Morgunblaðið - 18.09.2018, Page 21

Morgunblaðið - 18.09.2018, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018 ✝ Tómas Sæ-mundsson fæddist í Hvera- gerði 15. apríl 1936. Hann lést á Hrafnistu í Reykja- vík 12. september 2018. Foreldrar hans voru Sæmundur Þorláksson, f. 15.9. 1903, d. 14.12. 1985, frá Hrauni í Ölfusi, fyrrverandi formaður í Þorlákshöfn, síðar garðyrkju- bóndi á Eyrarbakka, og Magnea Svava Jónsdóttir, f. 22.11. 1910, d. 20.7. 1965. Bræður: Ólafur, f. 9.1. 1938, og Guðmundur, f. 13.9. 1943. Tómas kvæntist Írisi Björns- dóttur, f. 10.3. 1937, d. 18.8. 2000. Synir þeirra eru: 1) Svav- ar Sæmundur, f. 5.6. 1959, d. 13.4. 2014. Kvæntist Rannveigu Raymondsdóttur, f. 1.2. 1958. Börn þeirra eru a) Anna Hlíf, f. 10.8. 1981, maki Októ Þor- grímsson, f. 27.12. 1972, börn þeirra eru Alexandra Eik, f. 20.9. 2001, Aron Örn, f. 13.3. 2007, Emilíana Sara, f. 6.4. 2011. vertíða á Faxa var hann á togar- anum Hallveigu Fróðadóttur RE. Í janúar 1956 fór hann ásamt Herði Jónssyni vini sínum til Vestmannaeyja þar sem þeir voru hásetar á vélbátnum Jötni með Oddi Sigurðssyni frá Skuld. Sumarið 1956 var hann á togar- anum Geir. Útskrifaðist 1957 úr Stýrimannaskólanum. Stýri- maður á Hrafnkatli NK um sum- arið. Um haustið var hann stýri- maður á Þormóði goða. Stýrimaður á Ársæli Sigurðs- syni HF með frænda sínum Sæ- mundi Sigurðssyni, 1958-1959. Um haustið 1959 byrjaði skip- stjóraferill hans á Auði RE sem er 100 tonna Svíþjóðarbátur, var þar eitt ár. Fór þaðan á Þor- móð goða sem stýrimaður og tók við Aldísinni RE um áramót- in sem skipstjóri, var með hana á netum og færum 1961-1962. Vertíðina 1963 var hann með Sædísi RE á netum og humri, sneri sér svo að sinni eigin út- gerð þegar hann keypti Ingjald SH um haustið (Hafnarberg RE 404). Í kringum 1970 keypti hann Jón Gunnlaugs (Hafn- arberg RE 404) og gerði út frá Sandgerði á netum og humri. Árið 2000 keypti hann Sæfara ÁR (Hafnarberg RE 404) og lauk útgerðarferli sínum 2006. Útför Tómasar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 18. septem- ber 2018, klukkan 13. b) Tómas Örn, f. 18.2. 1987. Sam- býliskona Krist- björg Jónasdóttir, f. 2.6. 1992. Barn þeirra Júlíana Ösp, f. 22.10. 2017. c) Ás- laug Svava, f. 4.4. 1989. Maki Sig- urður Svansson, f. 4.7. 1987. Börn þeirra eru Magnea Svava, f. 21.5. 2014, Alma Dögg, f. 27.11. 2017. 2) Magnús Örn, f. 16.7. 1966. Fyrr- verandi sambýliskona hans er Anna Rakel Sigurðardóttir, f. 17.2. 1967. Barn þeirra er Íris Mist, f. 2.1. 1987. 3) Einar Björn, f. 1.5. 1970. Barnsmóðir Mar- grét Halldórsdóttir, f. 3.4. 1974. Dóttir þeirra er Margrét Þor- björg, f. 10.8. 2002. Tómas ólst upp á Eyrar- bakka, var í sveit á Hrauni hjá ömmu sinni og föðurbræðrum, gekk í barnaskólann á Eyrar- bakka. Fór fjórtán ára á lúðulóð með Jónsa gamla Helga á Pipp. Árið 1952 réði hann sig á Faxa með Jóa Vilbergs á línu og net, var þar fjórar vertíðir, á milli Elsku tengdapabbi er látinn. Ég kynntist Tomma fyrir 34 ár- um þegar við Svavar sonur hans byrjuðum saman. Það fyrsta sem ég kynntist af Tomma var þegar við vorum úti í Skerjó og Tommi var að koma heim af sjónum og er hann sá mig sagði hann: „Hva, á maður að heilsa þessu?