Morgunblaðið - 18.09.2018, Side 25

Morgunblaðið - 18.09.2018, Side 25
og hún gerði eins við mína. Henni var svo ekið brosandi í miðdags- kaffið. Hún var svo fín og falleg! Gulli og perlum að safna sér sumir endalaust reyna, og vita það ekki að vináttan er verðmætust eðalsteina. Gull á ég ekkert að gefa þér og gimsteina ekki neina. En viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina. (Hjálmar Freysteinsson) Guð blessi minningu Imbu á Jarðbrú. Heimir Kristinsson og fjölskylda. Komið er að kveðjustund. Árið er 1964, ég á fimmtánda ári og ráðinn sem sveitastrákur til Imbu og Dúdda á Jarðbrú eins og þau voru alltaf kölluð hér í sveit. Hvað fer í gegnum huga ungs drengs sem fer að heiman í fyrsta skipti, kvíði að fara að heiman frá for- eldrum og systkinum til annarra og vandalausra. Fyrir mér var þessi ótti ástæðulaus, Imba tók mér sem móðir mín væri og hefur æ síðan reynst mér eins og besta móðir og Jarðbrúarsystkini hafa alltaf látið mér líða þannig að ég sé einn úr hópnum, fyrir þetta verð ég eilíflega þakklátur. Sumr- in mín á Jarðbrú urðu fjögur og veturnir þrír þannig að ég kynnt- ist Imbu vel. Auk þess að vera húsfrú á stóru heimili sinnti hún útiverkum svo sem heyskap og mjöltum og ýmsu öðru sem þurfti að sinna. Þá má segja að hún hafi verið aðstoðarmanneskja dýra- læknis þar sem Dúddi var starf- andi dýralæknir í Svarfaðardal, Dalvík og Árskógsströnd. Mörg- um símtölum var hún búin að sinna og æði oft heyrði ég hana gefa góð ráð um meðferð dýra þegar bóndi hennar var ekki við og einhver bið væri á að hann kæmi á staðinn. Þá sinnti hún til- tekt á lyfjum og hafði þetta gjarn- an tilbúið þegar Dúddi kom og gat hann þá farið strax af stað. Sem að líkum lætur var gestagangur mik- ill og öllum alltaf boðið inn í mat eða kaffi og væri fróðlegt að vita hvað Imba hefur gefið mörgum gestum kaffi. Á sumrin var mikill gestagangur en aldrei heyrði ég að það væri nokkurt vandamál, aðeins verkefni sem hún leysti og allir fengu veitingar og gistingu. Það hefur sjálfsagt hjálpað Imbu í hennar miklu vinnu hve létt og gott skap hennar var. Aldrei heyrði ég styggðaryrði frá henni, hvorki til mín né annarra og alltaf skyldi hún draga fram það já- kvæða í fari fólks en láta hitt eiga sig. Einn var sá hæfileiki Imbu sem guð úthlutaði henni í ríkum mæli, það var söngrödd hennar. Imba hafði háa og fallega sópran- rödd og ef tímarnir og tíðarandinn hefði verið annar hefði Imba get- að verið í hópi bestu söngkvenna. Söngæfingar með ýmsum kórum voru Imbu hvíldar- og gleðistund- ir og æði oft dáðist ég í laumi að söng hennar heima á Jarðbrú er hún söng við vinnu sína. Nú í seinni tíð hef ég dáðst að því hve Imbu tókst að hafa taumhald á hrekkjaskap barna sinna og hló hún í laumi yfir uppátækjum þeirra. Ég vil með þessum fáu lín- um þakka Imbu samfylgdina. Með henni hverfur kona af þeirri kynslóð sem æ færri hafa tæki- færi til að komast í kynni við. Hún var af þeirri kynslóð sem fékk ekkert upp í hendurnar en tókst með vinnu og baráttuþreki að eignast fallegt heimili og glæsileg- an barnahóp. Ég er þakklátur Imbu fyrir svo margt, hún kenndi mér ýmislegt sem komið hefur sér vel síðar á lífsleiðinni og henni á ég mest að þakka hvert ævistarf mitt hefur verið. Ég mun alltaf minnast hennar sem konu sem var réttsýn, hlý og glaðleg. Ég færi aðstandendum öllum innileg- ar samúðarkveðjur og þótt nú sé hún farin lifir hún áfram í huga mínum sem einstök manneskja, algjör perla. Rafn Arnbjörnsson. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018 25 Smáauglýsingar Bækur Nú eru bara allir sem vettlingi geta valdið úti að hjóla! Sáuð þið ekki Macron Frakklandsfor- seta og Lars Lökke í Danmörku um daginn? Hjólabækurnar allar 5 frítt með Íslandspósti 7.500 kr. Vestfirðir - Vesturland - Suðvestur- land - Árnessýsla - Rangárvallasýsla. Ein góð bók fylgir í kaupbæti. Skaftafellssýslur í bígerð hjá Smára okkar. Vestfirska forlagið jons@snerpa.is Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Járnsmiðja - vantar mann Vantar vandvirkan og góðan járnsmið sem getur unnið sjálfstætt. Íslenskumælandi. Um er að ræða smíði og uppsetningu á svala- og stigahandriðum. Þarf að geta byrjað strax. Uppl. 899 5979 Guðmundur Bókhald NP Þjónusta Býð fram liðveislu við bókanir, reikn- ingsfærslur o.fl. Hafið samband í síma 649-6134. