Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 B . Sturluson flytur vörur á milli Reykjavíkur og Stykk- ishólms auk annarra staða á landinu. Einnig gerir B.Sturluson út flutningabíla sem sinna akstri á Höf- uðborgarsvæðinu. Áður en ég flutti í Stykkishólm var ég búinn að sanka að mér flutningabílum og búinn að vinna við fagið síðan 1998 þó með hléum. Árið 2015 var mér boðið að kaupa rekstur í Stykkishólmi og keypti vöruafgreiðslu og flutningsleiðina Stykkishólmur/Reykjavík. Við flytjum vörur, gáma, sjávarafurðir og ferskan fisk á milli ásamt byggingarefnum og vélum og öllu öðru,“ seg- ir Böðvar. Þegar hann er spurður að því hvernig flutningabransinn hafi þróast síðan hann hóf störf í honum segir hann að það sé lagt miklu meira upp úr hagkvæmi í dag. „Bílarnir eyða til dæmis minni olíu og flutningsmagn hefur verið aukið. Svo höfum við lagt upp með að kaupa tæki sem eru hagstæðari í innkaupum og falla undir íslenskar reglugerðir sem eru oft allt öðru- vísi. Oft og tíðum höfum við þurft að láta sérsmíða fyrir okkur vagna í Skandinavíu sem eru í samræmi við íslenskar reglur og mæta kröfum kúnnanna á sama tíma. Hjá okkur snýst allt um hitastig, að kælikeðjan rofni ekki frá bát í vinnslu,“ segir hann. Hvað gefur starfið þér? „Það gefur mér ógeðslega mikla vinnu, langan vinnudag og sam- skipti við margt skemmtilegt fólk,“ segir hann og hlær. Þegar Böðvar var lítill drengur í Stykkishólmi horfði hann út um gluggann og fylgdist með öllu sem var að gerast nokkra metra frá hús- inu eða þangað þar sem B. Sturluson er í dag. Þegar hann hafði aldur til fór hann að vinna hjá Vöruflutningum GB sem þarna var. „Ég hef verið viðriðinn þetta fyrirtæki frá unglingsaldri en þarna vann ég með hléum og svo endaði á því að ég keypti það,“ segir hann. Böðvar keypti fyrirtækið af Ragnari og Ásgeiri ehf. á Grundarfirði og fékk fyrirtækið nafnið B. Sturluson. Í dag starfa sjö manneskjur hjá fyrirtækinu, sex karlar og ein kona. Þegar Böðvar er spurður hvort það þurfi ekki að rétta kynjahlutfallið segir hann að hann myndi alltaf ráða konu til starfa ef hún sækti um. Þarf mikla líkamlega krafta í þessa vinnu? „Nei, þú þarft ekki að vera líkamlega sterkur til að geta unnið á svona tækjum. Þú þarft að vera sterkur andlega til að geta beitt tækj- unum og verið útsjónarsamur. Mikilvægt er líka að hafa hugann við efnið.“ Það að flytja úr Reykjavík í Stykkishólm hafði í för með sér aukin lífsgæði fyrir hann og fjölskylduna. „Þótt ég vinni mikið þá er ég meira heima núna en þegar ég bjó í Reykjavík. Ég fer til dæmis heim í hádeginu, fæ mér að borða, legg mig og set kannski í þvottavél. Þetta starf snýst ekki bara um að vera töffari sem keyrir trukka, maður er líka mjúkur maður,“ segir hann. Morgunblaðið/Golli Að vera andlega sterkur skiptir máli Böðvar Sturluson rekur fyrirtækið B. Sturluson í Stykkishólmi. Hann flutti frá Reykjavík á æskuslóðirnar í Stykkishólmi til að geta átt meiri tíma með fjölskyldunni. Hann segir að það gangi þó ekki alltaf og stundum séu dagarnir langir. Marta María | mm@mbl.is Böðvar Sturluson rekur fyrirtæki B. Sturluson í Stykkishólmi. Um leið og Böðvar hafði aldur til fór hann að vinna í flutn- ingafyrirtæki í Stykkishólmi. Böðvar keypti flutninga- leiðina Stykkishólmur/ Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.