“ og ég varð ansi hissa á móttökunum. Tommi gat verið mjög grófur í tali, en meiningin á bak við orðin var ekki alltaf rétt. Það kom fljótt í ljós að hann var gæðasál og vildi manni allt það besta. Svo var yndislegt að sjá hann með öll barnabörnin, hann tók alltaf vel á móti þeim og knúsaði þau í bak og fyrir. Eins og fyrst þegar Anna Hlíf kom inn í líf hans þá urðu allir svo hissa að þessi grófi maður var farinn að skríða á eftir henni um öll gólf. Alltaf þegar við komum í heim- sókn út í Skerjó var hann mjög glaður að sjá okkur og vildi helst að við værum sem lengst og spurði alltaf: „Ætlið þið ekki að borða með okkur?“ Íris tengda- mamma þurfti alltaf að finna eitt- hvað til að setja í pottinn. Það var alltaf fjör í Skerjó og mikið hlegið við matarborðið. Allt mikið matarfólk. Árið 1997 keyptu Tommi og Ír- is Keisbakka og voru það mikil gæðaár sem við áttum saman þar. Það var nánast farið hverja ein- ustu helgi fyrstu árin. Það var alltaf nóg um að vera og krakk- arnir höfðu endalaust eitthvað að gera. Það var líka mjög gaman að fylgjast með Tomma þegar roll- urnar komu í túnið, en þá varð allt vitlaust. Allir áttu að hlaupa út og reka þær af túninu hans. Hann stökk á sexhjólið sitt og krakkarnir hlupu þar á eftir og ráku þær af túninu með miklum hamagangi og öskrum, að þessu var mikið hlegið. Það var sko allt- af mikið líf og fjör uppi á Keis og var Tommi kallaður Keisbakka- kóngurinn og stóð vel undir nafni. Hann missti mikið þegar Íris tengdamamma dó árið 2000, að- eins 63 ára að aldri. Eftir það reyndum við Svavar að vera sér- staklega dugleg að bjóða honum í mat og var hann alltaf fljótur að þakka fyrir gott boð og stundum var hann meira að segja sjálfur búinn að setja eitthvað í pott en þá sagði hann bara: „Ég slekk bara undir og kem!“ Tommi kom alltaf til okkar á aðfangadagskvöld í yfir 20 ár, og það var yndislegt að hafa hann. Það var sérstaklega skemmtilegt þegar við tókum í spil og gamli gat aldrei farið eftir leikreglum. Mjög fyndið þegar við vorum í spilinu Alias þar sem maður átti að lýsa einhverju orði en ekki að leika það, en þá gerði Tommi allt- af hvort tveggja; gleymdi sér allt- af, og það var mikið hlegið að honum. Eftir að hann fékk heilablóð- fall og lenti á spítala og síðan inni á hjúkrunardeild reyndi ég að fara einu sinni í viku til hans með pönnukökur og gerði það ómælda lukku. Hann sagði alltaf að pönnukökurnar væru það eina góða og varð alltaf jafn ánægður. Það var líka yndislegt hvernig hann tók alltaf á móti mér: „Hæ elskan, ertu komin!“ og ljómaði allur. Tomma hafði alltaf langað til að eignast stelpu og hann sagði oft að ég væri eins og dóttirin sem hann eignaðist aldrei, sem hlýjaði mér mikið um hjartarætur. Elsku Tommi, ég á eftir að sakna þín, hvíl í friði. Þín tengda- dóttir, Rannveig (Ransý). Afi var hörkuduglegur maður og kallaði ekki allt ömmu sína. Hann vann alla tíð eins og skepna og eyddi stórum hluta ævi sinnar á sjónum. Þess á milli stundaði hann skotveiðar með félögunum sem hann hafði mikið gaman af. Minningar um fullan bílskúr af gæsum eru ofarlega í huga. Þó svo að afi hafi haft harða skel að utan var hann einstaklega mjúkur að innan og með gott hjartalag. Því miður fengu ekki allir að kynnast mjúku hliðinni hans. Við barnabörnin vorum heppin með það því hann sýndi okkur mikla ást og umhyggju. Þegar við hugsum til afa koma hlýju, dillandi faðmlögin fyrst upp í hugann og hláturinn hans, sem var yndislegur. Árið 1997 