svari fyrir verkefnið. Alls tóku for-
svarsmenn 201 fyrirtækis þátt í
henni með því að svara stöðluðum
spurningum. Ekki fengust svör frá
31 fyrirtæki og var þar bæði um að
ræða einyrkja og stærri fyrirtæki.
Frá könnun sem gerð var 2013 hef-
ur fyrirtækjum sem tóku þátt fjölg-
að um átta.
1.547 eru í hlutastörfum
Verktakar og starfsmenn í
óreglulegum hlutastörfum eru ekki
taldir með í könnuninni, en þeir
síðarnefndu eru 1.547 starfsmenn
til viðbótar. Sjómenn sem róa hjá
fyrirtækjum í Gömlu höfninni voru
ekki teknir með í þessum taln-
ingum, hvorki sem starfsmenn í
fullu starfi né árstíðatengdir starfs-
menn.
Leiðsögumenn ferðaþjónustufyr-
irtækja eru hins vegar teknir með
og segir í skýrslunni að það sé
vegna þess að leiðsögumenn koma
að minnsta kosti daglega við á
hafnarsvæðinu, en sjómenn eru
margir hverjir marga daga í burtu.
Spurningunni var ætlað að varpa
ljósi á umferð og umgengni á hafn-
arsvæðinu svo áðurnefndar síur
þóttu viðeigandi.
Í fiskvinnslu og útgerð voru 16
fyrirtæki og er fjöldi hafsækinna
fyrirtækja óbreyttur frá könn-
uninni fyrir fimm árum. Tekið er
fram að flokkurinn fiskvinnsla og
útgerð heldur ekki utan um öll fyr-
irtæki sem tengjast hafsækinni
starfsemi. Þannig eru sala og út-
flutningur á fiski sett í flokkinn
heild- og umboðssala og tækni-
lausnir eru settar í flokkinn tækni
og hugverk.
Hlutdeild hafsækinna fyrirtækja
hefur farið minnkandi frá því að
kannanir hófust 1994. Með grein-
ingu er áætlað að hægja taki á
samdrættinum.
Flestir í fiskvinnslu,
útgerð og iðngreinum
Þær atvinnugreinar sem eru með
flesta starfsmenn eru fiskvinnsla
og útgerð og iðnaður með 647 og
637 starfsmenn hvor. Samtals
vinna í þessum atvinnugreinum
1.284 starfsmenn í 33 fyrirtækjum.
Þennan mikla starfsmannafjölda í
þessum tveimur greinum má eink-
um rekja til fyrirtækja eins og HB
Granda, Lýsis og Brims.
Flest fyrirtækin í Gömlu höfninni
störfuðu hins vegar á sviði þjón-
ustu, eða 49 talsins, og fyrirtæki í
ferðaþjónustu eru 23. Síðarnefndi
flokkurinn var ekki mældur sér-
staklega fyrir fimm árum, heldur
var hann undir þjónustu og samtals
eru þessir tveir flokkar lítt breytt-
ir.
Í flokkinn smásala og veitingar
hefur bæst við jafnt og þétt síðan
1998, og fjölgaði fyrirtækjum um
30,0% í þeim flokki frá síðustu
könnun, en veitingastöðum á svæð-
inu hefur fjölgað. Árið 2013 þótti
álitamál hvort tónlistarhúsið Harpa
ætti erindi í könnunina en ákveðið
var að taka það með vegna stað-
setningar þess við höfnina.
Mikill uppgangur í Gömlu höfninni
Á síðustu fimm árum hefur starfsmönnum fjölgað um 59% Fleiri fyrirtæki í verslun og þjónustu
Tölvumynd/Yrki arkitektar
Ægisgarður Fyrirhugað er að reisa sex ný söluhús á Ægisgarði og fjarlægja önnur tíu sem þar eru fyrir. Húsin verða ein-
föld timburhús í jarðlitum, en burðarvirki úr stáli. Miðað er við að þeir aðilar sem nú eru með hafsækna starfsemi á svæð-
inu fái pláss í nýju húsunum, en möguleiki er á fleiri húsum eftir því sem deiliskipulag leyfir og fleiri aðilar hefja rekstur í
hafsækinni ferðaþjónustu. Gert er ráð fyrir að verkefnið verði boðið út um næstu helgi, framkvæmdir hefjist í desember
og ljúki í apríl, en það er háð þeim tilboðum sem berast. Kostnaður við húsin og umhverfi húsanna verður væntanlega á
bilinu 200 - 300 milljónir en gert er ráð fyrir að ganga frá svæðinu frá gatnamótum Mýrargötu niður að Ægisgarði.
