Morgunblaðið - 18.09.2018, Side 33

Morgunblaðið - 18.09.2018, Side 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2018 ICQC 2018-20 Tíska & förðun NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is –– Meira fyrir lesendur Fjallað verður um tís förðun, snyrtingu, fa fylgihlutum auk umh húðarinnar, dekur og Sérblað um Tísku og förðun fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 5. október PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 1. október SÉRBLAÐ Forsögulegur risahákarl aðgæða sér á strandgestumvið Sanya-flóa í Kína ergott bíó sem á meira en lítið að þakka Steven Spielberg og Ókindinni hans margfrægu. Og samkvæmt Hollywood-formúlunni „stærra er betra“ er hákarlinn svo stór í The MEG að hann gæti étið hvítháf Spielbergs í forrétt og væn- an hval í aðalrétt. Já, hann er sann- arlega hákarl í krapinu, svo vísað sé í fyrirsögn þessarar gagnrýni en hana á Arnar Tómas Valgeirsson, stofnandi fésbókarhópsins Bylt fylki sem helgaður er skondnum þýðing- um á titlum kvikmynda og sjón- varpsþátta. Hafi hann bestu þakkir fyrir þessa snilldarlegu þýðingu á The MEG. Um leið verð ég að biðja son minn innilega afsökunar á að hafa ekki notað hans fyrirsögn, „Alveg einn, tveir og KJAMMS!“, sem vissulega hefði líka átt vel við. The MEG er eins mikil sumar- mynd og sumarmyndir geta orðið: Algjörlega glórulaus kjánagangur með fullt af fínum hasar. Fólki er ráðlagt að slökkva alveg á rökhugs- uninni og fá sér stóran poka af poppi. Í stuttu máli segir The MEG af forsögulegum risahákarli, svo- kölluðum megalodon sem er stærsti hákarl sem vitað er um að hafi verið til (í alvörunni, ekki bara kvikmynd- inni), nánar tiltekið fyrir um 2,6 milljónum ára. Hákarl þessi kemur upp úr kafinu þegar vísindamenn taka að rannsaka áður óþekktar dýptir hafsins og ræðst á rannsókn- arfar sem okkar maður Ólafur Darri Ólafsson situr fastur í ásamt tveim- ur öðrum vísindamönnum. Hóp- urinn sem stendur að baki rann- sókninni þarf að kalla út eina manninn í heiminum sem getur bjargað fólki á svo miklu dýpi, sjálf- an Jason Statham sem í myndinni heitir því vinalega nafni Jónas. Jón- as er tregur til eftir að hafa þurft að fórna tveimur vinum sínum í þágu fjöldans í öðrum björgunarleiðangri en þar fékk hann einmitt að kynnast ógnarkrafti megalodons. En þar sem fyrrverandi eiginkona Jónasar, Celeste, situr föst og slösuð á hafs- botni með samstarfsmönnum sínum, Veggnum og Toshi, getur hann ekki annað en svarað kallinu. Jónas bjargar Ólafi Darra og Celeste en Toshi fórnar sér fyrir þau og endar sem hákarlafóður. Svo óheppilega vill til að með þessari björgunar- aðgerð opnast hákarlinum leið upp úr hyldýpinu og tekur þá við svaka- leg barátta Jónasar og félaga við risaskepnuna með tilheyrandi blóð- baði og mannfalli. Inn í fléttast svo dálítil ástarsaga því Jónas verður skotinn í einum vísindamannanna, hinni bráðsnjöllu Suyin Zhang. Megalodon hefur líklega verið allt að 20 metra langur og 40 tonn að þyngd, að því er fram kemur á Vís- indavefnum og í myndinni er hann enn stærri eða 23 metrar. Skepnan er prýðilega tölvuteiknuð og atriðin þar sem hún étur báta, fólk, hvali og hákarla eru vel gerð og oftar en ekki spennandi þótt þau séu fyrir- sjáanleg. Statham er fyrrverandi dýfingameistari og keppti fyrir hönd fósturjarðar sinnar, Bretlands, í íþróttinni fyrir margt löngu, áður en hann gerðist kvikmyndaleikari og sundfimin leynir sér ekki hjá kappanum. Statham hefur á ferli sínum leikið nær eingöngu í has- armyndum, sýnt glæsileg tilþrif í bardagalistum en að þessu sinni þarf hann að slást við hákarl og þá duga engin hringspörk. Statham er ekki mikill leikari en hefur hins vegar einhvern sjarma og oft er hann sprenghlægilegur í The MEG, hvort sem það er viljandi eða óviljandi og þá ekki síst í atrið- um sem eiga að vera rómantísk en eru í