Morgunblaðið - 21.09.2018, Side 10
Hlustaðu á þetta og líf þitt verður betra
A uðvitað er alltaf gott að hlusta bara á K100 dag-inn út og inn en ef þú vilt aðeins öðruvísi upp-lifun er netvarp málið.
Netvarpið nýtur mikilla vin-
sælda en hægt er að hlaða forrit-
inu niður í símann sinn og hlusta
á allt milli himins og jarðar.
Ef þú vilt lifa betra lífi er net-
varp Tonys Robbins áhugavert.
Hann er lífsþjálfi, fyrirlesari og rit-
höfundur sem hefur náð góðum
árangri. Ef þú vilt fá leiðarvísi um
hvernig þú getur bætt líf þitt, nýtt
tímann þinn betur og átt farsælli
samskipti við maka þinn er netvarpið
hans alger veisla.
Ef þú vilt bæta samskipti þín við
makann og fá góðar hugmyndir meðan
á vinnunni stendur er hjónabandsráðgjafinn Esther
Perel með æðislegt netvarp. Það heitir Where Should
We Begin. Þar fær hún til sín raunveruleg pör og
hjón sem eru komin til hjónabandsráðgjafans
til að fá úrlausn sinna mála. Ef þú fílar spenn-
andi samræður og vilt líða eins og þú sért
fluga á vegg er þetta
málið.
Eitt vinsælasta net-
varpið í App Store heitir
My Dad Wrote A Porno.
Þú þarft ekki að hafa
áhyggjur, þetta er ekki
fyrir dónadúska. Um er að
ræða grínþætti sem fengið
hafa fjölda verðlauna. Jamie
Morton sér um þetta net-
varp ásamt James Cooper og
Alice Levine.
V
ilhjálmur segist hafa verið einn af þeim drengjum sem
pössuðu ekki inn í skólakerfið. „Ég var les- og skrif-
blindur. Einn af þeim sem voru mjög duglegir en
geymdir í „tossa“bekknum í gagnfræðaskóla. Það var
því eins og að sleppa úr refsingu að fá tækifæri til að
byrja að vinna.“
Vilhjálmur fór strax að vinna á fullu í jarðvinnu árið 1990, þá
16 ára gamall og hafði unnið við greinina á sumrin fyrir þann
tíma með skóla.
„Árið 2004 stofnaði ég Fagverk. Við einblínum á malbikun og
fræsun á malbiki.“
Vilhjálmur segir að malbikunargreinin sé enginn dans á rós-
um. „Sumir gætu haldið annað miðað við umræðuna í þjóðfélag-
inu um að það þurfi að malbika alls staðar. Hins vegar verðum
við að hafa hugfast að veðrið þarf að vera gott til malbikunar.
Þess vegna þarf mikið af verkefnum okkar að vinnast á fjögurra
mánaða tímabili, þegar veður leyfir hér á landi.“
Aðspurður hvað skipti mestu máli fyrir fyrirtæki í hans iðnaði
segir hann að Ísland verði að geta boðið upp á fjölbreytt verk-
efni. „Markaðurinn er of lítill til að öll fyrirtæki geti sérhæft sig í
einhverju einu. Það er samt þannig sem mann langar að sjá
greinina vaxa og dafna; að fyrirtækin séu góð í mismunandi hlut-
um. Það er að mínu mati betra að vera frábær að gera eitthvað
eitt en vera sæmilegur í flestu sem þú tekur þér fyrir hendur.“
Mikilvægt að tileinka sér tæknina
Þegar kemur að tækninni segir Vilhjálmur að miklu máli
skipti að tileinka sér alla tækni sem í boði er hverju sinni í tækja-
búnaði. Eins þegar kemur að utanumhaldi, gæðastjórnun og
fleiru. „Annars ertu fljótur að staðna og dragast aftur úr þeim
sem gera hlutina vel.“
Vilhjálmur er þó hugsi þegar framtíðin berst í tal, sér í lagi
þegar kemur að nýliðun innan greinarinnar.
„Það þykir ekki aldeilis fínt að vinna við malbikun. Að mínu
mati kemur það til vegna þess að þú ferð ekki í skóla að læra að
vinna við jarðvinnu. Mér finnst það í raun alveg galið að ekki sé
nein braut innan skólakerfisins sem undirbýr fólk fyrir þennan
iðnað.“
Menntun á þessu sviði skiptir máli
Vilhjálmur segir að fyrirtækin sjálf hafi verið vön að ala upp
unga menn og kenna þeim verklagið. „Það tekur mörg ár að
þjálfa upp starfsmenn í þessari grein. Við þurfum að vinna út frá
teikningum og lýsingum frá verkfræðingum og arkitektum;
hvernig gata lítur út, hvernig jarðlagnir líta út, stígar eða hvern-
ig vel mótað landslag á að líta út þegar verkinu er lokið. Þessi
þekking býr í hverju fyrirtæki á markaði fyrir sig. Ég persónu-
lega væri til í að geta ráðið til mín menn sem hafa fengið ein-
hverja kennslu í grunnatriðum tengdum jarðvinnu, því iðn-
greinin er stór en algerlega falin eins og staðan er í dag fyrir
skólakerfinu,“ segir hann.
Vilhjálmur Þór Matthíasson, eigandi Fagverks, man varla
eftir sér nema í jarðvinnu. Hann segir malbikunarbransann
engan dans á rósum. Hann leggur áherslu á sérhæfingu;
að vera góður í sumu frekar en lélegur í mörgu.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Duglegur en
geymdur í
„tossa“bekk
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018
Sæti fyrir
langferðabíla,
vörubíla og
stærri
vinnutæki
Reki ehf, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík
Sími 562 2950, fax 562 3760
bjorn@reki.is - www.reki.is
Ef það er einhver hópur sem hefur
tækifæri til að hlusta við vinnuna þá eru
það þeir sem vinna með heyrnartól í
eyrunum allan daginn.
Tony Robbins
segir okkur hvern-
ig við eigum að
haga okkur til að
ná árangri. Net-
varp hans er
sérlega vinsælt.
My Dad
Wrote
A Porno
er
drepfyn
dið
netvarp.
Where Should We Beginmeð Esther Perel er frá-bært netvarp.