Fyrirtæki í Gömlu höfninni
50
40
30
20
10
0
Fisk-
vinnsla og
útgerð
Iðnaður Tækni og
hugverk
Þjónusta Ferða-
þjónusta
Smásala
og
veitingar
Heild- og
umboðs-
sala
Geymslur Annað
16 16
9
49
23
42
15
30
1
Heimild: Faxaflóahafnir
Í síðustu könnunum um atvinnu-
starfsemi í Gömlu höfninni hafa for-
svarsmenn fyrirtækja verið spurðir
um umferðarmál og var það einnig
gert núna. Sérstaklega var spurt um
Örfirisey og 28 fannst umferðin þar
vera í lagi af þeim 146 sem höfðu
skoðun á málinu. Óánægjan hefur
vaxið verulega frá síðustu könnun
þegar 76 fannst hún í lagi. Flestir
voru þeirrar skoðunar að umferðin
væri of hröð og mikil og mikið bar á
kvörtunum vegna olíutankanna og
olíubíla. Einstefnugötur voru títt
nefndar sem lausn.
Sem dæmi um svör má nefna eftir-
farandi: „Það hefur þrengt að umferð
á Grandagarðinum með vaxandi
þjónustustarfsemi þar og umferð á
Fiskislóð hefur að sama skapi aukist
mikið. Aðstaða fyrir gangandi veg-
farendur gæti verið mun betri, eink-
um við Fiskislóð í kringum verslanir
þar. Það hefur þó mun meiri áhrif
fyrir okkur að tvær aðalæðarnar að
svæðinu, þ.e. Sæbraut og Mikla-
braut, eru mikið til stíflaðar á
ákveðnum tímum dags, sem er mikil
breyting frá því sem áður var. Það er
í raun mikilvæg forsenda fyrir okkar
starfsemi að félagar komist greiðlega
í útköll frá öðrum hlutum borg-
arinnar.“
Hættulegt að keyra þarna
„Höfnin var einu sinni höfn, nú er
þetta orðið allt annað. Orðið hættu-
legt að keyra þarna. Svo eru olíubíl-
arnir á fullu að keyra þarna í gegn.
Þetta finnst mér bara vera klikkun.
Það er bara beðið eftir stóra slys-
inu …“ segir í öðru svari.
Mikil óánægja kom fram vegna
umferðartenginga að Gömlu höfninni
um Geirsgötu og Mýrargötu. Fjöldi
viðmælenda sem þótti aðstæður vera
í lagi var nú aðeins 15 af þeim 127
sem höfðu skoðun á málinu eða
11,81%. Það er mikil lækkun frá síð-
ustu könnun er 48,82% voru jákvæð,
að því er fram kemur í skýrslunni.
Mikil breyting hefur átt sér stað
við Gömlu höfnina, bæði hvað varðar
skipulagsmál og atvinnustarfsemi,
síðastliðin 10 ár. Því var spurt hvað
fyrirtækjunum þætti um uppbygg-
inguna og var meirihlutinn ánægður
með þróunina. Þau sjónarmið komu
þó fram að atvinnurekendum finnst
þrengt að sér með tilkomu ferða-
manna og aukinnar umgengni. Einn-
ig að uppbyggingin væri einsleit, þ.e.
of margir veitingastaðir.
Megn og vaxandi
óánægja með umferðina
„Höfnin var einu sinni höfn“ „Beðið eftir stóra slysinu“
Morgunblaðið/Eggert
Breyting Hafnarsvæðið hefur breytt um svip og á Grandagarði er iðandi mannlíf og verslanir af ýmsum toga.