Morgunblaðið - 18.09.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 18.09.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018 Ég er stödd í Reykjavík að versla fyrir afmælið mitt,“ segirSesselja Kristín Eggertsdóttir þegar blaðamaður hafði sam-band við hana í gær, en hún á 50 ára afmæli í dag. Hún ætlar að halda upp á afmælið á laugardaginn í félagsheimilinu á Hvamms- tanga og er boðið þangað um 200 manns. „Þetta verður styrktarveisla, en náið vinafólk mitt á við alvarleg veikindi að stríða og mig langaði til að aðstoða þau á erfiðum tímum. Svo að í stað afmælisgjafa koma gestir með pening sem fer í styrktar- sjóð. Þetta verða hálfgerðir tónleikar og allt heimafólk sem mun spila og syngja, en það er rosalega mikið tónlistarlíf á Hvamms- tanga.“ Kristín, eins og hún er allt- af kölluð, er ættuð af Vatns- nesi en ólst upp á Hvamms- tanga. Hún bjó á námsárum í Reykjavík og Akureyri um tíma auk þess að búa í Noregi í fleiri ár, þegar hún og eig- inmaður hennar, Geir Karls- son heimilislæknir, voru þar í námi, hann í sérnámi en hún í hjúkrunarnámi. Þau vinna bæði á heilsugæslunni á Hvammstanga auk þess sem Kristín sinnir heimahjúkrun og er skólahjúkrunarfræð- ingur. Þau sinna einnig fjárbú- skap í frístundum, en þau eiga hlut í jörðinni Bjargi í Miðfirði en þaðan var Grettir sterki Ás- mundsson. „Bróðir Geirs býr á jörðinni og er með 550 fjár og ætlum við í fjárrag á morgun [í dag], sem sagt að draga í sundur lömbin og ákveða hver eigi að lifa og hver fari í sláturhús. Svo fer ég á blakæf- ingu um kvöldið.“ Kristín er formaður blakdeildar Kormáks sem er íþróttafélagið á Hvammstanga. „Það er mikill uppgangur á blaklífinu, við erum með lið í meistaraflokki sem keppir í 4. deild og við erum að fara að halda fyrsta Íslandsmót í blaki á Hvammstanga, en það verður haldið 13. og 14. október. Tólf lið taka þátt í 4. deildinni og við eigum því von á 100 manns.“ Einnig er Kristín í hópi kvenna sem kalla sig Gærurnar, en þær halda úti nytjamarkaði á Hvammstanga á sumrin og ágóðinn fer í að styrkja góð málefni í Húnaþingi vestra. Synir Kristínar og Geirs eru Karl Ásgeir, f. 1990, Hjörtur Gylfi, f. 1998, og Arnar Freyr, f. 1999. Barnabörnin eru Harpa Hrafney og Sigurgeir Logi Karlsbörn. Stendur í fjárragi á afmælisdeginum Kristín Eggertsdóttir er fimmtug í dag Hjúkrunarfræðingurinn Kristín stödd á Kúbu síðastliðið vor. J óhannes Sigurður Ólafsson fæddist á Akranesi 18.9. 1948 og ólst þar upp fyrstu árin: „Ég ólst upp við Vesturgötuna til ferming- araldurs. Þá hófu foreldrar mínir búskap í Innsta-Vogi í Innri- Akraneshreppi, með blandaðan bú- skap, ær, kýr, hesta og hænsni. Maður fékk því að taka til hendinni við almenn sveitastörf á unglings- árunum.“ Jóhannes byrjaði 17 ára til sjós og stundaði síðan sjómennsku um ára- tuga skeið: „Ég var alltaf á bátum af Skaganum, var fyrst háseti á Ólafi Sigurðssyni hjá Einari Árnasyni, síðan á Höfrungi og Höfrungi III og Óskari Magnússyni AK, með Viðari Karlssyni. Eftir það tók ég 30 tonna réttindin hér uppi á Skaga sem og vélstjórnarréttindi.“ Jóhannes stofnaði eigin útgerð ár- ið 1979. Hann keypti Hrólf Ak 29 ár- ið 1981, var skipstjóri á honum og gerði hann út til 2005. Samhliða út- gerðinni ráku þau hjónin fiskverkun og reyndar einnig fiskbúð á Akra- nesi skamma hríð: „Við fiskverk- unina lögðum við áherslu á ferskan fisk og markaðinn fyrir hann hér á Akranesi og í næsta nágrenni. Við seldum í verslanir og sáum fjölda stofnana fyrir fiski, s.s. Dvalar- heimilinu Höfða, leikskólum og grunnskólum á Akranesi og í Borgarnesi, Bifröst, Hvanneyri og Grundartanga. Við vorum með fimm manns í flökun þegar mest var um- leikis hjá okkur.“ Síðustu ár hefur Jóhannes verið á strandveiðum við Arnarstapa. Fjöl- skyldan hefur auk þess rekið Fish and chips-vagninn á Arnarstapa frá vorinu 2016 við miklar vinsældir. Jóhannes er fjölskyldumaður. Honum líður best umkringdur fjöl- skyldumeðlimum og ættingjum: „Ég hef líka alltaf verið svolítill veiðimað- ur í mér en samt enginn dellukarl í þeim efnum. Ég byrjaði að renna Jóhannes S. Ólafsson, skipstjóri og útgerðarmaður – 70 ára Stoltur afi og amma Jóhannes og Herdís við skírn eins barnabarnsins, hennar Marselíu Hrundar Guðjónsdóttur. Náttúrubarn landbún- aðar og sjómennsku Kristófer Friður Birimumaso seldi dót á tombólu í Reykjavík til styrktar Rauða krossinum. Alls söfnuðust 1.058 krónur. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® vinnur gegn stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra. Með þér í liði Alfreð Finnbogason Landsliðsmaðu attspyrnu „Tækifærið er núna.“ r í kn Registered trademark licensed by Bioiberica Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.