keyptu afi og amma Keisbakka og eyddum við mörg- um stundum þar. Þangað var allt- af gott að koma og allir alltaf vel- komnir. Þar var alltaf nóg um að vera og sá gamli gaf hinum ungu ekkert eftir og var sko sannkall- aður Keisbakkakóngur. Eitt sinn var verið að grafa fyrir staurum og afi var svo mikill jaxl að þrátt fyrir að líkaminn væri löngu bú- inn, komið myrkur og allir aðrir farnir inn bograði hann enn yfir holunum og kom ekki inn fyrr en hann var dreginn þangað. Á vorin var farið út í eyjar að tína dún sem var einstaklega skemmtilegt og mikil forréttindi fyrir okkur krakkana. Þar sigldi skipstjórinn á milli eyja á gúmmítuðrunni og pikkaði okkur upp. Það er ekki hægt að segja að afi hafi borið mikið traust til ókunnugra, hann var alltaf viss um að fólk væri að reyna að svíkja sig. Hann prédikaði mikið yfir okkur krökkunum að við þyrftum sko að passa okkur á því að láta ekki plata okkur. Svo fór hann með sömu tugguna aftur og aftur við okkur stelpurnar þegar við vorum yngri, að við skyldum passa okkur á strákunum, þeim væri sko ekki treystandi. Afi var kjaftfor en yfirleitt þegar á reyndi aktaði hann ekki eftir því sem hann sagði. Einu sinni var hann rosa illur út í ein- hverja þjónustu og hringdi ösku- illur í þjónustuver fyrirtækisins og sagði svo eftir símtalið: „Djöf- ull, ég sem ætlaði að hella mér yf- ir þau en svo var konan í síman- um svo andskoti indæl að ég bara gat það ekki.“ Síðustu árin voru afa erfið, hann var sestur í helgan stein og gat lítið stundað áhugamálin þar sem heilsan var ekki góð. Það tók einnig mikið á hann þegar við misstum pabba. Það var líka rosalega erfitt fyrir hann þegar hann gat ekki lengur búið heima hjá sér og þurfti að fara á hjúkr- unarheimili. Þar gerði hann lítið annað en að liggja uppi í rúmi og horfa á sjónvarpið og leiddist líf- ið. En mikið sem hann var alltaf glaður að sjá mann þegar maður kíkti í heimsókn og tók alltaf á móti manni með sömu setning- unni: „neihhh ert þú komin!“ og þegar maður fór þakkaði hann alltaf innilega fyrir heimsóknina því honum þótti svo vænt um það. Afi hafði beðið lengi eftir því að fá að fara og loksins kom sá tími. Við munum sakna hans endalaust mikið, en við vitum að honum líð- ur miklu betur á þeim stað sem hann er núna og hefur fengið góð- ar móttökur. Anna Hlíf, Áslaug Svava og Tómas Örn. Tómas minn, þú ert búinn að vera góður við hann pabba. Ég vissi ekki að Tómas hefði dáið. Hann gerði mikið fyrir okkur og leyfði pabba að vera hjá sér þegar hann kom frá Spáni. Hann og konan hans, Íris, voru góðir vinir pabba og áttu fallegt heimili sem gott var að heimsækja. Hann var tryggur og góður vinur sem vildi allt fyrir mann gera. Guð veri með Tómasi og fari hann í friði. Ég sendi fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur. Stefán sendill. Hjartans þakkir fyrir allt elsku Tommi. Hvíldu í friði. Oddný, Þórunn Soffía og Fannar Alexander. Tómas Sæmundsson Við fráfall góðrar vinkonu leita minn- ingarnar á. Solla kom inn í líf mitt þegar við báðar stunduðum nám við Myndlistar- og handíðaskóla Íslands og varð sá þráður sem við spunnum þar að vináttu sem hefur haldist óslitin síðan þrátt fyrir að samvera okkar hafi ekki verið mikil undanfarin ár. Í mínum huga var Solla eins og Sólrún Guðbjörnsdóttir ✝ Sólrún fæddist1. maí 1951. Hún lést 30. ágúst 