besta falli kjánaleg. Statham er ógurlegur nagli en með blik í auga sem segir manni að hann viti alveg hvað myndirnar sem hann leikur í eru kjánalegar. Þess vegna virkar hann álíka vel í gam- anmyndum og hlægilegum spennu- myndum á borð við þessa og has- armyndunum sem hann er þekktastur fyrir. Af öðrum leikurum The MEG er Ólafur Darri Ólafsson sennilega sá langhæfileikaríkasti (ólíklegt að aðr- ir í leikarahópnum hafi t.d. leikið Hamlet á sviði) og hann fær að segja nokkrar setningar og sýna skemmtileg tilþrif og þá sérstaklega í seinasta atriðinu sem hann leikur sem er óborganlegt. Ólafur Darri skilar sínu vel en það sama verður ekki sagt um leikarahópinn al- mennt. Rainn Wilson, sem fólk ætti að kannast við úr bandarískri út- gáfu gamanþáttanna The Office, er að vísu ágætur en sumir leikaranna leika mjög illa, verður að segjst. Má þar sérstaklega nefna taívanska leikarann Winston Chao sem leikur yfirmann djúpsjávarverkefnisins, Chang. Hann er hlægilega lélegur. Eins og getið var í inngangi er kvikmyndin kínversk-bandarísk framleiðsla og ber hún þess greini- leg merki, m.a. í leikaravali og vali á tökustöðum. Kostulegt lokaatriði myndarinnar var tekið við strendur borgarinnar Sanya í Kína og er mjög í anda Ókindar Spielbergs. Tugir aukaleikara svamla í sjónum og flatmaga á litríkum vindsængum í sumarblíðunni og á snekkju einni eru brúðhjón í myndatöku. Smá- hundur brúðarinnar, Pippi, tekur upp á því að stinga sér til sunds og fyrr en varir birtist ógurlegur bak- uggi megalodons og nálgast með ógnarhraða. Hundurinn ýlfrar, snýr við og syndir eins og hann eigi lífið að leysa í átta að snekkjunni. Brúð- urin æpir eins og stunginn grís og þessi barátta hunds og hákarls er eitt fyndnasta atriði myndarinnar. Og til frekari staðfestingar á því hvers konar kvikmynd áhorfendur voru að horfa á birtist undir blálok- in orðið „fin“ sem getur bæði þýtt „endir“ á frönsku og „uggi“ á ensku. Þótt The MEG sé á heildina litið illa leikin, hlægileg og handritið sneisafullt af klisjum og óþörfum at- riðum (t.d. einu sem þjónar þeim eina tilgangi að sýna Statham beran að ofan, nýkominn úr sturtu) er hún bráðskemmtileg og hasaratriðin eru vel úr garði gerð. Bleksvartur húm- or lyftir henni upp fyrir miðju í ein- kunnargjöf, úr tveimur og hálfri stjörnu í þrjár. Hákarl í krapinu Hundasund Tíkin Kelly á stórleik í The MEG. Hún fer með hlutverk Pippi sem sést hér á flótta undan megalodon. Sambíó Álfabakka og Egilshöll The MEG bbbnn Leikstjórn: John Turtletaub. Aðalleik- arar: Jason Statham, Li Bingbing, Win- ston Chao, Cliff Curtis, Ólafur Darri Ólafsson, Jessica McNamee, Robert Taylor, Rainn Wilson. Bandaríkin og Kína, 2018. 113 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Ábúðarfull Ólafur Darri Ólafsson með leikurunum Jason Statham, Winston Chao og Li Bingbing í spaugilegu spennumyndinni The MEG. Kvikmynd leikstjórans Baldvins Z, Lof mér að falla, var tekjuhæsta kvikmynd helgarinnar líkt og helgina áður og sáu hana að þessu sinni 7.116 manns. Næst henni kom hryllingsspennumyndin The Preda- tor sem um 3.300 manns sáu og á hæla henni kom önnur hryllings- mynd, The Nun, sem um 3.000 sáu. Söngvamyndin Mamma Mia! Here We Go Again nýtur enn vinsælda og sáu hana rétt rúmlega þúsund manns. Spaugilegu spennumyndina The MEG, sem rýnt er í hér fyrir of- an, sáu heldur færri, eða 620 manns. Bíóaðsókn helgarinnar Lof mér að falla vel sótt Lof mér að falla 1 2 Predator (2018) Ný Ný The Nun 2 2 Mamma Mia! Here We Go Again 3 9 Hotel Transylvania 3 7 10 The Meg 4 5 Ozzy 5 3 Crazy Rich Asians 8 4 The Incredibles 2 6 13 Mission Impossible – Fallout 9 7 Bíólistinn 14.–16. september 2018 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Lof Kvikmyndin Lof mér að falla hefur hlotið mikið lof og athygli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.