Morgunblaðið - 18.09.2018, Blaðsíða 36
Á milli Hitlers og Stalíns. Mestu
hörmungartímar Norðurlanda á 20.
öld nefnist fyrirlestur sem Valur
Gunnarsson flytur í dag kl. 12.05 í
fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns
Íslands. Um er að ræða fyrsta
fyrirlestur haustsins á vegum
Sagnfræðingafélags Íslands í sam-
vinnu við Þjóðminjasafnið, en þema
haustsins er hörmungar.
Á milli Hitlers og Stal-
íns á Þjóðminjasafninu
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 261. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr.
Eins og spennan og dramatíkin í
2. deild karla í knattspyrnu hafi
ekki verið næg í sumar þá eykst
hvort tveggja enn með dómi áfrýj-
unardómstóls KSÍ í fyrradag vegna
leiks Hugins og Völsungs frá 17.
ágúst. Liðin eiga að leika að nýju á
Seyðisfirði á morgun en ekki eru
allir sáttir við þessa niðurstöðu í
málinu. »4
Umdeildur úrskurður í
kærumáli í 2. deild
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Afturelding og Selfoss eru með
fullt hús stiga á toppi Olísdeildar
karla í handknattleik, ásamt nýlið-
um KA, eftir að annarri umferð
deildarinnar lauk í gærkvöld. Aftur-
elding náði að sigra ÍR í gríðarlega
spennandi leik í Mosfellsbæ, 28:27,
en Selfyssingar unnu Akureyri
nokkuð örugglega fyrir norðan,
36:30. »4
Afturelding og Selfoss
bæði með annan sigur
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Pysjutíðin stendur sem hæst um
þessar mundir í Vestmannaeyjum og
hafa margir Eyjamenn gert sér glað-
an dag og bjargað pysjum. Karen
Lynn Velas líffræðingur starfar í
Vestmannaeyjum í sumar við að
bjarga pysjum, þó á annan hátt en
tíðkast í bæjarfélaginu. Hún hreinsar
þær pysjur sem verða fyrir ýmsum
óhreinindum, aðallega olíu og grút.
„Þetta er mikið vandamál. Þær
villast í bæinn og auðvitað tekur sam-
félagið mjög vel á móti þeim en það
er leiðindamál að þær verði óhreinar.
Flestar þeirra finnast við höfnina.“
Karen var á landinu síðasta sumar
í sömu erindagjörðum og stefnir á að
koma á hverju sumri. Hún fékk þjálf-
un í að þrífa dýrin hjá stofnun í
Bandaríkjunum sem sérhæfir sig í að
annast villt dýr sem verða fyrir skaða
eða óhreinindum af völdum olíu. „Ég
fór þar í þjálfun þegar olíulekinn
varð í San Francisco árið 2007. Eftir
það sneri ég mér að því að hreinsa
pysjurnar hér í Vestmannaeyjum.“
Ferðamenn dragast
að pysjunum
Pysjunum skilar fólk til Sæheima
þar sem þær eru vigtaðar. Í ár var
slegið met í fjölda pysja sem skilað
var inn á safnið, en þær eru orðnar
fleiri en 5.000 . Ífyrra voru þær 4.865.
Að sögn Margrétar Lilju Magnús-
dóttur, safnstjóra Sæheima, hefur
ferðamönnum fjölgað gríðarlega í
pysjutíðinni.
„Ég hef fengið margar bandarísk-
ar fjölskyldur sem koma bara í
pysjuleit,“ segir hún. Hún bætir við
að eftir að bandaríska fréttastofan
CBS News kom til Eyja og birti um-
fjöllun um lundapysjur í apríl síðast-
liðnum hafi ferðamönnunum fjölgað
mikið.
Erpur Snær Hansen, forstöðu-
maður Náttúrustofu Suðurlands,
segir pysjurnar hafi aldrei verið fleiri
síðan 2003, þegar pysjueftirlitið hóf
starfsemi.
„Fáar pysjur hafa komist upp síð-
an 2003 en það hafa verið miklar
sveiflur í sumar. Þetta er þriðja árið í
röð sem við fáum talsvert af pysjum.
Það kom mikill fjöldi nýrra varpfugla
í sumar samanborið við í fyrra en í
byrjun klaks drapst helmingurinn af
öllum ungunum á einni viku. Þeir
voru að fara mjög langt eftir fæð-
unni, um 130 kílómetra, og ég hugsa
að óreyndari fuglarnir hafi misst
undan sér,“ segir Erpur. „En það má
þó segja að þetta sé mesti fjöldi pysja
sem hefur verið frá byrjun pysjueft-
irlitsins. Það verður spennandi að sjá
hvað gerist á næstu tveimur vikum,
hvort það dragi hægt og rólega úr
þessu, sem ég reikna frekar með,
heldur en að þeim haldi áfram að
fjölga.“
Pysjum bjargað í
Vestmannaeyjum
Ljósmynd/Margrét Lilja Magnúsdóttir
Björgun Karen hyggst halda áfram að koma til Eyja og bjarga pysjum.
Metfjölda pysja bjargað, yfir 5.000 talsins 50 pysjur hreinsaðar
Munur Lundapysjan var þakin óhreinindum áður en Karen hreinsaði hana.
DUCA Model 2959
L 215 cm Leður ct. 20 Verð 469.000,-
L 241 cm Leður ct. 20 Verð 495.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY Model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 415.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 559.000,-
TRATTO Model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,-
SAVOY Model V458
L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 223 cm Leður ct. 10 Verð 395.000,-
ETOILE Model 2623
L 200 cm Leður ct. 25 Verð 429.000,-
L 230 cm Leður ct. 25 Verð 465.000,-