2018. Útför Sól- rúnar fór fram 6. september 2018. náttúran sjálf, kraft- urinn, eljan, mýktin og allt litrófið og ekki annað hægt en að lað- ast að henni og sem betur fer eignast vin- skap hennar. Hún var einstakur mannvinur, ósérhlíf- in, fordómalaus, við- sýn, úrræðagóð, sér- staklega skemmtileg og ávallt til í að hjálpa, redda og græja á námsárum okkar þegar við vorum að róta í ruslinu einhvers staðar í leit að fjársjóðum til list- sköpun og kom sér þá vel hvað hún var góður bílstjóri og á stórum bíl. Ferðin okkar til New York þar sem við auðvitað deildum herbergi var okkur endalaus uppspretta hláturs þegar við leituðum saman í minningabankann frá ferðinni okkar. Solla mín var bara svo ein- stök, skapandi og allt lék í höndum hennar, stór kona með stórt hjarta sem var mér fyrirmynd um hvað það er að vera góð manneskja. Við áttum eftir að gera svo margt saman en nú er hún flogin á braut með farfuglunum en minn- ing hennar lifir. Með hlýhug votta ég fjölskyldu og vinum Sollu dýpstu samúð. Ása Hauksdóttir. Kveðja frá Hofsstaðaskóla Sólrún starfaði sem mynd- menntakennari í Hofsstaðaskóla frá árinu 1994 og átti farsælan starfsferil við skólann allt til ársins 2016. Hún lét formlega af störfum sl. vor. Sólrún var góður félagi, listræn, skapandi og fylgin sér. Hún kom með afar ferskan blæ inn í mynd- menntakennsluna og átti auðvelt með að fara með nemendur í list- rænt ferðalag. Hún kynnti ýmsar listgreinar fyrir nemendum s.s. málun, höggmyndalist, glerlist og leirlist. Sólrún náði vel til nemenda sem kunnu vel að meta fjölbreytta kennslu hennar. Þeir fóru stoltir heim með skemmtileg og metnað- arfull verkefni. Nemendur unnu einnig í hópum að gerð fjölda lista- verka undir leiðsögn Sólrúnar á svokölluðum þemadögum. Við erum svo lánsöm í Hofs- staðaskóla að mörg verkanna prýða enn veggi skólans og bera frábærum listamanni og kennara gott vitni. Samstarfsfólk saknar vinar og félaga og sendir fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Fyrir hönd starfsfólks Hofs- staðaskóla, Margrét Harðardóttir, skólastjóri. ✝ Guðrún Þórunnfæddist 9. októ- ber 1932 á Bolla- stöðum í Austur- Húnavatnssýslu. Hún lést á HSN á Blönduósi 4. september 2018. Foreldrar henn- ar voru Steingrím- ur Magnússon frá Njálsstöðum og Ríkey Magnús- dóttir, f. á Ásmundarnesi í Strandasýslu. Guðrún ólst upp á Torfustöð- um í Svartárdal og Eyvindar- stöðum í Blöndudal. Guðrún giftist 31. mars 1951 Ingólfi Bjarnasyni, f. 14.3. 1921, d. 22.5. 2000, bónda á Bollastöð- um. Hann var sonur Bjarna Jóns- sonar sem var ættaður úr Skaga- firði og konu hans, Ríkeyjar Gestsdóttur frá Gjögri í Stranda- sýslu. Þau hjón bjuggu lengi í Kálfárdal á Skörðum og þar var Ingólfur fæddur. Synir Ingólfs og Guðrúnar eru: 1) Birgir Þór, f. 14.7. 1951, sem býr á Blönduósi. Kona hans er Ragna Árný Björnsdóttir og dóttir þeirra er Klara Rún. Sonur Rögnu og uppeldis- sonur Birgis var Björn Ingvar Pét- ursson, sem er látinn. 2) Bjarni Brynjar, f. 1.1. 