Morgunblaðið - 18.09.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Þetta kom skemmtilega á óvart, ég
átti ekki von á að ég yrði með fleiri
tónleika í Salnum,“ segir Helena
Eyjólfsdóttir söngkona, sem tekur
þátt í Tíbrártónleikaröð Salarins í
Kópavogi með tónleikunum Í rökk-
urró á fimmtudagskvöldið kemur.
„Það er mikil vinna sem fylgir
slíkum tónleikum og ég veit undir
niðri að ég get þetta ennþá. Ekki
skemmir hversu áhugasamir og
hvetjandi strákarnir í hljómsveitinni
eru,“ segir Helena en Karl Olgeirs-
son sér um hljómsveitarstjórn og
útsetningar auk þess að spila á
harmonikku, orgel og píanó. Jón
Rafnsson spilar á bassa og Stefán
Már Magnússon á gítar og slag-
verk.
„Það er ekki verra að hafa Frið-
rik Ómar með í söngnum og
strengjakvartett með Matthíasi
Stefánssyni og Hlín Erlendsdóttur
á fiðlu, Laufeyju Pétursdóttur á
víólu og Örnólfi Kristjánssyni á
selló,“ segir Helena og tekur fram
að ekki verði einblínt á lögin af
disknum Helena sem kom út í lok
árs 2016, en af honum muni hún
taka a.m.k. „Glitra gullin ský“,
„Rós“, „Lúka af mold“ og „Reykur“.
Uppáhaldslögin í
glænýjum útsetningum
„Á tónleikunum verða flutt uppá-
haldslögin mín í glænýjum útsetn-
ingum Karls Olgeirssonar. Auðvitað
tek ég „Í rökkurró“, það er bara til
þess ætlast, og ekki ólíklegt að „Á
skíðum skemmti ég mér“ gæti
heyrst. Á tónleikunum syng ég
einnig uppáhaldsdjasslögin mín og
lög sem hafa fylgt mér í gegnum ár-
in eins og „Gettu hver hún er“ og
„Bel ami“,“ segir Helena sem tekur
í fyrsta skipti þátt í Tíbrár-
tónleikum.
„Ég hef aldrei litið á mig sem
klassískan söngvara en ég syng
gömlu góðu klassísku lögin. Söng-
ferillinn nær yfir 60 ár og ég er
þakklát, 76 ára gömul, fyrir það
hversu vel röddin heldur sér,“ segir
Helena og bætir við að hún hafi allt-
af hugað að heilsunni.
„Ég geng á hverjum degi og huga
að mataræðinu og það er gott þegar
aldurinn færist yfir að hafa eitthvað
fyrir stafni. Þegar fólk hættir á
vinnumarkaði vilja dagarnir verða
einsleitir. Það þurfa allir á tilbreyt-
ingu í lífinu að halda og einhverju til
að hlakka til,“ segir Helena sem fer
fjótlega suður eins og hún orðar það
til æfinga fyrir tónleikana í Salnum.
Vilji, geta og eftirspurn
Helena segir að tónlistin hafi gef-
ið sér svo mikið að það sé eiginlega
ekki hægt að lýsa því. Hún segist
ætla að koma fram á meðan viljinn
og getan sé fyrir hendi og ekki síður
á meðan eftirspurn er eftir söng
hennar. „Það á ágætlega við að
halda tónleika undir nafninu Í rökk-
urró þegar við erum að síga inn í
rökkrið. Það myndi gleðja mig mjög
að fylla Salinn,“ segir Helena og
bendir á að enn sé hægt að tryggja
sér miða á tónleikana í Salnum 20.
september.
„Sígum inn
í rökkrið“
Gefandi Söngkonan Helena Eyjólfsdóttir syngur í Salnum á fimmtudag og
segir að tónlistin hafi gefið henni svo mikið að því sé ekki hægt að lýsa.
Helena í fyrsta sinn á Tíbrá Átti
ekki von á fleiri tónleikum í Salnum
Fimmtánda Alþjóðlega kvik-
myndahátíðin í Reykjavík, RIFF,
hefst fimmtudaginn 27. september,
með sýningu á Donbass eftir Sergei
Loznitsa. Kvikmyndaveislan stend-
ur yfir í ellefu daga og lýkur 7. októ-
ber með sýningu á verðlaunamynd-
um hátíðarinnar. Að vanda verður
öllu tjaldað til og raunar óvenju-
miklu í tilefni af 15 ára afmæli hátíð-
arinnar. Á blaðamannafundi RIFF
kom fram að flestar myndirnar væru
splunkunýjar, sumar nýlega heims-
frumsýndar í Cannes, Feneyjum og
Torontó, og spegluðu það besta í al-
þjóðlegri kvikmyndagerð.
Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi
hátíðarinnar, upplýsti m.a. að sam-
tals yrðu sýndar hátt í 70 myndir frá
meira en 30 löndum í fullri lengd,
bæði leiknar myndir og heim-
ildamyndir auk fjölda stuttmynda. Á
annað hundrað erlendir gestir úr
kvikmyndaheiminum eru vænt-
anlegir til að kynna verk sín eða taka
þátt í íslenskum Bransadögum og
Talent Lab-smiðjunni sem haldin er
samhliða. Að sögn Hrannar er mark-
mið hátíðarinnar m.a. að miðla kvik-
myndum af öllu tagi og í rauninni
öllu litrófi mannlegra tilfinninga,
eins og hún kemst að orði, og efna
um leið til umræðu um mannréttindi
og ýmis samfélagsmál. „Myndirnar
eru um allt milli himins og jarðar og
hátíðin fjölbreytt og sólrík, en jafn-
framt skuggaleg,“ segir hún.
Meðal mynda á RIFF eru 3 Fa-
ces, sem vann keppnina um besta
handritið og keppti um Gullpálmann
í Cannes, Touch me not með Tómasi
Lemarquis í burðarhlutverki, en
myndin hreppti Gullbjörninn, að-
alverðlaunin á Berlinale. Sérstöku
sjónarhorni verður beint að mynd-
um frá Eystrasaltslöndunum, eink-
um myndum litháíska kvikmynda-
gerðarmannsins Jonas Mekas og
Lailu Palina frá Lettlandi, sem
verða heiðursgestir hátíðarinnar
ásamt danska leikaranum Mads
Mikkelson, Sergei Loznitsa og Shai-
lene Woodley.
Sýningar verða aðallega í Bíó
Paradís, en boðið upp á nokkrar sér-
sýningar í Sundhöll Reykjavíkur og
Loft hostel. Raunar verður dagskrá
RIFF á fleygiferð úti um alla borg,
t.d. á bókasöfnum og í strætisvagni.
Einnig verða sýningar á Ísafirði,
Egilsstöðum og víðar.
Á RIFF verður boðið upp á fjölda
viðburða, t.d. Sci-fi költmyndina The
Fifth Element, sem sýnd verður í
Sundhöllinni, kvikmyndaknæpugátu
undir stjórn Hugleiks Dagsonar og
marga fleiri. vjon@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Dagskráin kynnt F.v. Börkur Gunnarsson kynningarstjóri, Guðrún Helga Jónasdóttir, verkefnastjóri Bransadaga
og heimildamynda, Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF, og Þórey Eva Einarsdóttir framleiðandi.
Ellefu daga kvikmynda-
veisla úti um alla borg
Donbass eftir Sergei Loznitsa opnunarmynd á RIFF
Miðasala á RIFF er hafin á Hlemm-
ur Square hotel. Hátíðarpassi og
klippikort fást á tix.is og riff.is þar
sem jafnframt eru ítarlegar upp-
lýsingar um allar myndir og við-
burði á hátíðinni.
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar
að dugmiklu fólki 13 ára og eldra,
til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga
og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar
í síma 569 1440
eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða líkamsrækt
strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi
Vantar þig
aukapening?
Þriðja hefti
Tímarits Máls og
menningar á
árinu er komið í
dreifingu en á
kápu er listaverk
eftir Þuríði Sig-
urðardóttur, há-
spennumastur á
upphlut. Mynd-
verkið tengist
tvennu í ritinu, ljóði eftir Lindu Vil-
hjálmsdóttur sem fjallkonan flutti á
Austurvelli í sumar og hugleiðingu
Andra Snæs Magnasonar út frá
kvikmyndinni Kona fer í stríð eftir
Benedikt Erlingsson. Af öðru efni
má nefna lofgrein Sigurlínar Bjarn-
eyjar um bókasöfn, umfjöllun Ás-
dísar R. Magnúsdóttur um ævintýr-
ið um Fríðu og Dýrið, frásögn
kínverska íslenskukennarans Wang
Shuhui af örlögum Nóru Ibsens í
Kína, málsvörn Sigurðar Skúlason-
ar fyrir William Shakespeare sem
hann segir eiga undir högg að
sækja í íslensku leikhúsi, frásögn
Halldórs Guðmundssonar af heim-
sókn Astrid Lindgren til Íslands,
grein Bergljótar Soffíu Kristjáns-
dóttur um sögulegar skáldsögur og
afmælisgrein Kolbrúnar Halldórs-
dóttur um nírætt BÍL.
Þá er til að mynda í ritinu smá-
saga eftir Sverri Norland, ljóð eftir
Guðmund Andra Thorsson um at-
burðina í Útey, prósaljóð um bóka-
skipti eftir Hauk Þorgeirsson og
viðtal Kristínar Ómarsdóttur við
skáldkonuna Anne Carson.
Fjölbreytilegt efni
í nýju hefti TMM
Anne Carson