Morgunblaðið - 21.09.2018, Side 24
S
tutt er í að Brimborg taki í notkun
nýtt, glæsilegt og sérhannað þjón-
ustuhúsnæði fyrir Volvo atvinnu-
tæki í Hádegismóum 8 í Árbæ.
Verður tækifærið notað til að
breyta nafni Volvo atvinnutækjasviðsins og
taka upp gamla nafnið Veltir. Kristinn Már
Emilsson, framkvæmdastjóri sviðsins, segir
þetta gert til að skapa skarpari skil á milli
fólksbílasölu Brimborgar á Bíldshöfða annars
vegar og þungadeildarinnar í Hádegismóum
hins vegar.
Nýja húsnæðið er merkilegt fyrir margra
hluta sakir. „Hönnunarferlið tók töluverðan
tíma og var vandað til verka. Starfsmenn at-
vinnutækjasviðs höfðu meðal annars tök á því
að koma á framfæri sínum skoðunum á fund-
um sem haldnir voru í hönnunarferlinu. Við
hönnun á húsnæðinu var sérstaklega hugað að
staðsetningu, aðkomu frá stofnbraut og að
tækjabúnaður yrði sem allra bestur. Jafnframt
var hugað að því að aðstaða fyrir starfsmenn
og okkar viðskiptavini yrði sem best,“ segir
Kristinn. „Þessi Volvo þjónustumiðstöð er
óvenjuleg að því leyti að við erum að þjónusta
undir einu þaki öll atvinnutækjamerki Volvo,
þ.e. Volvo Trucks vörubifreiðarnar, Volvo CE
vinnuvélarnar, Volvo Bus rútur og stræt-
isvagna og Volvo Penta bátavélarnar auk Re-
nault Trucks vörubifreiða. Mér vitandi er
hvergi í Skandinavíu hægt að finna einn um-
boðsaðila sem er með öll þessi merki á sinni
könnu eins og við.“
Góð vinnuaðstaða og fallegt útsýni
Kristinn segir að til framtíðar sé nýju bygg-
ingunni ætlað að styðja við uppbyggingu at-
vinnutækjasviðs Brimborgar og gera Velti að
einum eftirsóknarverðasta vinnustaðnum á
þessum markaði. Á vinnuaðstaðan að vera eins
og best verður á kosið og gott athafnarými til
að veita viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustu.
Í vesturhluta húsnæðisins er aðalinngangur
Veltis og hægt að finna móttökusvæði, sölu og
söluráðgjöf varahluta ásamt verkstæðis-
móttöku. Á annarri hæð verða söluráðgjafar
Volvo atvinnutækja og að auki fundaraðstaða,
kennslurými og mötuneyti fyrir starfsmenn.
„Ekki má gleyma að nefna frábært útsýni til
norðurs yfir Grafarholtsvöll af stórum svölum
sem eru aðgengilegar úr mötuneyti starfs-
manna. Innangengt er frá anddyrinu inn á
verkstæðið og getum við opnað þar inn og not-
að verkstæðisrýmið sem sýningaraðstöðu ef
svo ber undir,“ útskýrir Kristinn.
Á nýja þjónustuverkstæði Veltis verður all-
ur tækjabúnaður af bestu gerð og segir Krist-
inn að verkstæðið verði sennilega eitt flottasta
og best útbúna atvinnutækjaverkstæði lands-
ins, og þó víðar væri leitað. „Sem dæmi um
tækjabúnað þá eru tjakkalyftur í gólfi í tveim-
ur stæðum og 26 metra gryfja með áföstum
bremsuprófunarbúnaði auk öflugra hristip-
latna, sem gerir bifvélavirkjum okkar fært að
greina enn betur slit í fóðringum og hjólabún-
aði. Þá nær 10 tonna brúarkrani yfir helming
húsnæðisins og auðveldar hann okkur að lyfta
þungum hlutum. Verður m.a. fjárfest í búnaði
sem hægt er að nota með brúarkrananum til
að létta framrúðuskipti,“ útlistar Kristinn.
„Búið er að fjárfesta í háþróuðum hjólastilling-
arbúnaði fyrir vörubifreiðar, en rétt hjólastillt
vörubifreið ásamt vagni minnkar hráolíu-
eyðslu auk þess sem dekkjaslit minnkar til
muna.“
Vöruhús Veltis mun líka nota nýjustu tækni.
Reistur hefur verið 11 metra hár vöruturn sem
Kristinn segir að komi til með að bæta enn
frekar hraða og flæði varahluta til við-
skiptavina og verkstæðis auk þess sem ut-
anumhald varahlutalagers verður öruggara og
bættara.
Smurt og lagað með hraði
Veltir Xpress er heitið á nýrri hraðþjónstu
sem verður í boði fyrir vörubifreiðar, tæki og
vagna í Hádegismóum 8. Kristinn segir að þar
verði hægt að sinna verkefnum sem taka
skemmri tíma, s.s. smurþjónustu, minni við-
gerðum á eftirvögnum, bremsuviðgerðum og
dekkjaþjónustu. „Í aðstöðunni hjá Velti
Xpress er 26 metra löng gryfja auk fjögurra
pósta tjakkalyftu í gólfi sem gerir það að verk-
um að hægt verður að lyfta bæði bíl og vagni í
þægilega vinnuhæð fyrir starfsmenn. Hugs-
unin er sú að viðskiptavinir geti mætt án þess
að panta tíma og farið í röðina með atvinnu-
tækið sitt.“
Veltir verður ekki einn í húsinu því að í aust-
urenda Hádegismóa 8 hefur Frumherji komið
sér fyrir með sérhæfða skoðunarstöð fyrir at-
vinnutæki. Heildarstærð húsnæðisins í Há-
degismóum 8 er samtals rúmlega 4.000 fre-
metrar og lóðin er 14.000 fermetrar svo að nóg
pláss er fyrir alla.
Veltir mun flytja í Hádegismóa í haust og
segir Kristinn að það hafi verið orðið löngu
tímabært að flytja Volvo atvinnutækjasvið
Brimborgar frá Bíldshöfða sökum plássleysis.
Kveðst hann þakklátur viðskiptavinum fyrir
að hafa sýnt plássleysinu skilning og þol-
inmæði og að gaman verði að taka á móti þeim
á nýja staðnum. „Má í raun segja að það sé
ávinningur fyrir bílaumboðið Brimborg að
losna við þungadeildina af lóðinni, enda fer
ekki endilega vel saman að hafa plássfrekar
vörubifreiðar, rútur og vinnuvélar innan um
fína og flotta fólksbíla,“ segir Kristinn Már og
bætir við að stefnt sé að því að starfsemi þjón-
ustumiðstöðvar Veltis verði komin í fullan
gang á nýja staðnum í október. „Formleg opn-
unarhátíð þjónustumiðstöðvar Veltis er áætluð
í nóvember og kemur hún til með að standa yf-
ir þá helgi sem verður fyrir valinu, með opnu
húsi og sýningu á húsnæði og aðstöðu auk þess
sem við sýnum glæsileg Volvo atvinnutæki.“
Fullkomin
þjónustumið-
stöð Veltis rís í
Hádegismóum
Starfsmenn voru hafðir með í ráðum við hönnun nýs
húsnæðis og er aðstaða til viðhalds og þjónustu at-
vinnutækja eins góð og hugsast getur.
Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is
Gestir koma inn í fallegt og bjart
anddyri með móttökusvæði.
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018