Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@mbl.is Marta María Jónasdóttir martamaria@mbl.is, Auglýsingar Bylgja Björk Sigþórsdóttirbylgja@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndin/ Thinkstcok B yggingariðnaðurinn hefur tekið miklum breytingum síðasta áratuginn. Í september 2008 var allt á blússandi siglingu en svo gerðist svolítið í byrjun október 2008 sem hafði víðtæk áhrif á þennan iðnað. Í dag hefur byggingariðnaðurinn rétt úr sér, en hann er þó á svipuðum stað og hann var 2004. Í grunninn hefur byggingariðnaður ekki tekið stökkbreyt- ingum. Þeir sem vinna í þessum geira segja að byggingarkranar séu mesta framförin og að öryggisreglur hafi verið hertar til muna. Það sem hafi í raun breyst er hvað mikið sé lagt upp með að vinnuvélar mengi minna og afreki meira. Vinnuvélabransinn á þó eftir að þróast mikið því í heimi þar sem sjálfkeyrandi bílar eru handan við hornið megum við búast við því að sjálvirkar vinnuvélar moki skurði og fleira í þeim dúr. Það breytir því þó ekki að í alla geira þarf fólk til þess að geta pródúser- að og búið til hugbúnað svo vélarnar geti unnið eins og þeim sé stýrt með handafli. Sjálf er ég bara með hefðbundið bílpróf en upplifði mikla valdeflingu þegar ég eignaðist loksins bíl með krók. Það er nefnilega fátt betra en að vera sjálfbær og geta bjargað sér. Það felst líka mikill tímasparnaður í því að gera hlutina sjálfur í stað þess að eyða tímanum í að suða í makanum að drífa sig af stað og vinna verkið. Þegar ég segi mjög montin frá króknum á bílnum er ég oft spurð að því hvað ég sé eiginlega að gera. Svarið er einfalt, ég þarf helst að komast í Sorpu og stundum líka í IKEA. Þegar ég fylli kerruna af garðúrgangi hugsa ég þetta verkefni eins og líkamsrækt, set heyrnartól í eyrun, hlusta á Podköst eða útvarpsþætti og reyni að gera þetta á eins stuttum tíma og hægt er. Svo þarf líka reglulega að taka til í bílskúrnum og það kallar yf- irleitt á smá rúnt með kerruna. Manninum mínum leiðast framkvæmdir. Þegar hann er ekki í vinnunni vill hann fá frið og hann vill alls ekki að ég sé að skipuleggja tímann hans eða neyða hann til að gera eitthvað sem hann nennir ekki að gera. Ég hef grun um að hann hafi framkvæmt yfir sig þegar hann kom því í gegn ásamt góðum hópi fólks að nýtt fangelsi yrði byggt á Hólmsheiði. Þar sem hann er búinn með byggingarkvótann í bili kom það í minn hlut að panta nokkra rúmmetra af steypu í framkvæmdum sem við stóð- um í. Þótt ég þykist geta nánast allt treysti ég mér ekki til að hræra í þetta sjálf. Ég hringdi því í Steypustöðina og ráðfærði mig við þá. Líklega urðu samtöl mín við þetta ágæta fyrirtæki í kringum 18 talsins og þegar ég hringdi í síðasta skiptið og kynnti mig sagði mað- urinn við mig að ég þyrfti ekki að kynna mig. Þeir þekktu mig. „Konur hringja ekki mikið hingað,“ sagði hann og hló. Ég varð verulega hissa því það er í raun jafn- lítið mál að panta steypubíl eins og panta pítsu. Fullur bíll kostar reyndar aðeins meira en 16 tommu pítsa með skinku og ananas og ennþá meira ef þú þarft rennu líka. En í grunninn er þetta svipað. „Konur hringja ekki mikið hingað“ Marta María Jónasdóttir Hvaða vinnuvélar skipta mestu máli í þínum huga? „Það er svolítið eins og að gera upp á milli barnanna sinna – öll hafa sinn sjarma og öll bráðnauðsynleg. En ætli turnkraninn standi ekki alltaf upp úr. Tignarlegur, mikil lyftigeta og flott hönnun.“ Hvernig er að starfa í byggingariðnaðinum sem kona? „Það er frábært. Þó ég sakni þess auðvitað að við séum ekki fleiri. En það er líka gaman að fá að spreyta sig í karllægum bransa.