Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 16
Skyfall
The Cleveland Show – „Crazy Train“
Í fjórðu þáttaröðinni um hinn seinheppna Cleveland Brown
taka stjúpbræðurnir Rallo Tubs og Cleveland Brown yngri upp
á því að lagfæra og stela körfubíl. Nota þeir tækifærið til að
gera alls kyns góðverk í bæjarfélaginu; bjarga köttum úr trjám
og ná frisbídiskum ofan af húsþökum. Fyrr en varir eru bræð-
urnir og körfubíllinn þeirra orðnir að hálfgerðri goðsögn meðal
barnanna í bænum, en þurfa að vara sig á verktökunum sem
vilja fá tækið sitt til baka.
Skyfall
Í opnunaratriði 24. myndarinnar um njósnara hennar hátign-
ar þarf James Bond að hundelta skúrk um götur Istanbúl. Eins
og allir góðir eltingaleikir enda hetjan og skúrkurinn á þakinu á
lest sem er á fleygiferð, en fyrst notar Bond forláta beltagröfu
frá CAT bæði til að verjast skotum skúrksins og varna því að
hann komist undan með því gamla bragði að losa öftustu lestar-
vagnana frá.
A Fish Called Wanda
Hver getur gleymt endalokum sögupersónu Kevins Klines í
gamanmyndinni A Fish Called Wanda? Eftir að hafa gert öllum
í kringum sig lífið leitt, meira að segja gleypt blásaklausan fisk í
heilu lagi, fær skúrkurinn makleg málagjöld og lendir undir
valtara eftir að hafa fest sig í steypu.
Námavélin í Westworld
Í skemmtigarðinum Westworld veit enginn hvað gerist næst,
hvað þá eftir að kúreka- og indíánaróbótarnir – sem smíðaðir
voru til að vera lifandi leikföng ríkra gesta – verða allt í einu
skyni gæddir. Í nokkrum þáttum bregður fyrir risastórri gröfu
sem stjórnendur garðsins nota til að breyta landslaginu. Grafan
sem um ræðir er alveg örugglega tölvugerð en byggist á risa-
gröfunni Bagger 288 sem er svo stór að bara skóflan er álíka há
og sjö hæða blokk.
The Simpsons – „Mr. Plow“
Hver gæti gleymt þessum klassíska Simpson-þætti frá árinu
1992 þar sem Hómer fær þá snilldarhugmynd, eftir að hafa
klessukeyrt báða bíla heimilisins, að fjárfesta í stórum pallbíl
með snjóplóg. Plóginn má jú nota til að skapa aukatekjur og
þannig greiða af pallbílnum. Smellin sjónvarpsauglýsing verður
til þess að viðskiptin fara að ganga mjög vel, allt þar til óvæntur
keppinautur birtist.
Dumb and Dumber
Af öllum þeim sendiferðabílum sem birst hafa í
kvikmyndum er sennilega enginn eins eft-
irminnilegur og Ford Econoline-bíllinn úr gam-
anmyndinni Dumb and Dumber. Um var að
ræða Ford af árgerð 1984 sem skreyttur var
til að líta út eins og risastór hundur (með trýni,
tungu, eyru, afturlappir og skott), til að auglýsa
hundasnyrtistofu á hjólum. Eins og margir les-
endur muna þurfti að lyfta annarri afturlöppinni
til að komast að bensínlokinu.
VINNUVÉLAR Í KVIKMYNDUM OG SJÓNVARPI
Þegar söguhetjurnar láta verkin tala
Þegar að er gáð leika stórtækar vinnuvélar oft mikilvægt hlutverk jafnt í sjónvarpsþáttum sem kvikmyndum. Fer það iðulega
eftir því hver er á bak við stýrið, hetjan eða skúrkurinn, hvort tækið er notað til góðs eða ills.
Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is
Dumb and
Dumber
A Fish
Called
Wanda
The Simpsons –
„Mr. Plow“
Námavélin í
Westworld
The Clevel-
and Show –
„Crazy Train“
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018