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Stóla yoga með Hildi kl. 9.30- 10. Gönguhópur kl. 10.15 - 11.15. Vatnsleikfimi í Vesturbæjarlaug kl. 10.15. Tálgað í tré & postulínsmálun kl. 13-15.30. Línudans kl.13.30- 14.30. Bíó á ganginum kl. 13.30-15. Kaffið 14.30-15.20. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Boccia með Guðmundi kl. 10. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-16. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leiðb. kl. 12.30-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MS-fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir úti-og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffi- sala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S: 535 2700. Áskirkja Spilum kl. 20 í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar. Allir velkomnir Safnaðarfélag Áskirkju Boðinn Bridge og Kanasta kl. 13. Fuglatágun kl. 12.30. Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14. Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Súpa og brauð eftir stundina. Félagsstarf eldri- borgara byrjar kl. 13. Við fáum góðan gest til okkar. Rithöfundurinn Bjarni Harðarson les upp úr bók sinni Í Skugga Drottins. Verið hjartan- lega velkomin Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Landið skoðað með nútímatækni kl. 13.50. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir! Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. 7.30/15. Qi Gong Sjál. kl. 9. Karlaleikf. Ásg. kl.12. Boccia, Ásg. kl. 12.45. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Línudans í Kirkjuhvoli kl. 13.30/14.30. Vídalínskirkja – Sérsniðið námskeið í heimaskyndihjálp fyrir eldri borgara frá Rauða krossi Íslands. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl. 9- 12. Glervinnustofa m/leiðb. kl 13-16. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9, handavinna, kl. 9.30 silfursmíði (kennsla fer fram að Smiðshöfða 14 Rvk), kl. 10 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl. 13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 Alkort, kl. 14 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 16 dans. Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12. Gullsmári Myndlist kl 9. Boccia kl 9.30. Málm/Silfursmíði (kennsla fer fram að Smiðshöfða 14 Rvk) kl. 13 Canasta / Tréskurður, kl. 13 Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11, 500 kr skiptið eða 1305.-kr mánuðurinn, allir velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Spjallhópur kl 13, allir velkonmir. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og hádegismatur kl. 11.30. Gönguferð um hverfið kl. kl. 13.30 og eftir- miðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Opnar kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp á kaffi. Thai Chi með Guðnýju kl. 9-10, myndl.námsk. hjá Margréti Zophoníasd. kl. 9-12, leikf. með Guðnýju kl. 10-10.45, hádegism. kl. 11.30 (panta þarf fyrir kl. 9 samdægurs). Spekingar og spaugarar kl. 10.45-11.45, Listasm. er öllum opin frá kl. 12.30. Kríur myndlistarhópur kl. 13, bridge kl. 13-16, enskunámskeið kl. 13-14.30, kaffi 14.30. Sími 411 2790. Korpúlfar Boccia kl. 10 og 16 í dag í Borgum, helgistund kl. 10.30 í Borgum, sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 13.30 og heimanáms- kennsla kl. 16.30 í dag í Borgum Neskirkja Krossgötur kl. 13. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, prestur í Grafavogskirkju fjallar um drauma og merkingu þeirra. Söngur og kaffiveitingar. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja m.leiðbeinanda kl. 13-16, boccia, spil og leikir kl. 16, tölvu-og snjalltækjakennsla kl. 17. Uppl í síma 411 2760. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.15. Athugið að kl. 9.30 í dag verður lagt af stað í sameiginlega ferð félagsstarfsins og kirkjunnar. Heimsækjum Eldfjallasetrið á Hvolsvelli ofl. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Bridge í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Karlakaffi í kirkjunni kl. 14. Sléttuvegur 11-13. Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568 2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Skák kl. 13. Allir velkomnir. Félagslíf  EDDA 6018091819 I Fjhst atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Tilvera okkar er undar- legt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Þannig orti Tómas Guðmunds- son á sínum tíma. Þetta kemur í hugann, er ég kvaddi Grétu Jóns- dóttur þann 27. mars síðastliðinn. Við erum gestir á þessari jörð, misjafnlega lengi. Mér finnst ekki langt síðan við hittumst fyrst, á ganginum í gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði, en samt eru liðin næstum sjötíu ár, síðan þá höfum við verið vinkon- ur. Það var oft glatt á hjalla í vinnunni þetta sumar, svo okkur datt í hug að stofna saumaklúbb fjórar vinkonur. Eiginmenn okk- ar allra voru sjómenn og við vor- um að stíga okkar fyrstu skref sem húsmæður með misjöfnum árangri. Fljótlega kom í ljós að Gréta og Sella höfðu yfirburði í þeim efnum og við Auður sættum okk- ur vel við það. Svo liðu árin, nokkrar bættust í hópinn og aðrar tíndust burt, en alltaf hittumst við reglulega. Það var stundum sagt að svona klúbb- ar væru bara til að tala um náungann. Það var mikið unnið, hlegið og auðvitað eitthvað talað en allt samt saklaust. Við áttum allar mörg börn og öll þurftu þau Gréta Jóna Jónsdóttir ✝ Gréta JónaJónsdóttir fæddist 6. sept- ember 1933. Hún lést 15. mars 2018. Útför hennar fór fram í kyrrþey 27. mars 2018. föt. Maður fór ekki út í búð að kaupa þau. Minnisstæð er setning sem ein sagði: „Í þá daga bjó maður allt til nema skóna.“ Nú í seinni tíð höfum við hist sjaldnar og samskiptin orðið minni, en Gréta var sú sem hefur verið duglegust að halda tengslunum og verið tilbúin með veisluborð með engum fyrirvara. En lífið er ekki alltaf leikur og Gréta fékk að finna það er eig- inmaður hennar og sonur fórust í sjóslysi í Jökulfjörðum og nú fyr- ir nokkrum árum varð svo annar sonur bráðkvaddur. Svona áföll skilja eftir stór og djúp sár sem aldrei gleymast. En Gréta var sterk og reis alltaf upp með dyggri aðstoð barna sinna og fjöl- skyldu, en síðast og ekki síst eftir að sómamaðurinn hann Ragnar Þorbergsson kom inn í líf hennar sem hefur reynst henni vel og gott að koma í heimsókn til þeirra. Þessar fáu og fátæklegu línur eru kveðjuorð til góðrar vinkonu með þökk fyrir allar góðu stund- irnar. Mér þótti vænt um að heyra í henni vikuna áður en hún kvaddi. Þar bar margt á góma sem ekki verður rætt hér. Hún var kvödd í kyrrþey og hvílir nú við hlið ástvina í Ísafjarðar- kirkjugarði. Saumaklúbburinn kveður nú góða vinkonu með þökk fyrir all- ar góðu stundirnar og vottar fjöl- skyldu hennar okkar dýpstu sam- úð. Sigríður Aðalsteins. Við Þóranna byrjuðum að vinna saman í þvottahúsi KS á Sauðárkróki. Þá kynntist ég fyrst þessari frá- bæru konu. Þóranna var alltaf kát og hress, ósérhlífin, vinnu- söm og úrræðagóð. Þóranna kunni mikið af vísum og ljóðum sem hún fór með við vinnuna og svo sungum við gamla slagara og nýja. Þóranna hafði mjög góða söngrödd og naut þess að syngja, en færeyska lagið Fagra blóm var í miklu uppáhaldi hjá okkur. Þóranna var mikið fyrir harm- onikkumúsík og hafði gaman af að dansa og tókum við stundum snúning ef smá pása var hjá okk- ur og gott lag í útvarpinu. Tíminn leið fljótt því það var skemmti- legt og lærdómsríkt að vinna með Þórönnu, hún var hress og kát og skipti aldrei skapi, hvernig sem gekk hjá okkur. Seinna færðum við okkur í eldhús sláturhússins og ekki var krafturinn í Þórönnu Þóranna Kristín Hjálmarsdóttir ✝ Þóranna Krist-ín Hjálmars- dóttir fæddist 12. apríl 1936. Hún lést 19. ágúst 2018. Útför Þórönnu fór fram 1. septem- ber 2018. minni þar. Þetta var mikil tarnavinna og áttum við saman þar nokkur góð haust. Þóranna og mað- ur hennar, Lárus Hafsteinn, voru samhent hjón og fannst mér hún aldrei ná sér eftir að hann féll frá. Þegar Þóranna varð áttræð héldu börnin hennar henni veislu. Þar var mættur harmonikkuleikarinn Stulli frá Siglufirði og hélt uppi fjöri með spili og söng og Þór- anna lék á als oddi. Þannig man ég hana best, glaða og káta. Síðustu árin dvaldi hún á Dval- arheimili aldraðra á Sauðárkróki og naut þar góðrar umönnunar. Þóranna andaðist 19. ágúst sl. Um Þórönnu á ég bara ljúfar og góðar minningar, það voru forréttindi að fá að kynnast henni, vinna með henni og eiga vináttu hennar. Fjölskyldu hennar sem Þór- anna var svo stolt af, og lét sér svo annt um, votta ég mína inni- legustu samúð. Ég kveð kæra vinkonu með þakklæti og virðingu með kveðj- unni okkar að loknum vinnudegi. „Sjáumst.“ Sigrún Aadnegard. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.