1956, sem býr á Bollastöðum. Hann var kvæntur Margréti Guðfinnsdóttur en þau skildu. Börn þeirra eru Ragnar Ingi, kvæntur Borghildi Aðils. Þau búa á Bollastöðum. Hulda Ríkey, sambýlismaður hennar er Hafsteinn Hansen. Dóttir Bjarna og Ragnheiðar Ólafsdóttur er Dagbjört Karen. Útför Guðrúnar fer fram frá Bergsstaðakirkju í dag, 18. september 2018, klukkan 14. Við sjáum að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær, og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóst þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt, og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson) Kæra systir, það er komið að kveðjustund eftir 70 ára samfylgd. Við hittumst fyrst um haust og kveðjumst á sama tíma. Sumarið liðið og litir haustsins teknir við. Þú varst farin að búa eigin búi þegar ég fór að hafa vit á lífinu og tilverunni í dalnum. Nú þegar þú heldur á lendur sumarlandsins að loknu löngu og farsælu lífshlaupi er mér efst í huga þakklæti og gleði yfir okkar sambandi og samstarfi sem aldrei bar skugga á. Ég bið guð að blessa Birgi og fjölskyldu og Binna og fjölskyldu. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Þinn bróðir, Bragi. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna. Margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. (Höf. ók.) Í dag kveð ég mágkonu mína Guðrúnu Steingrímsdóttur eða Gunnu á Bollastöðum eins og hún var ávallt kölluð. Það var alltaf gott að koma í Bollastaði, þegar rennt var í hlaðið komu húsráð- endur ávallt út og tóku á móti okk- ur og fann maður alltaf að allir væru velkomnir hversu margir sem úr bílnum komu. Gunna var skörp og drífandi kona, hafði alltaf um nóg að spjalla um landsins gagn og nauðsynjar og hafði skoðun á hinum ólíkleg- ustu hlutum. Gunna hafði gott lag á börnum, það sást best á öllum sumarbörnunum sem hún tók að sér og sum þeirra voru árið um kring. Aldrei var komið að tómum borðum á Bollastöðum, þar var alltaf hlaðið borð af góðgæti og séð til þess að enginn færi svangur. Við Bragi áttum margar góðar ferðir í Sellandakot. Oft komum við seint að kvöldi í Bollastaði í snjó og frosti, var þá notalegt að koma í eldhúsið hjá Gunnu og Binna, fá heitt kaffi og kökur áður en haldið var í fjallakofann góða. Eigum við margar góðar og ógleymanlegar minningar frá þeim tíma. Sumarið 2002 var ákveðið að halda fjölskyldumót hjá systkin- unum frá Eyvindarstöðum. Í upp- hafi var það haldið á Bollastöðum, allt tilstandið og fyrirhöfnin var sjálfsagt mál. Viðburðurinn er orðinn árviss og afkomendum hef- ur fjölgað, fundið var stærra hús- næði sem hefur gefist vel og eng- inn vill missa af hittingnum. Í fyrrasumar komst þú ekki vegna veikinda, Gunna mín, en systkini þín komu í staðinn á spítalann og þar urðu fagnaðarfundir. Nú í sumar komumst við hjónin ekki á ættarmótið vegna veikinda, en ég vil þakka þér fyrir öll símtölin sem við áttum. Þú vildir vita hvort ég væri ekki að hressast og þér fannst gott að ég hefði ekki verið lögð af stað norður á ættarmótið. Þú sagðir mér hversu gaman það hefði verið að fá Maríu, Magga og Lilju í heimsókn og ekki fannst þér leiðinlegt að hafa fengið að sjá tvíburana hennar Ríkeyjar, þú tal- aðir mikið um það. Mikið er ég þakklát fyrir símtalið við þig dag- inn áður en þú veiktist, þú varst svo hress og spurðir eins og alltaf um börnin og hvort ekki væri í lagi með alla í fjölskyldunni. Gunna mín, hafðu þökk fyrir allt og allt. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson) Birgir og fjölskylda, Binni og fjölskylda. Þið eigið alla mína sam- úð. Guð blessi ykkur öll. Elín Magnúsdóttir (Ella). Guðrún Þórunn Steingrímsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.