“ Hvað heillar þig mest við innanhúss- hönnun? „Heiðarleiki og það sem er persónu- legt. Mér líður ekki vel í stórum, köld- um eða ópersónulegum rýmum. Ég heillast meira af þessu persónulega og jafnvel „kaotíska“ frekar en hreinum línum og „mínimalisma“. Litir gleðja mig bæði í innanhússhönnun og í per- sónuleikum. Litir gefa öllum víddum lífs- ins svo mikið gildi.“ Hvað keyptir þú þér síðast inn á heimilið? „Ég var að koma frá Marokkó og vildi að ég hefði getað keypt heilan bílfarm af fallegum hlutum þar til að taka með heim en sætti mig við að kaupa bara eina pínulitla keramik- leirskál undir Maldon-saltið. Ég hefði senni- lega keypt meira ef ég hefði ekki verið á leið- inni í nám til Boston beint í framhaldinu með níðþunga ferðatösku af námsbókum.“ Hvaða ilmvatn notar þú? „Ég er algjör lyktarfíkill. Veit ekkert betra en að smyrja mig með allskyns olíum og lyktum. Hef prófað ógrynni af ilmvötnum en kem alltaf til baka til sama ilm- vatnsins og ég keypti þegar ég var 15 ára, eða SUN frá Jil Sander. Eini ókosturinn er sá að ilmvatnið hefur ekki fengist á landinu í fjölda ára en ég kaupi það í bílförmum erlendis. Enda sem betur fer alltaf ódýrasta ilmvatnið í búðinni.“ Hver er uppáhaldshönnuðurinn þinn? „Ég er afskaplega merkjablind og kaupi satt að segja sjaldnast nýja hluti. Elska að kaupa notaða hluti með sál og eða endurnýta hluti frá fjölskyldu og vinum. Jafnvel flikka aðeins upp á hlutina sjálf og gera þá að mínu. En ætli ég sé ekki þakklátust öllum hönnuðum IKEA fyrir að hafa gert okkur öllum kleift að eiga fallega hluti – á lágu verði?“ Fagurkerinn Brynhildur S. Björnsdóttir er framkvæmdastjóri GG Verk ehf. Hún er gift og á fjögur börn. Hún er einnig stjórnarformaður Sjúkratrygginga Íslands. Brynhildur er í þriggja ára námi með vinnu í Harvard (Owner President Management) og mun útskrifast þaðan árið 2020. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Brynhildur Björnsdóttir er framkvæmdstjóri en leggur einnig stund á nám í Harvard með vinnu. Hvað gefur lífinu gildi? „Fjölskylda og vinir, að reyna að gera betur í dag en í gær, að vera skotin í makanum sínum, ferðast og sjá nýja hluti, hlátursköst og trúnó.“ Hvar kjarnar þú þig heima? „Morgunstundin – þar sem ég reyni að vakna á undan öllum og plana daginn minn. Áður en tölvupóstunum fer að rigna niður. Kjörnunin getur gerst hvar sem er – bara án sím- ans og með kaffibolla. Það er eina „möstið“.“ Hver er uppáhaldsborgin þín? „Berlín. Alltaf Berlín. Iðandi af mannlífi, fjölmenningu, af- slöppuðu andrúmslofti, veggja- kroti, list, fágun, litagleði og ótrú- legri sögu.“ Hvað heillar þig mest í þessu lífi? „Fólk í öllum sínum myndum, stærð- um, litum og gerðum. Ég elska margbreytileikann og lærdóminn sem við getum dregið af því að hlusta hvert á annað og reyna að skilja. Maður vex í hvert sinn sem maður talar við aðra manneskju – svo ég tali nú ekki þegar maður lendir á óvæntum „trúnó“. Sem ég á alveg til í að lenda á með bankastarfsmanninum, lækninum eða stöðu- mælaverðinum. Það er sérstakt áhugamál hjá mér.“ Áttu þér áhugamál tengt vinnunni? „Ég elska auðvitað fallegar byggingar. Eitt af því sem ég skoða og heillast af þegar ég ferðast. En helsta áhuga- málið mitt er í raun vandaðir stjórnunarhættir. Að skapa fyrirtækjamenningu þar sem öllum líður vel og verða besta útgáfan af sjálfum sér. Það er númer eitt, tvö og þrjú.“ Fagurkerinn Það er margt fallegt í Marokkó. Ilmvatnið Sun frá Jil Sander.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.